Vikan


Vikan - 23.12.1970, Blaðsíða 13

Vikan - 23.12.1970, Blaðsíða 13
Þessi mynd var tekin er Jónás Gíslason, framkvæmdastjóri Hjálparstofnunar kirkjunnar, veitti viðtöku hluta þess fjár sem skiptinemar söfnuðu í Pakistan- söfnuninni. Eftir rúmlega viku vinnu afhentu samtökin 246.618 krónur og var þá söfnunin aðeins hálfnuð. þeim„komið fyrir á fyrirfram ákveðnum heimilum, víðs vegar um SV-hluta landsins. Þrískiptingin sem áður var talað um, er því fólgin í því, að fyrstu fjóra mánuði ársins búa skiptinemar hjá ís- lenzkri fjölskyldu og sækja skóla, helzt mennta- eða kennaraskóla. Næstu fjórir mánuðir eru gjarnan notaðir til að kynna íslenzka sveitamennsku fyrir skiptinemnunum; nú eru til dæmis þrír skipti- nemanna á sveitabæjum víðs vegar um land, og vinna þar öll al- gengustu sveitastörf og síðustu fjóra mánuðina vinna skiptinemarn- ir fyrir kaupi, helzt við einhverja félagslega vinnu, þó fátt sé um feita drætti í þeim efnum hér á landi. Rétt er þó að taka fram, að þetta er í fvrsta skipti sem þessi skipt- ing er reynd hér á landi, og því er ekki hægt að segja neitt til um hvernig hún hefur reynzt. Og það eru aðeins þrír skiptinemanna sem eru í þessu, en ætlunin er að reyna að útvíkka þetta eftir því sem tíminn líður og reynslan kennir. Nú eru hér staddir 6 erlendir skiptinemar: 2 bandarískar stúlkur, þýzk stúlka, önnur frönsk, ein hollenzk og brazilískur piltur. Alls hefur fsland tekið á móti um 30 erlendum skiptinemum, frá Bandaríkjunum, Hollandi, Frakklandi, Sviss, Þýzkalandi, Braziliu, Bólivíu og Jamaica, og um 200 íslend- ingar hafa farið utan og dvalizt í eftirtöldum löndum: Bandaríkjun- um, Bretlandi, Noregi, Svíþjóð, Finnlandi, Hollandi, Þýzkalandi, Sviss, Jamaica, Costa Rica og Brazilíu. Áætlað er að um 5000 manns hafi tekið þátt í þessu „prógrammi" frá upphafi, bæði fjölskyldur og ungmenni og um 500 manns á ári taka þátt í því nú. Gífurleg aðsókn hefur verið í skiptin, og rennur umsóknarfrestur fyrir árið 1971- -1972 út 31. desember næstkomandi; þá á að skila umsóknum á skrifstofu Æskulýðsfulltrúa — hvar eyðublöðin fást. Það hefur alltaf verið vandamál að fá fjölskvldur til að taka er- lenda skiptinema inn á heimili sitt, enda er það töluverð ábót að fá allt í einu útlending inn á heimili sitt, og láta hann vera þar, með nákvæmlega sömu réttindum og skyldum og aðra fjölskyldumeð- limi. í bæklingi frá Skiptinemanefnd Þjóðkirkiunnar segir að erlendi skiptineminn ætlist ekki til að njóta neinna forréttinda eða munað- ar, aðeins skilnings. Þær fjölskyldur íslenzkar sem tekið hafa skipti- nema láta allar mjög vel af því, og telja það hafa verið ómetanlega reynslu; sjóndeildarhringur þeirra hafi víkkað að miklum mun og skilningur á öðrum, ekki síður en sjálfum sér, hafi aukizt óskap- lega. Fjölskyldur sem ekki telja sig geta staðið algjörlega undir kostnaði við að halda uppi skiptinema, munu geta fengið einhverja fjárhagsaðstoð frá ICYE á íslandi. Og til hvers er svo verið að þessu öllu saman? í grundvallaratrið- um er markmiðið ennþá það sama og það var rétt eftir stríð. En grundvöllurinn hefur breikkað og er nú lögð mikil áherzla á að brúa bilið á milli okkar og Þriðja heimsins, enda ekki vanþörf á. Því hefur verið lögð meiri áherzla á að senda ungmenni frá „mennngar- og offitulöndum“ til Þriðja heimsins, og er íslenzka starfsemin fram- arlega á því sviði. Því má sjálfsagt segja að „Sieg heil!