Vikan


Vikan - 29.10.1970, Blaðsíða 50

Vikan - 29.10.1970, Blaðsíða 50
WILLY BRANDT í SUMARLEYFI Þótt stjórnarsamstarfið við frjálsdemó- krata (framsóknarmenn Þýzkalands) gangi báglega, er ekki annað að sjá en Willy sé afslappaður við berjatínsluna í skóginum. A- Ninja, tuttugu og sex ára gömul dóttir Brandts frá fyrra hjónabandi, og unnusti henn- ar norskur, sem Jale heitir. — Þau eru bæði kennarar í Þrændalögum. -jtoh Kanslarinn að kvöldlagi í sumarbústað sínum ásamt eiginkonu sinni Rut, tveimur börnum og til- vonandi tengdasyni. Willy Brandt, kanslari VesturrÞýzka- lands, veiktist af inflúensu í Moskvu, meðan á samningum stóð þar við Sov- éta. Skömmu eftir heimkomuna tók hann sér frí til hvíldar og hressingar í hópi eiginkonu og barna. Meðal þeirra var dóttir Brandts af fyrra hjónabandi; Willy hefur sem kunnugt er kvænzt tvisvar og norskum konum í bæði skiptin, enda var hann um hríð norsk- ur ríkisborgari og foringi í norska hernum. Kynni Willys af Norðmönn- um munu hafa haft veruleg áhrif á skaphöfn hans og viðhorf; þannig gæt- ir ekki á hans heimili þess prússneska aga, sem svo margir þýzkir f jölskyldu- feður beita enn í dag. Synir Willys hafa þannig tekið þátt í mótmælaaðgerðum róttækra ungmenna og þótt kanslarinn sé ekki samþykkur þeim aðgerðum, gerir hann ekkert til að hindra þátt- töku barna sinna í þeim. Matthias Brandt, átta ára, að leik utan dyra, cn foreldrar hans horfa ánægðir á. / ft t/ t A wm

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.