Vikan


Vikan - 23.12.1970, Blaðsíða 39

Vikan - 23.12.1970, Blaðsíða 39
FRÁ RAFHA BORÐHELLA MEÐ 4 HELLUM, þar af 1 með stiglausri stillingu og 2 hraðsuðuhellur. — Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð. 56 LÍTRA OFN MEÐ LJÓSI, yfir og undirhita stýrt með hitastilli. Sérstakt glóðarsteikar element (grill). Klukka með Timer. Heimkeyrsla og Rafha ábyrgð. VIÐ ÖÐINSTORG - SÍMI 10322 kenndi mér að búa til ljúffengt salat úr þeim. Og leðurblöku- vínberin. Skyldi krukkan með þeim standa ennþá niðri í svölu lindinni, þar sem við settum hana, eða skyldi hún hafa oltið um koll og brotnað í grjótinu? Og á kvöldum sátum við öll þrjú fyrir framan húsið og steiktum pylsur yfir eldi og horfðum á gneistandi ljósormana. En stundum bar skugga á alla þessa grósku, þegar skröltormar og aðrar skaðsemdarskepnur óðu yfir þessa fegurð. Þannig bar skugga á hina tæruskelhamingju og rósemi er umlukti mig, daginn sem ég sá son Wills, „strákinn" í fyrsta sinn í þorpsbúðinni. Það var ekki nokkrum vafa bundið að hann var sonur Wills, en þeir voru líkir á einhvern öfugsnú- inn hátt. Hárið á Will var eins og glansandi hjálmur, en á „stráknum“ var þetta eins og úfinn, ógreiddur sópur. Varirn- ar, sem á Will voru fagurlega mótaðar, voru bólgnar og út- túttnar á syninum og þessi mikli skrokkur var linjulegur og slappur. En það versta voru þó augun. Augu föðurins voru blik- andi og skær og full trúnaðar- trausts, en augu sonarins voru vond og undirförul. Hann var nú reyndar ekki beinlínis strákur, hann var þrítugur maður, kvæntur og átti mörg börn, og hann var nýkominn frá Detroit, með fjárhagslegri aðstoð Wills, eftir að hann hafði lent í „vand- ræðum“ þar. Fréttirnar um þessi „vand- ræði“ höfðu borizt til Kentucky gegnum ættingja „konunnar" (konan er í ætt við helminginn af héraðsbúum og hinn helming- urinn eru mínir ættingjar, sagði Will), og hún var komin heim aftur. — Hún er svo hrædd um að ég láti hann hafa peninga, sagði Will. — En nú hefur hún fulla ástæðu til þess. É'g hef þegar gert það og á ábyggilega eftir að gera það oft ennþá. É’g segi alltaf að þetta skuli vera í síð- asta sinn, en hvernig á það nokkurn tíma að vera í síðasta sinn, svo lengi sem við lifum? (já, svo lengi sem við lifum, elsku Will... .) — Það er alltaf eitthvað nýtt með hann, sagði Will, — hann keyrir bíla í klessu eða þá að hann lendir í fangelsi fyrir fyllirí og slagsmál. É'g veit ekki hve oft hann hefur vakið mig upp á miðjum nóttum og sagt. — Pabbi, geturðu ekki látið mig hafa tvöhundruð dollara? Get- urðu látið mig hafa peninga strax? Að lokum seldi ég allar byssurnar mínar. Eg átti margar góðar byssur, en „konan“ japl- aði alltaf á því sama, að ég yrði að fela byssurnar, svo að lokum fannst mér bezt að losna við þær. Það er auðvitað deginum ljósara að ég get ekki hindrað hann í því að vaða um sveitina, veifandi byssu, en það er eins gott að það sé ekki mín byssa. Ég fann til með Will, — ég átti ekki svo gott með að skilja þetta, því að Ellen hafði aldrei valdið okkur áhyggjum, en ég man hve hrædd við urðum einu sinni, þegar hún fór út að aka með einhverjum pilti, sem við þekktum ekki, eða þegar hún varð veik. Allir sem hafa alið upp barn þekkja þann ótta. i i ri trákurinn“ fékk vinnu í \ sögunarmyllu í nágrenn- ^ inu, en það leið ekki á löngu þangað til hann komst í kast við verkstjórann. í þetta sinn var það verulega slæmt og allt útlit fyrir að hann lenti í fangelsi. Ég komst aldrei að því hvað það raunverulega var, sem hann var sekur um, en það var einhver stúlka í spilinu og Will varð að selja eitthvað til að greiða tryggingarfé. „Strákur- inn“ komst undan í þetta sinn, en þó átti hann eftir að koma fyrri rétt. — Já, nú hefur hann koll- varpað öllu, sagði Will. — Var hann líka svona erfið- ur, þegar hann var barn? spurði ég. — Nei, það var hann alls ekki. Hann var einhver elskulegasti unglingur sem hægt var að hugsa sér. Hann fylgdi mér um allt, hvert sem ég fór. Hann lét þá klippa á sér hárið, á sama hátt og ég gerði. Ég hef aldrei verið hrifinn af síðhærðum strákum. Þegar hann fór til að gegna herþjónustu, fylgdu níu stúlkur honum á stöðina. En það hefði verið heppilegra að hann hefði aldrei talað við þær, að minnsta kosti helminginn af þeim. Ég sagði það við hann, en þá svaraði hann mér: — Hvern- ig stendur á því að þú veizt svona mikið um ungar stúlkur, pabbi? Ég minnist þess að ég fékk eitthvert óbragð í munn- inn, þegar hann sagði þetta, ég hef aldrei haft afskipti af smá- stúlkum og það vissi hann vel. Það var eingöngu að ég hafði ekki álit á fjölskyldum þessara stúlkna, og það hefur enginn hér í sveitinni heldur. — Mér þykir leiðinlegt að heyra að þetta skyldi koma fyr- ir, ég á við þetta síðasta uppá- tæki hans. — Ég veit ekki hvað gengur að honum. Hann getur alls stað- ar fengið ágætis vinnu ef hann vill. En þess í stað vill hann alltaf ná í þá vinnu sem ég hef, eða gera það sem ég geri. Þegar ég hafði viðgerðarverkstæði, þá vildi hann endilega verða bif- vélavirki og þegar ég hef snúið 52. tbi. VIKAN 39

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.