Vikan


Vikan - 05.11.1970, Side 43

Vikan - 05.11.1970, Side 43
KONlltt. SEM SAllMá lör sín sjAlfab geta 1/ 7 FIÆIttl BETttl 00 01ÆSILE0B1FÚT MAttttM. SÍÐUR HETTUKJÓLL McCall snið 3,17 m ullarefni á 548/— 2.90 m fóður á 173/— tvinni 25 tölur á 8/— Kr. 140,00 — 1.737,00 — 502,00 — 27,00 — 200,00 Kr. 2.606,00 BUXUR VIÐ HETTUKJÓL 1,15 m ullarefni á 488/— Kr. 561,00 1 rennilás — 26,00 tvinni — 20,00 Kr. 607,00 FATNAÐURINN SAMTALS Kr. 3.213,00 Allttil sauma gjafinn. Gestir þínir eru að kvarta. Meg hló. — Ertu viss um, að það sért ekki bara þú einn sem kvartar? — Ég vil fá að vera einnt með þér um stund. Við losum okkur við Cathy. Ég hitti strák hérna áðan, sem langar til að kynnast henni. Hann sagðist aldrei hafa séð jafn fallega stelpu og hana. Cathy þótti hólið gott, en reyndi að láta ekki á þvi bera. — Það var fallegt af honum að segja þetta, sagði hún og reyndi að láta eins og þetta snerti hana ekki hið minnsta. — Hver var þetta, Paul, spurði Meg forvitin. — Sýndu mér hann! — Nei, það ætla ég ekki að gera. Þú átt að halda þér við mig. Þessi náungi er lögfræðingur að mennt, ragði hann og sneri sér að Cathy. — Hann er nokkuð þekktur.og bað er sagt, að hann eigi góða framtíð fyrir sér. Hann dreymir um að kom- ast í framboð til þings. Hefurðu áhuga á stjórnmálum? — Ekki sem stendur. En ég gæti kanski fengið hann. í sama bili kom sá sem um var rætt sjálfur á vettvang, Jack Byrnes. Hann hafði gefið þeim auga og beð- ið eftir tækifæri til að slást í hóp- inn. — Nei, þarna er Jack, sagði Paul. — Við vorum einmitt að leita að þér. Má ég ekki kynna þig fyrir Cathy Palmer. Þegar hann hafði kynnt þau, greip hann í handlegginn á Meg og sagði: — Jæja, þá ættum við að geta verið í friði. Jack Byrnes sneri sér að Cathy. — Það er erfitt að tala saman hér. Ja, hvílíkur hávaði og hvílík ringul- reið! — Já, svaraði Cathy. — En þetta er bráðskemmtilegt partý. Hún mætti augnaráði hans Það var ákveðið og rannsakandi. En það bjó ekki yfir þeim hita og ákafa, sem hafði gert það að verkum, að hún féll fyrir Ken. Jack virtist ekki þröngva sér upp á neinn. Þau horfðu hvort á annað nokkra stund. Sér til undrunar fann Cathy, að roði hljóp í kinnar henni og hjartað tók að slá ótt og títt. Það var orðið svo langt síðan hún hafði sýnt önnur viðbrögð en mótþróa, þegar hún gat lesið hrifningu og áhuga úr augum karlmanns. Jack brosti blítt og vingjarnlega til hennar. — Ég vil alls ekki vera uppá- þrengjandi, sagði hann. — En lang- ar yður ekki til að koma eitthvað annað? Við gætum ef til vill fundið einhvern rólegri stað, þar sem við getum að minnsta kosti talað sam- an . . . og ef til vill dansað líka, ef þér viljið. Cathy hikaði andartak. En Jack hafði vakið óvenjumikla samúð í brjósti hennar. Hana langaði til að kynnast honum nánar og þess vegna yfirgáfu þau saman jólaboð Meg. I næstu viku bauð hann henni I leikhúsið, og á sunnudaginn fóru þau á veitingahús og snæddu sam- an kvöldverð. Eftir það bjóst Cathy ekki við að heyra neitt frá honum. Það var ekki jafn auðvelt að tala við hann og Ken. Hann hafði önnur áhugamál og minntist á svo ótal- margt, sem hún bar ekkert skyn- bragð á. En hann hætti ekki að hringja eins og hún hafði búizt við. Og það var alls ekki leiðinlegt að fylgjast með því, sem hann sagði. Hann dansaði ekki vel og sat aldrei heilt kvöld á veitingahúsi og talaði og talaði og gaf ímyndunaraflinu lausan tauminn eins og Ken hafði gert. En hann bauð henni oft í leik- hús og tók hana með sér á stjórn- málafundi eða fór með hana í dóms- húsið til að hlusta á athyglisverðar yfirheyrslur. Hann talaði um allt sem viðkom starfi hans og stjórnmálaáhuga og lét hana taka þátt í því, sem hann var að gera. Cathy þótti þetta ný- stárlegt og skemmtilegt. Undir leið- sögn Jacks fékk hún allt aðra mynd af San Francisco en hún hafði áður kynnzt: Jack leiddi henni fyrir sjón- ir hörmungar kynþáttahaturs, eitur- 45. tbi. VIKAN 43

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.