Vikan


Vikan - 29.10.1970, Blaðsíða 34

Vikan - 29.10.1970, Blaðsíða 34
REYNIÐ RUSKOLINE KRYDDRASP crumb dressing FÆST í NÆSTU MATVÖRUVERZLUN. HEILDSÖLUBIRGÐIR: JQHN LINDSAY H.F. SÍMI 26400 GARÐASTRÆTI 38, R. ATHUGIÐ Ef þú ert að byggja eða þarft að bæta og jafnvel ef þú vilt breyta, þá teljum við það hagkvæmt að líta við hjá okkur, því að sjón er sögu ríkari gagnvart vöruúrvali. Gott verð. STJO RNUSPÁ^ n> Hrútsmerkið (21. marz — 20. apríl): i>ú verður fyrir nokkrum vonbrigðum við kynningu á persónu er þú hafðir gert þér háar hugmyndir um. Vinir þínir koma nokkru fyrr en þú hafðir gert ráð fyrir, svo þú verður að hraða verkum þínum. Nautsmerkið (21. apríl — 21. maí): Öll viðskipti ættu að liggja niðri þessa vikuna, en þú skalt samt líta í kringum þig og gagnrýna hlut- ina. Með aðstoð nokkurra kunningja þinna slepp- urðu við nokkuð sem allir aðrir komast ekki hjá. Tvíburamerkið (22. maí — 21. júní): t>ú ert allur af vilja gerður til að aðstoða kunningja þinn, en hvernig sem í pottinn er búið, þá náið þið ekki saman. Hætt er við nokkurri misklíð á vinnu- stað en hafðu sem minnst afskipti af þeim. Krabbamerkið (22 júní — 23. júlí); Hugsanir þínar eru mjög á víð og dreif og þú átt íiemur erfitt með að einbeita þér að því sem þú þarft að gera. Líkur eru á að þú dveljist mikið heimavið og starfir að málum fjölskyldunnar. Ljónsmerkið (24. júlí — 23. ágúst)-. Ýmsar truflanir verða til þess að þú getur ekki lokið ætlunarverki þínu. Þú þarfnast mjög ákveð- ins hlutar en gengur illa að fá hann. Þú verður fyrir eignatjóni, sem þú færð þó að nokkru bætt. Meyjarmerkið (24. ágúst — 23. september): Þú verður að umgangast ýmsar persónur meira en þú kærir þig um. Varastu að spilla tíma þínum og hvíld með því að hugsa eilíflega um hversu mikið er upp úr hinu og þessu að hafa. Heillatala er þrír. SB Vogarmerkið (24. september — 23. október): Maður nokkur sem þú þekkir vel sýnir vissum at- liöfnum þínum verðskuldaða athygii og er líklegur til að aðstoða þig ef þú hagar þér rétt. Vinir þínir standa fyrir skemmtiferð og skaltu ekki sitja heima. Drekamerkið (24. október — 22. nóvember): Þú tefst nokkuð vegna þess að þeir sem aðstoða ættu þig eru víðs fjarri. Vinur þinn verður mjög heppinn um helgina. Þú gerir góða verzlun sem margir munu öfunda þig af. Haltu smá partý fyrir fáeina útvalda. ** Bogamannsmerkið (23. nóvember •- 21. des.): Þú skalt ekki vera í miklu fjölmenni um helgina, heldur kjósa þér einveru eða einhvern rólegan stað til að hvílast á. Láttu engan troða sér inn á þig sem þú ekki vilt, sýndu að þú getir staðið fyrir þínu. £ Steingeitarmerkið (22. desember — 20. janúar): Undanfarið hefurðu eytt frístundum þínum við verk sem þú hefur harla litla kunnáttu á. í>ú lendir í smá ævintýri. líklegast um helgina eða fljótt upp úr henni. Vegna kæruleysis missirðu af góðu tækifæri. Vatnsberamerkið (21. janúar — 19. febrúar): Ef þú herjar á yfirmenn þína á réttum tima, þá þarftu engu að kvíða, því í rauninni vilja þeir gera ýmislegt fyrir þig. Þú ert dálítið taugaóstyrkur svo þú skalt ekki vera mikið út á við. Fiskamerkið (20. febrúar — 20. marz): Þú ergir dálítið samferðamennina vegna þess að þú fylgist illa með og hætt er við að þeim finnist þú lítið skemmtilegur. Opnaðu stundum útvarpið og líttu í blöðin. Vinir þínir verða mjög fengsælir. 34 VIKAN 44-tbl-

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.