Vikan


Vikan - 21.01.1971, Page 6

Vikan - 21.01.1971, Page 6
MIOA PREIMTUIM Takiö upp hina nýju aöferö og látið prenta alls konar aögöngumiöa, kontrolnúmer, tilkynningar, kvittanir o.fl. á rúllupappír. Höfum fyrirliggjandi og útvegum með stuttum fyrirvara ýmis konar afgreiðslubox LEITIÐ UPPLÝSINGA HILNIRhi Skipholti 33 — Sími 35320 G ~~C Góð og falleg bifreið þarf góðar og hagkvæmar TRYGGINGAR. Tryggið bifreið yðar TR hjá stóru og traustu ýy fyrirtæki- (rP)[jp! 6 Tryggið hjá okkur. » 5 SAMVirvrSUTRYGGINGAR ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38500 6 VIKAN 3. tbi. Jreymdi Rósir með andlit og trúlofun Kæra Vikal Mig dreymdi að ég væri á hæð- inni hjá Fossvogskirkju ásamt tveimur vinkonum mínum, og vor- um við að bíða eftir rútu til að fara með niður í bæ. Myrkur var úti og snjór. Þegar við sjáum rút- una koma, man ég eftir því að éa hafði gleymt töskunni minni í húsi sem við höfðum verið í, en í henni voru pakkar sem ég ætlaði að láta strákinn sem ég er með fá. Mér finnst ég biðja stelpurnar að koma með mér og ná í töskuna, en þær segjast ekki nenna því og labba í bæinn. Svo finnst mér við vera að labba fram hjá Þóroddsstöðum og ég komin með töskuna. Þá verður mér litið inn í garðinn hjá einni blokkinni og sé ég þá að garður- inn er grænn og fallegur og í hon- um vaxa fallegar rósir sem voru mannhæða háar. í knúppum þeirra voru mannsandlit. Mér verður starsýnt á eina rósina og var hún blá með hvítum dúskum en and- litið í henni var af dökkhærðri konu með hvasst andlit. Eg hugs- aði með mér hvað það væri ein- kennilegt að svo falleg rós hefði svo Ijótt andlit. Hinn draumurinn var svona, en vinkonu mína dreymdi hann þá sömu nótt: Henni fannst ég, S (strákurinn sem ég er með) og hún vera að labba niður á rútustöð til að fylgja honum. Þegar S er að fara upp í rútuna réttir hann mér pakka og svo annan Iftinn til vinkonu minn- ar. Henni fannst hún líta undan þegar ég fékk pakkann. Svo göng- um við á leið heim til mín og á leiðinni göngum við framhjá kirkj- unni. Þá tekur hún eftir því að ég held um hægri hönd mína og spyr hún hvort eitthvað sé að og hvort hún megi ekki sjá á mér höndina. Var ég þá með trúlofunarhring og snúru. Henni fannst hún hugsa: ..Nú? Þetta skeði þá fyrir jólin, þó ég hafi ekki búist við þvf svo snemma." Hún skoðar hringinn og sér að á snúrunni eru þrír stimplar. Á fyrsta stimplinum er kveikjari, á þeim næsta er bandaríski fáninn og á þeim þriðja er nafn sem byrj- aði á S, og fannst henni það vera nafn stráksins sem ég er með, en þó voru stafirnir of margir svo það gæti staðist. Draumurinn var ekki lengri, en ég vonast eftir svari sem fyrst. Ein í Keflavík. Fyrri draumurinn boðar þér tví- mælalaust einhvern skammvinnan lasleika, sem þú getur ekki áttað þig á alveg strax. Þó skaltu engar áhyggjur hafa, því þetta verður eitthvað mjög venjulegt, og án alls efa nokkuð sem gengur mjög fljótt yfir. Síðari draumurinn virðist ekki vera fyrir neinu nema gjaforði þínu, það er að segja að eitthvað meira verði á milli ykkar S en nú er, og ætti það ekki að skaða fyrir þér að þú býrð í næsta nágrenni við kirkjuna. Að missa tennur Kæri draumráðandi! Ég ætla að biðja þig að ráða fyrir mig draum sem mig dreymdi nýlega: Mér fannst ég vera að missa tennur. Þær voru mjög langar og ekkert líkar tönnum, og var ég hágrátandi. Svo fór ég út og leit í spegil en þá er ég ekki með nein- ar tennur; uppí mér var aðeins blóð. Svo kom mamma eitthvað þarna inn í (mér fannst eins og ég væri að sýna henni eina tönn) og þá fór ég að gráta, en þá sagði hún: — Líttu aftur í spegil. Ég gerði það og var þá komin með allar tennurnar aftur en mér fannst ég sjá förin eftir tennurnar sem ég hélt mig hafa misst; ég man bara ekki hvort þær voru 3 eða 5. Svo leit ég aftur í spegilinn og var þá komin með fallegar og hvítar tennur. Ein berdreymin. Að sjá tennur detta úr munni er yfirleitt talið vera fyrir andláti vinar, en það er margt í þessum draumi sem vegur upp á móti því að við teljum þessa „standard"- ráðningu óhugsandi. Heldur vilj- um við meina að þetta sé þér fyr- ir mikilli hamingju og velgengni — og er er meira að segja ekki ósennilegt að það gæti verið um ástarævintýri að ræða.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.