Vikan - 17.09.1970, Page 8
MIG
DREYMDI
Eldgos
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi að ég, foreldrar
mínir og systkini sætum inni í
stofu við að horfa á sjónvarpið.
Við vorum að horfa á einhverja
mynd í því. Lítið transistorút-
varpstæki stóð á borði þar inni,
og var einhver að fikta í því.
Allt í einu kviknaði á tækinu og
þulurinn sagði að allt svæðið frá
Heklu og niður að Reykjavík sé
logandi af hrauni og sjáist vel
til þess úr miðbænum.
Við hlupum öll út til að sjá
þetta, og verðum vitni að er jörð-
in springur og hraunið vellur
upp. Ekki var búið að byggja Ár-
bæjarhverfið og Bústaðakirkja
fannst mér vera það lág, að sá
yfir hana úr raðhúsunum við
Tunguveg og Ásgarð. Þar sem
við stóðum þarna og horfðum á,
kallaði mamma upp yfir sig: —
Nú er heimsendir kominn!
Við efri enda Bústaðakirkju
(kirkjuskipið var það eina sem
búið var að reisa í draumnum)
var smátjörn, og allt í einu komu
þar upp glóandi hraunslettur.
Við tjörnina stóð stelpa og horfði
á, en hvarf von bráðar á brott.
Þá kom fullvaxinn karlmaður
þar að'Og horfði á hraunið spýt-
ast upp, og ætlaði hann að at-
huga það nánar og taka lítið
stykki. En áður en það varð
sneri ég mér undan og vaknaði
við það.
Ég vona að þér finnist þetta
ekki eins lygilegt og það litur út
fyrir að vera, og því vona ég að
þú ráðir þennan draum fyrir
mig eins fljótt og auðið er.
Fyrirgefðu hrafnasparkið, rit-
villurnar og allt krassið.
Þinn Gunnar Jónsson.
Nei, mér finnst þetta alls ekki
lygilegt, því þessi möguleiki er
sagður fyrir hendi, að vísu er
ekki reiknað með því að það
verði hraun úr Heklu sem yfir
okkur Iekur, heldur úr Bláfjöll-
unum.
En að dreyma eldgos og eld-
fjöll er, þótt undarlegt megi
virðast, fyrir frið og gleði, og
ekki spillir kirkjan fyrir í þeim
efnum. Því viljum við ráða
draum þinn þannig að innan
skamms muni móðir þín fá ein-
hverjar nýjar fréttir sem koma
til með að valda ykkur mikilli
gleði og ánægju, svo það er ekk-
ert að óttast.
Gulur jakki af afa
Kæri draumráðandi!
Mig dreymdi að ég væri í her-
bergi þar sem margt fólk var
samankomið. Úr þessu herbergi
var gengið inn í annað minna, en
það herbergi var fullt af fötum,
allavega litum. Mér fannst ég
vera í rauðum jakka, og er hann
með því sniði sem mest er í
tízku núna.
Þá finnst mér að til mín komi
fólk og láti mig fá gulan jakka,
sem er eins og minn í sniðinu.
Mér er sagt að afi minn hafi átt
jakkann, og að ég megi eiga
hann. (Afi minn var dáinn áður
en ég fæddist). Ég tók við jakk-
anum og mátaði hann. Það vakti
þá furðu mína hversu nákvæm-
lega hann passaði mér og eins
að hann skyldi vera eins í snið-
inu og þeir sem nú eru hæst-
móðsins. Mér fannst vera árið
1930 eða eitthvað svoleiðis, en
þó er ég ekki nema 15 ára.
Jæja, ég fór úr jakkanum og
setti hann á stólbak og fór svo
og skemmti mér með fólkinu.
Það var skrýtið við jakkann, að
hann var með þremur tölum að
framan (minn rauði er með
tveim) og efsta talan var stór og
svört, en sums staðar sást í hvítt
vegna slits. Miðtalan var minni,
venjuleg jakkatala, en sú neðsta
var minnst og svört.
Svo hélt ég áfram að skemmta
mér með fólkinu en þegar ég fór
aftur inn í herbergið og ætlaði
að ná í jakkann, fann ég hann
ekki fyrr en ég var búin að róta
mikið til í allri fatahrúguni. —
Loksins fann ég tvo eins jakka,
sem höfðu verið gulir, en voru
nú útslettir í brúnni sósu, þó
sást í gult á stöku stað. Ég þekkti
minn af tölunum, og það síðasta
sem ég man áður en ég vaknaði
voru mislitu tölurnar.
Ég vona að þú getir ráðið
þennan draum fyrir mig.
Anton Jónsson.
Allt í sambandi við þennan
draum er heldur óljóst og erfitt
að segja til um hvað er. Þó þykj-
umst við sjá að þú eigir eftir að
eiga í einhverjum veikindum, þó
ekki ýkja alvarlegum eða lang-
vinnum. Áður en það verður átt
þú þó eftir að upplifa ýmislegt
skemmtilegt....
Svar til „einnar sem
fær oft martröð"
Draumur þessi er vísbending
um það að innan skamms munt
þú fá fréttir sem hryggja þig,
því einhver nákominn þér svík-
ur þig og/eða bregzt trausti þínu.
P.S. Skriftin er ekki nægilega
falleg af 15 ára, en með æfingu
er auðvelt fyrir þig að laga það.
Sérstaklega ættir þú að athuga
að skrifa ekki svona þétt, því á
köflum var erfitt að lesa bréfið
þitt.
8 VIKAN
:8. tbl.