Vikan - 17.09.1970, Síða 3
38. tölublað - 17. september 1970 - 32. árgangur
VIKAN
I ÞESSARI VIKU
Palladómar Lúpusar um þingmennina
okkar blessaða njóta greinilega mikilla vinsælda
hjá lesendum, og nú er
röðin komin að Jóhanni Hafstein, núverandi
forsætisráðherra og einum helsta forustu-
manni Sjálfstæðisflokksins.
Ofblæði hefur löngum verið erfitt
viðfangs, og sérstaklega skætt hefur
það reynst ættum konunga og keisara.
í þessari Viku er sagt frá tilraunum og lyfjum
sem gefa von um að loksins geti
þeir, sem þjást af þessum sjúkdómi,
fengið bót meina sinna.
„Flóttaleiðirnar eru óendanlega margar.
Svefntöflur eru ein þeirra, áfengið
önnur. Sjórinn eða bílaumferðin." Þessar setn-
ingar eru úr upphafi smásögu eftir hinn
kunna rithöfund Ingibjörgu Jónsdóttur.
Sagan birtist í þessu blaði og ber heitið
Lögtaksmenn koma á laugardagsmorgnum.
í NÆSTU VIKU
Parapsychology nefnist á ensku ein grein
sálfræðivísinda, sem litt er þekkt
hérlendis, þótt hún fjalli einmitt um efni, sem
kváðu ísiendingum hugleikin flestum
fremur. Það er að segja svokölluð
dulræn fyrirbrigði. í næstu
Viku verður viðtal við Erlend Haraldsson,
sálfræðing, um vísindi þessi.
Froskmennska er ein af vinsæiustu iþróttum
nútímafólks, og á dögunum brugðu
blaðamaður og Ijósmyndari frá Vikunni
sér austur að Þingvöllum og
köfuðu í Flosagjá. í næstu Viku koma
myndir ásamt frásögn af þvi afreki.
Hippunum er oft og mikið hallmælt
og ekki alltaf af miklum skilningi eða
sanngirni, en víst er hitt að með
fáu fólki er fylgst af meiri forvitni þetta árið.
Evrópskir hippar héldu fyrir skömmu
festíval við Rotterdam í Hollandi og birtast
myndir og frásögn af því i næsta blaði.
FORSfÐAN Á henni sést hluti gömlu húsanna við Lækjargötu, sem enn er ekki
vitað hvort fá að vera eða verða að fara. Sjá myndaopnu inni í blaðinu.
f FULLRI ALVÖRU
ÞETTA LÆRIST
Þegar dómur hafði verið felldur yfir þeim, er
stóðu að sprengjutilræðinu i Hvalfirði (lélega
einkunn hefðu þeir fengið hjá Guevara), stóð
einn hinna sakfelldu upp og las dómendum pistil
ótrauður þrátt fyrir hamarshögg og framiköll rétt-
visinnar. Komst ræðumaður svo að orði að þótt
ekki hefði til þessa verið til siðs meðal íslend-
inga að berjast fyrir skoðunum sínum með
skemmdarverkum og skæruhernaði, þá mætti
auðvitað læra þetta.
Þar reyndist ræðumaður sannspárri en hann
sjálfan hefur sjálfsagt órað fyrir, þvi að nú hafa
honum og félögum hans sannanlega bætst læri-
sveinar, sem fylgja fordæmi lærifeðranna trúlega
að þvi frádregnu, að þeir framkvæma aðgerðir
sínar með ólikt meiri myndarskap og árangri. Hér
er að sjálfsögðu átt við stiflusprengingu Mývetn-
inga nýverið. Yfirvöld landsins hafa þegar gripið
til gagnaðgerða með þvi að fyrirskipa málsrann-
sókn, en ekki verður því að óreyndu trúað um
Þingeyinga að þeir láti slíkt skjóta sér skelk i
bringu; reynt hafa þeir það brattara í átökum við
landsins yfirvöld.
Miðkvíslarsprengingin er sterkasta íslenska
dæmið til þessa — allavega að frátaldri sendi-
ráðstökunni í Stokkhólmi — um vaxandi vantrú
manna á því að vænlegt sé að fá leiðréttingu
mála sinna innan svokallaðs löglegs ramma. Dag-
inn áður en þetta var ritað dreifðu „nokkrir
námsmenn" um borgina bréfi, þar sem fólk er
hvatt til „almennrar óhlýðni" gagnvart „opinberu
ofbeldi". í bréfinu er þvi haldið fram að öll völd
í þjóðfélaginu séu í höndum sérréttindastéttar, og
skoðanafrelsi sé ekki til nema á pappirnum, þar
eð fjölmiðlarnir séu ekki annað en áróðurspípur
þeirrar sömu stéttar. Fólk, sem sé svo ólánssamt
að vera fætt utan hagsmunamúra sérréttindaklik-
unnar eigi því ekki annars kost, ef það vill ná
rétti sinum, en að vippa sér út fyrir „ramma
laganna" og hefja „aðgerðir".
Taka sendiráðsins var á sínum tíma fordæmd
með mörgum stórum orðum og hysteriskum
hamagangi, og ekki er vafi á því að margir
hugsa Mývetningum þörfina þessa dagana —
flestir að visu þegjandi, af augljósum ástæðum.
Það er áreynslulítið að koma fram með fljótfærn-
isleqar fordæmingar, en það er bara ekki til
neins. Miklu nær væri að reyna hræsnislaust að
grafast fyrir um hinar raunverulegu ástæður til
þess, að fólk skuli farið að lita á ráðandi aðila ís-
lands sem ópersónulegt og ómannlegt bákn, sem
hvað helzt hlýði máli valdbeitingar. dþ.
VirVMM Útgeíandl; Hllmlr hf. Ritstjóri: Gylfl
Gröndal. BlaOamenn: Dagur Þorleifsson, Matthildur
Edwald og Ómar Valdimarsson. Útlitsteikning: Hall-
dóra Halldórsdóttir. Auglýsingastjóri: Sigriður Ól-
afsdóttir. — Ritstjórn, auglýsingar, afgreiOsla og
dreifing: Skipholti 33. Símar 35320 — 35323. Pósthólf
533. VerO 1 lausasölu kr. 50,00. ÁskriftarverO er 475
kr. fyrir 13 tölublöO ársfjórOungslega. 900 kr. fyrir
26 tölublöO misserislega. — Áskriftargjaldið grelOlst
fyrirfram. Gjaldd. eru; Nóv., febrúar, maí og ágúst.
38. tbi. VIKAN 3