Vikan - 17.09.1970, Blaðsíða 30
„Lítið eitt“ úr Hafnarfirði vakti mikla hrifningu,
enda eru þeir sérlega frískir og skemmtilegir gaurar.
HEYRA MÁ
(þó lægra látO
OMAR VALDIMARSSON
„Gaddavír 75%“ flutti m. a.
„Sverðdansinn“, við fá-
dæma hrifningu áheyrenda.
Sérstaklega var það gítar-
leikari hljómsveitarinnar,
sem lukku vakti í því sam-
bandi, en hann er ótrúlega
fingrafimur, og heitir Vil-
hjálmur Guðjónsson.
Keppt var um titilinn
ingahljómsveitin 1970“, og
þrír ungir menn,
sem mættu öllum að óvörum
og kölluðu sig „Gaddavír 75%“,
unnu; titlinum fylgdi réttur til
að leika inn á S.G.-hljómplötu
og 20.000 krónur í verðlaun.
Þetta er trommuleikari hljóm-
sveitarinnar, Rafn Sigurbjörns-
son, en hann er bróðir Arnars
í Ævintýri.
Hljómsveit Ingimars Eydals
var meðal þeirra sem léku
fyrir dansi og á „hljómleik-
um“ daginn eftir. M. a. flutti
hún lagið „Make me smile“,
og vakti það mikla hrifningu,
enda frábærlega vel gert; mik-
ið „power“ og mjög gott
„sound“. Það var Bjarki
Tryggvason sem sá um söng-
inn.