“ ICYE sé SHALOM, sem er hebreska og þýðir m. a. FRIÐUR, en nær í raun- inni mikið lengra. „Við erum að vinna að því að flýta fyrir komu Shalom Guðs,“ segja skiptinemarnir. Nafn þessarar starfsemi bendir til að hún sé kristileg á einn eða annan hátt, og flestum dettur í hug að hún sé „hákristileg“. Stað- reyndin er sú, að ekki einungis kristnir menn geta orðið skiptinemar á vegum hinna kristnu trúarfélaga sem taka þátt í ICYE, heldur allir þeir sem vilja haga lífi sínu samkvæmt kristinni siðfræði. Starfsem- in er þannig byggð upp á kristilegri sið- og trúfræði og má benda á að fyrir tveimur eða þremur árum var samþykkt að taka banda- rískan búddatrúarmann inn í starfsemina, en hann hætti sjálfur við á síðustu stundu vegna einhverra orsaka. Og hversu trúarleg er starfsemi skiptanna hér á landi? Ekki mjög. í Skiptinemanefndinni sem er ein af undirnefndum Æskulýðsnefnd- ar kirkjunnar, eiga sæti Valdimar Sæmundsson, flugvirki, sem var áður skiptinemi og er nú framkvæmdastjóri ICYE á íslandi, séra Jón Bjarman, fyrrverandi Æskulýðsfulltrúi Þjóðkirkjunnar og nú- verandi fangelsisprestur og Karl Sigurbjörnsson, stud. theol. Að auki eiga sæti í nefndinni fulltrúi KAUS, sem varamaður — með at- kvæðisrétt, og sr. Bernharður Guðmundsson, Æskulýðsfulltrúi Þjóð- kirkjunnar. Nú er verið að koma á laggirnar undirnefnd, sem á að marka stefnúna, og munu eiga í henni sæti aðallega fulltrúar skipti- nemasambandsins. En það ber að gæta þess, að þessi starfsemi fer öll fram á kristilegum grundvelli og þó ekki sé mikið um bæna- hald, hefur grundvöllurinn allt að segja. KAUS, samtök skiptinema, eru samtök þeirra skiptinema íslenzkra sem heim eru komnir, eftir ársdvöld erlendis. Hafa samtökin stjórn, sem er kosin til eins árs í senn, og að auki starfa nokkrar nefndir innan samtakanna, m. a. útbreiðslunefnd, sem á að sjá um kynningu á skiptunum og ritnefnd, sem á að sjá um útgáfu á KAUSanum, fréttabréfi samtakanna. Eins og venia er, hefur gengið mjög illa að fá heimkomna skiptinema til að starfa með þessum samtökum, og af þeim 200 skiptinemum sem héðan hafa farið eru aðeins um 30 sem starfa að staðaldri. Á vissan hátt er það mjög skiljanlegt, því fastur starfsgrundvöll- ur hefur aldrei verið til. í fyrstu lögum sem samtökin settu sér, var þess getið að samtökin ættu að starfa að æskulýðsstarfi innan safn- aðanna víðs vegar um land, en skiptinemarnir hafa ekki fundið sig í því starfi og venjulegast fallið út úr því áður en langt hefur liðið. Nú virðist aftur á móti vera að færast fjörkippur í starfsemina og fastur starfsgrundvöllur virðist vera að fæðast, því allt bendir til þess að skiptinemarnir ætli sér að verða nokkurs konar framlínu- sveit Hjálparstofnana kirkjunnar, sem nú er að fara af stað með endurnýjuðum krafti. Þá hafa skiptinemasamtökin beitt sér, af miklum krafti og fórn- fýsi, fyrir ýmiss konar fjáröflunarstarfsemi, en ICYE á íslandi hef- ur átt í miklum fjárhagserfiðleikum. Fjáröflunarleiðir skiptinem- anna hafa verið aðallega dansleikir og kökusölur, en margt annað eru þeir með á prjónunum og verður spennandi að fylgjast með því. Það sem þessi samtök hafa orðið frægust fyrir eru hinar títtnefndu Þetta eru þeir Jón Gulli Sigurðsson (til vinstri), tormaður KAUS, samtaka skiptinema og Valdimar Sæmundsson, formaður Skiptinemanefndar Þjóðkirkj- unnar. Báðir voru skiptinemar í Bandaríkjunum. og umdeildu „popp-messur“, sem haldnar voru hér í Reykjavík fyrir nær tveimur árum síðan. Þær samkomur voru algjörlega skipulagð- ar af skiptinemum, sem enn haga öllu sínu tilbeiðslustarfi á svip- aðan hátt, en vandamálið er það að engir prestar treysta sér til að styðja þá og styrkja og skiptinemarnir telja nauðsynlegt að halda slíkar samkomur í kirkjum. Sá hópur samtakanna, sem stóð helzt fyrir þessum samkomum er ánægður með þann árangur sem af þeim varð, og benda á að margir hafi þarna fvrst gert sér grein fyrir því hvað kirkjan var í raun og veru. Framhald á bls. 44 Skiptinemasamtökin stóðu fyrir almennri fjársöfnun til hjálparstarfsins í Austur Pakistan fyrr í þessum mánuði og var söfnunin komin í fullan gang viku eftir að hugmyndin kom fram. Allt var skipulagt af skiptinemunum sjálf- um og framkvæmt af þeim, með aðstoð nemenda í framhaldsskólum landsins. Myndin er af flóðasvæðunum. 92. tbi. VIKAN 13

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.