Vikan - 23.12.1970, Blaðsíða 29
Hvað endalok Fásts snertir er Goethe bjart-
sýnni en þjóðtrúin — eða ekki eins raunsær, eins
og sumir vildu kannski orða .það. Hugmyndina
að formála leikritsins sækir hann í Jobsbók, en
það Biblíurit hefur valdið guðfræðingum ærnum
heilabrotum gegnum aldirnar. Samkvæmt kirkju-
legum rétttrúnaði voru himnafaðirinn og myrkra-
höfðinginn ósættanlegir féndur, Kkt og fyrirrenn-
arar þeirra Ahúramasda og Aríman í Persatrú.
Var haft fyrir satt að sá vondi hefði upprunalega
verið í innsta hring á himnum en komist í eilífa
ónáð og verið steypt úr paradís eftir að hann
tældi Evu. En í Jobsbók, sem auðvitað gat ekki
verið siður innblásin af Guði en önnur rit Biblí-
unnar, skaut hér nokkuð skökku við: þar virðist
Satan jafnvel vera í f jölskyldutengslum við
himnaföðurinn og i ekki meiri ónáð en svo, að
hann lítur þar inn öðru hvoru. Þeir Drottinn gera
það þá að gamni sínu að prófa guðhræðslu Jobs
gamla með því að iáta yfir hann ganga hinar
hroðalegustu hrellingar. Satan hefur trú á að þetta
leiði til að Job formæli Drottni en Drottinn fullyrð-
ir að hollusta hans við skapara sinn verði alltaf
söm og jöfn. Hliðstæðan samning gera þeir Drott-
inn og Mefistófeles í formálanum að Fást. Drottinn
— sem samkvæmt fræðunum hefur öll tök á
skrattanum og hans hyski ef hann bara vill —
gefur Mefistófelesi frjálsar hendur um að villa
um fyrir Fást, og megi hann eiga doktorinn ef
það takist. Mefistófeles kemur á fund Fásts, sem
lofar að gefast skratta á vald gegn slíkri sælu-
stund, að hann biðji þá stund að standa við. Til
þess að koma þessu í kring reynir kölski einkum
fjórar leiðir: nautnir, hreina ást, unað fegurðar
og loks að búa i haginn fyrir komandi kynslóð.
Nautnirnar hafa ekki teljandi aðdráttarafl fyrir
Fást, en ást Grétu hefur slík áhrif á hann að þótt
svo að hann bregðist henni svívirðilega, þá eru
sigurvonir djöfulsins þaðan af hverfandi. Um síð-
ir tekst honum að vísu að veita Fást slika stund,
að hann óskar þess að sú standi kyrr. Það gerist
þannig að Fást og Mefistófeles ráðast í miklar
landbúnaðarframkvæmdir komandi kynslóðum til
góða. Kann Fást athafnalífinu svo vel að hann
Framhald á bls. 50
Valborgarmessan er færð upp scm nútíma popp-
danslcikur, og sér hljómsveitin Trúbrot þar um
tónlistina.
Leikstjórinn, Karl Vibach, ásamt Guðlaugi Rósin-
kranz, þjóðleikhússtjóra og Yngva Jóhannessyni,
sem þýddi leikritið.
Gustaf Griindgens, hinn kunni þýzki leikhúsmað-
ur, sem átti mikinn þátt í að færa Fást „fram í
tímann til áhorfandans".
52. tbi. VIKAN 29