Vikan


Vikan - 17.09.1970, Qupperneq 39

Vikan - 17.09.1970, Qupperneq 39
Sharon Tate Framhald af bls. 19. núverandi þjóðskipulagi. Það var eftir að hann hafði árangurs- laust reynt að notfæra sér sam- bönd í tónlistarheiminum og líka árangurslaust boðið fram stúlk- ur sínar til að syngja ljóð sín og lög inn á plötur. Hann reyndi ekki að leyna þessum nýju kenn- ingum. Öllum var heimilt að hlusta á boðskap hans um dauða og eyðileggingu þeirra, sem stóðu í vegi hans. Þjónustustúlkan Winifred Chapman kom fyrst á morðstaðinn, klukkan 8.30 á laugardagsmorguninn 9. ágúst. Hún reyndi að hringja til lög- reglunnar, en síminn var ekki í sambandi. Hún hljóp æpandi niður veginn til eins af ná- grannahúsunum. Klukkutíma síðar komu margir lögreglubíl- ar fullir af lögregluþjónum. Þeir gengu svo inn um hliðið, sem Winifred Chapman hafði skilið eftir opið, vopnaðir skammbyssum. Rétt fyrir innan hliðið stóð hvítur bíll og í öku- mannssætinu lá piltur fram á stýrið. Hann var með þrjú kúlu- göt á höfðinu. Hundur tók að gelta og frá kofa garðyrkju- mannsins, sem var í hinum enda garðsins, heyrðist hrópað: — Haltu kjafti! Lögreglan flýtti sér þangað og náði fljótlega í garð- yrkjumanninn, William Garret- son, sem var mjög ölvaður. A grasbalanum, fyrir framan aðaldyrnar, lá Voityck Fry- kowski látinn. Hann hafði verið skotinn og líka stunginn hníf- um. Blóðspor lágu frá líki hans að dyrunum. Á hurðina var skrifað með blóði ,,Svín“. Sharon Tate og Jay Sebring voru í dagstofunni. Sharon var klædd í gegnsæjan náttkjól og Jay Sebring lá á hliðinni með höfuðið upp að henni. Bæði voru líkin með mörgum hnífsstungum og um háls þeirra beggja var bundinn nylonkaðall, sem síðan var festur upp í loftbjálka. Blóðspor lágu líka út úr dag- stofunni út að sundlauginni. Það var sú leið, sem Gibby Folger reyndi til að komast undan morðingjunum. Hún var líka stungin til bana með hnífum. Þegar krufningin fór fram kom í ljós að hún hafði neytt fjórum sinnum meira af fíknilyfjum en Frykowski. Það kom líka í ljós að hún hafði drukkið tvö til þrjú glös af vínblöndu um kvöld- ið. Símalínan var sundurskorin, svo það bendir til að morðin hafi verið ákveðin fyrirfram. Fingra- för, sem ekki pössuðu við neinn af íbúum hússins, fundust á úti- dyrunum og önnur á dyrunum út að sundlauginni. — Þettá líkist helzt helgisiða- Colgate fluor gerir tennurnar sterkari við hverja burstun. SPYRJIÐ. TANNLÆKNI YÐAR . . . hann veit betur en nokkur annar, hvað Colgate Fluor hefur mikla þýðingu fyrir tennur yðar og allrar fjölskyldunnar. BYRJIÐ í DAG - ÞAÐ ER ALDREI OF SEINT . . . Frá allra fyrstu burstun styrkir Colgate F.luor tannglerunginn og ver tennurnar skemmdum. Með því að bursta tennurnar daglega með Col- gate Fluor tannkremi, fáið þér virka vörn gegn sýrum þeim, sem myndast í munninum og mjög er hætt við að eyðileggi tennurnar, ekki sízt tennur barnanna. Auk þess er þetta dásamlega, ferska bragð sem aðeins Colgate Fluor tannkrem hefur. 38. tw. VIKAN 39

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.