Vikan


Vikan - 21.01.1971, Page 20

Vikan - 21.01.1971, Page 20
Hawaii er ekki eing Kalaupapa á Molokai er holdsveikranýlenda og mjög vel rekið bæjarfélag. Kalaupapa á Hawaii, - hljómar það ekki yndislega? En þar er einhver hræSilegasta holdsveikra nýlenda í heimi. Þar býr fólk, sem er útilokað frá heiminum, lifandi dauðir, sem hafa verið sjúkir alla ævi. Nú er reyndar hægt að stöðva sjúkdóminn, en þeir sem eru orðnir smitfríir, þora ekki að hverfa þaðan. Þeir finna visst öryggi innan nýlendunnar... Edward Bell og Minerva Siu eru ekki lengur smitberar, en þp.u kjósa að dvelja 1 Kalaupapa það sem eftir er ævinnar. Það er erfitt að liugsa sér Hawaii, þessa yndislegu para- dísareyju, í sambandi við svo hrollvekjandi sjúkdóm sem lioldsveikin er. Samt er þar að finna nýlendu, þar sem að- eins holdsveikir búa, það er Kalaupapa á eynni Molokai. Á eynni Oanu, rétt hjá Honolulu, er lika lioldsveikra- sjúkrabús, Ilale Mohalu. Þar er andrúmsloftið ekki eins þrúgandi, en saml er það algerlega einangrað frá umheim- inum. Þetta var lieimili fyrir hjúkrunarkonur i heims- styrjöldinni síðari. Nú er þetta hæli fyrir holdsveika, sem allir, að undanteknum tveim, eru smitberar. En það er sagt að nú sé Ioksins búið að vinna bug á holdsveikinni. Það er hægt að hefta útbreiðslu sjúkdóms- ins, þeir sem orðnir eru smitfríir geta nú farið burt af hælunum og lifað innan um annað fólk. Josepb Hathaway læknir við Hale Mohalu, segir að hægt sé að lækna lioldsveiki með lyfjum, þ. e. a. s. líkamlega, en sáíarlega séð er þetta fólk ólæknandi. Hrollvekjandi sár. Blaðakona segir frá: — Eg fór á stofugang með Hatliaway lækni á Hale Mohalu, klædd i hjúkrunarslopp. í forsalnum sátu fjórar konur við borð og spiluðu á spil. Ein þeirra hafði spilin í kjöllu sér, hún gat ekki haldið á þeim, hún liafði enga fingur. í einum af skuggsælu göngunum heyrðust hikandi tónar. Það var verið að spila „Lara“ á gítar, en eitthvað gekk það stirðlega. Maðurinn, sem var að reyna að spila á rafmagnsgítar, hafði lieldur enga fingur. Hjúkrunar- konan hafði lieft gítarnöglina við fingurstubb með hefti- plástri! Sárin voru hrollvekjandi. Sumir sjúklinganna höfðu aðeins þúmalstóran blett á öllum líkamanum, sem ekki var sýktur. Manni hrís hugur við að sjá þetta og það hlýt- ur að koma í huga manns spurning um hvemig sálarlíf hrærist á bak við þessi voðalegu sár. Og hvernig þetta fólk getur hlegið, með þessi afmynduðu andlit. Vöðva- byggingin er yfirleitt tærð og nefbeinin morkin. Á mörg- um hefur orðið að gera skurðaðgerðir á hálsi, þegar sárin bafa tært liann og andardráttur orðið erfiður, enda heyr- ist víða hvæsandi hljóð, þegar þessir vesalingar anda. 20 VIKAN 3- tw.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.