Vikan


Vikan - 29.10.1970, Blaðsíða 13

Vikan - 29.10.1970, Blaðsíða 13
á ' § 181 árl eftir uppreisnina á „Boun- ty“, hittust þessir ungu menn, 16. febrúar 1970 við gröf Wiliiams BUgh. Þetta voru Glynn Christi- an, afkomandi uppreisnarforingj- ans og Maurice Bligh, afkomandi skipstjórans. Þeir ætluðu svo að fylgjast að til Pitcairn í sumar- ieyfinu. ÁriS 1790 lentu þeir menn, sem eftir voru á „Bounty“ á eynni Pitcairn eftir að hafa gert hina frægu uppreisn. Saga þeirra hefir tvisvar veriS kvikmynduS. ÁriS 1970 fór þýzkur blaSamaSur til Pitcairn og talaSi viS afkomendur hins fræga uppreisnarmanns og skoSaSi ýmsar minjar frá hans dögum ... UPPREISNARFORINGINN Á ”BOUNTY” eiga aðeins drauma um völd, ekki um ham- ingju. Bligh skipstjóri spurði hvað þetta ætti allt að þýða. Hásetarnir svöruðu: „Skjótum bastarðinn!‘‘ Fleteher Christian, sem ennþá var í æstu skapi, sagði: „Haldið yður saman, herra minn. Öllu er lokið fyrir yður.“ Þegar Bligh ætlaði að sína mótþróa, tók Fletcher Christian byssusting og batt hann við veiði- hnífinn, greip í böndin á skipstjóranum og hótaði að drepa hann. Áform uppreisnarmanna voru þessi: Bligh skipstjóri skyldi fá stóran, opinn björgunar- bát fyrir sig og áhangendur sína. Möguleik- arnir á því að komast yfir Kyrrahafið á slíkri kænu, voru sannast sagna engir. Næsti stað- ur í Evrópu (eyjan Timor) lá í 7000 kíló- metra fjarlægð. Uppreisnarmennirnir ætluðu svo að sigla „Bounty“ til Tahiti og setjast þar að, — því að heima í Englandi beið þeirra ekkert néma gálginn. Báturinn var svo sjósettur. Menn Fletchers Christians kölluðu þá upp, sem vildu fara með skipstjóranum. 18 manns af skipshöfn- inni voru settir í bátinn. Þeir fengu allan búnað sem með þurfti og hægt var að drífa fram. Jafnvel dagbækur Blighs skipstjóra fóru um borð. En þegar skipstjórinn bað um einhver vopn, var hlegið að honum. Bátur- inn var svo hlaðinn að aðeins þrír senti- metrar voru fyrir ofan vatnsborð. Bligh skipstjóri var ennþá á þilfari ,,Bounty“. Flet- cher Christian gekk þá fram fyrir hann og sagði: „Komið nú, skipstjóri! Stýrimenn og hásetar yðar eru komnir um borð. Ef þér sýnið allra minnstu mótstöðu, þá kostar það yður lífið!“ Blig skipstjóri hafði samt kjark til að kalla til hásetanna: „Verið óhræddir, ungu menn, ég mun sjá um að réttlæti verði framfylgt, þegar þið komið til Englands!“ Bligh skipstjóri var svo halaður í segli niður í bátinn. Fletcher fleygði þá til hans fjórum veiðihnífum, 25 pundum af svíns- fleski og sextant, svo hann gæti stjórnað bátnum. Síðan var bátnum stjakað frá. Um borð í „Bounty" öskruðu hásetarnir: „Húrra! til 0-Tahiti!“ Draumaeyjan þeirra Framhald á bls. 35. Ungl upprcisnarforinginn þráði j>að heitast að sctjast að á eyðiey með sólbrúnni mey. Hvorttveggja fram- kvæmdi hann. William Bligh skipstjóri, 44. tw. VIKAN 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.