Vikan - 21.01.1971, Side 34
Þér sparið raeð áskriít
SKIP'HOLTI 33 - SÍMI 35320
STJÖRNUSPÁ
HRÚTS-
IVIERKIÐ
21. MARZ
20. APRÍL
Margt gerist í vikunni
og misskilningur á eft-
ir að vekja mikla
kátínu og hlátur. Þú
kynnir þér nokkur
mál sem þig hefur
lengi langað að glugga
í og verður mjög þenkj-
andi yfir ýmsu er þú
lest þér til.
NAUTS-
MERKID
21. APRIL
21. MAÍ
Þú vinnur sigur, reynd-
ar miklu meiri en þú
gerir þér grein fyrir.
Þú ert nokkuð hugsi og
svartsýnn á málefni
þín, en það rætist úr
fyrir þér von bráðar.
Þú gerir góð kaup.
TVIBURA-
MERKIÐ
22. MAI —
21. JÚNÍ
Þú hefur komizt að
einhverju sem veldur
þér miklum heilabrot-
um og nokkrum áhyggj-
um. Þú skalt hrista af
þér alla ólund, tíminn
bætir allt. Heillatala er
þrír.
KRABBA-
MERKIÐ
22. JÚNÍ —
23. JÚLÍ
Þú ert ekkert störfum
hlaðinn og þess vegna
skaltu létta undir með
kunningja þínum sem á
mjög annríkt. Þú kemst
í góð sambönd, vegna
framgöngu þinnar í
ákveðnu máli.
LJONS-
MERKIÐ
24. JULI-
24. ÁGÚSl
Þú þarft í mörg horn
að líta og því miður
geta fáir létt undir með
þér, en huggaðu þig við
að þessar annir eru
mjög tímabundnar.
Ekki selja neitt, það er
ekki rétti tíminn til
þess.
MEYJAR-
MERKIÐ
24. ÁGÚST -
23. SEPT.
Þú færð skilaboð sem
valda þér nokkrum
snúningum. Þú neitar
ákveðnum manni um
gistingu og hann tekur
það iUa upp. Þú þarft
að vera ákveðinn, ef þú
vilt ekki iáta troða á
þér.
VOGAR-
MERKIÐ
24. SEPT. -
23. OKT.
Sambýlismaður þinn og
þú leggið saman í
glæfralegt en óskemmti-
legt fyrirtæki. Þú hef-
ur ekki kynnt þér nógu
vel hluti sem standa
nærri þér og þú um-
gengst daglega, dragðu
það ekki lengur.
DREKA-
MERKXÐ
24. OKT.
22. NÓV.
Ef þú vilt að áætlanir
þínar standist, verðurðu
líka að vinna markvisst
að því, þar þýða ekki
nein látalæti. Þú gerir
ættingjum þínum
greiða, en þeir launa
þér ekki sem skyldi.
BOGMANNS-
MERKIÐ
23. NOV.
21. DES.
Þú færð skemmtilegan
mann í heimsókn ein-
hvern daginn, sem þú
ættir að umgangast
meira. Þú hefur óþægi-
legan grun, en láttu
hann samt ekki draga
úr þér kjarkinn. Þú
ferð í leikhús.
STEIN-
GEITAR-
MERKIÐ
22. DES. —
20. JAN.
Það verður breyting til
batnaðar á högum þín-
um, en því fylgir líka
meiri ábyrgð. Þú átt
þægilega daga í vænd-
um, og ert mjög vel
hvíldur og hæfur til að
njóta lífsins.
VATNSBERA
MERKIÐ
21. JAN. —
19. FEB.
Umhverfi þitt verður
mjög róstusamt, en það
er samt merkilegt
hverju þú getur komið
í verk. Dýrt tæki, sem
þú notar mikið, bregzt
þér. Komdu til síns
heima óskilahlutnum
sem hjá þér er.
FISKA-
MERKIÐ
20. FEB. —
20. MARZ
Maður nokkur gefur
þér nánar gætur, hann
vill þér ekki vel, en er
ekki samt líklegur til
að skaða þig. Ef fjallio
vill ekki koma til Mú-
hameðs, þá verður Mú-
hameð að koma til
fjallsins.