Vikan


Vikan - 05.11.1970, Side 17

Vikan - 05.11.1970, Side 17
V Veizlugestirnir höfðu dreift sér út á veröndina. Kvöldið var svalt og ljósin, sem sett höfðu verið innan um blómin í smíða- járnsgrindunum, lýstu notalega út í garðinn. Einhver hafði skipt um plötu á fóninum. - Trén eru yndisleg um þetta leyti, sagði Eve Turner, — en samt finnst mér þau skemmtilegri, þegar þau eru ber og blaðlaus. Hvað finnst þér? Hún rétti gesti sínum drykk. Hann þakkaði fyrir og sagði að sér þætti leiðinlegt að vera ekki á sama máli, hann sagðizt heldur vilja hafa trén laufguð, rétt eins og hann tæki hárprúðar konur fram yfir sköllóttar. Hann er ekki notalegui maður, hugsaði Eve Turner með sjálfri sér, og hún skyldi ekki hversvegna hún héldi alltaf áfram að bjóða honum heim. Hún sló því föstu að það væri Toms vegna. Einhvern- vegin var það þannig að Tom hafði mikið dálæti á honum, en það sýndi aðeins lélegan smekk eiginmannsins. ■—- Þú ert ekki þægilegur maður, sagði hún. — Fólk, sem segir nákvæmlega það sem það hugsar er sjaldan þægilegt í umgengni. Sjáðu stúlkuna þarna yfirfrá. Hann fylgdi augnaráði hennar og kinkaði kolli. — Hún segir alltaf allt sem hún hugsar. Þið mynduð passa prýði- lega saman. Þú ættir að tala við hana, ég hugsa að þið mynduð skemmta ykkur vel við að segja hvort öðru sannleikann? — Þakka þér fyrir, ég geri það, sagði hann alvarlegur í bragði og hneigði sig hæversklega fyrir henni. —- Miðdegisverðurinn var Hún gekk frá honum, án þess að segja nokkurt orð. Eina ástæð- an til að hann kom í samkvæmi hennar var að honum líkaði vel maturinn, og það var raunar ekkert skrítið. Hún hafði einu sinni komið í íbúðina hans. Ja, svínastía var kannske of mikið sagt, en óreiðan var ofboðsleg; — bækur og blöð út um allt, ryk og óhrein- ir bollar, rusl á teþpinu, bældir púðar og tóbakslykt af glugga- tjöldunum, fingraför á símanum; skáparnir voru fullir af bjór og vínflöskum, bökuðum baunum og pakkasúpum. Hún hugsaði að sumir (ókvæntir karlmenn) myndu segja að þetta væri regluleg paradís karlmanna. — Eve stakk upp á því að við töluðum saman, sagði Andrew Marshall við stúlkuna. — Hún hélt að okkur gæti komið vel saman. Stúlkan brosti og færði sig til í sófanum. Brosið og hreyfingin voru algerlega lausar við feimni. Hann hugsaði með sér að það væri eins og öll feimni væri henni horfin, uppurin, án þess að hafa haft nokkra þýðingu, svo hún hefði ákveðið að sinna því ekki framar. — Eve hefir verið að reyna að gifta mig í mörg ár, sagði stúlk- an, — henni finnst kannske að við hæfum vel hvort öðru. —- Hversvegna kemur þú hingað? spurði hann. — Maturinn er alltaf góður. Ég er ekki leikin í matargerð, en mér þykir gott að fá góðan mat. Hann settizt við hlið hennar og sagði henni nafn sitt. — Ég heiti Susan Seymour, sagði hún. — Segðu mér eitthvað um sjálfa þig, sagði hann vingjarnlega. Hún leit undan, eins og hún væri orðin leið á þessari spurningu,

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.