Vikan - 29.10.1970, Blaðsíða 4
Margur klifrar upp á þann klett-
inn, sem hann kemst aldrei ofan
af.
íslenzkur málsháttur.
Svíaprins og
Isabella Rosselini
Nóg hefur verið um slúður-
sögurnar um Karl Gústaf, krón-
prins Svía, og er því haldið fram
að hann geri lítið annað en að
kynna sér tæknilega getu hinna
og þessa prinsessa sem hann
gæti ef til vill gifst, en nú kem-
ur að því að hann fari að taka
við völdum af föður sínum,
Gústafi Adolf, Svíakóngi. Og á
Sardíníu rakst Karl á þessa
fögru mey, hina 18 ára gömlu
Isabellu Rosselini, en hún er
jdóttir Ingrid Bergmann og Ro-
berto Rosselinis. Er sagt að ein-
hverjir kærleikar hafi verið á
milli þeirra Karls og fsabellu og
fylgdi jafnframt sögunni að Is-
otta, tvíburasystir Isabellu hafi
verið lítt hrifin af því.
Leikarinn Mick Jagger
Söngvari ’ílalling Stones, Mic-
hael Philip Jagger, hefur nú
leikið í tveimur kvikmyndum og
fengið lélega dóma fyrir báðar
myndirnar. Þó hafa gagnrýnend-
ur tekið fram að ef myndirnar
sjálfar væru góðar, það er að
segja efnið, þá væri ekki svo
víst að Mikki þyrfti að vera svo
slæmur. Önnur myndin er ný-
lega komin á markaðinn, en hún
var gerð í Ástralíu og heitir
„Ned Kelly“. Þar leikur Mick
bandítt með því sama nafni og
fretar á löggur og annað merk-
isfólk. Hin myndin heitir „Per-
formance“ og þar leikur goðið
hálfgalinn poppsöngvara, af-
dankaðan og ómögulegan og ku
vera lítið í þá mynd varið að
öllu leyti. Meðfylgjandi mynd
er úr „Performance", en þessar
baðsenur eru sagðar vera tölu-
vert algengar í kvikmyndinni.
Þriðju myndinni hefur hann
og komið fram í, og þar er hann
sagður mjög góður — enda ger-
ir hann ekkert annað en að
syngja og fyrir það hefur hann
yfirleitt hlotið góða dóma.
Betri dóma hefur aftur á móti
myndin „Carry It On“ fengið,
en það er heimildarmynd um
andspyrnuhreyfinguna í Banda-
rikiunum, og er í henni fylgst
mcð þeim hjónum Joan & Davis
Gina Lollobrigida einmana
Gina Lollobrigida á hvorki
meira né minna en fjögur hús í
Tovajanica, baðstað rétt hjá
Róm. f einu af þessum húsum
hennar bjó móðir hennar. Giu-
seppina Mercuri. Fyrir stuttu
síðan fannst gamla konan látin
fyrir framan sjónvarpið, sem
var í fullum gangi. Það var Lollo
sem fann móður sína, hún var
að koma frá Bandaríkjunum og
lét það verða sitt fyrsta verk að
hitta gömlu konuna. Það sem
verra var, gamla konan hafði
látizt fyrir tveim dögum Gina
var niðurbrotin, þegar hún fylgdi
móður sinni til grafar með Mil-
ko syni sínum, sem nú er orð-
inn tólf ára. — Nú erum við
Milko orðin ein eftir, segir Gina.
STUTT
OG
LAG-
GOTT
Vep.jule.gir menn hafa sam-
úð með þeim, sem bíður
ósigur. En menn, sem hafa
náð miklum frama í ver-
öldinni hafa hins vegar
samúð með þeim, sem
vinna sigur.
Harris. Joan er annars sú sem
við þekkjum undir nafninu Jo-
an Baez og fullyrða áreiðanleg,
bandarísk tímarit að mynd þessi
sé svo sannfærandi að jafnvel
Hitler hefði hætt að vígbúast
hefði hann séð hana. Við skul-
um því vona að myndin verði
sýnd a.m.k. í Washington, Aþenu
og Moskvu, svo ekki sé talað um
Reykjavík.
Hjálpfýsi '
Vanessu Redgrave
4 VIKAN
44. tbl.