Vikan


Vikan - 11.02.1971, Qupperneq 6

Vikan - 11.02.1971, Qupperneq 6
ICJÓLAR-Efr/y, Ul\ZlST M^O t>|^, "O/ ENSKIR MAXI-KJOLAR GLÆSILEGT ÚRVAL AF FALLEGUM KJÖLEFNUM KJÖRGARÐIIB VEFNAÐARVÖRUDEILD SfMI 18646 dreymdi Barneignir Kaeri draumráðandi! Mig langar til að biðja þig að ráða fyrir mig draum, en mig þetta fyrir skömmu. Draumurinn var svona: Strákur, sem við skulum kalla X og vinkona mín, Z, sem er hrif- in af honum, komu til min, og sagðist X vera búinn að eignast tvíbura með stelpu sem við skulum kalla Y. En Z var ófrísk eftir X og sagðist hann ætla að taka hana að sér, því hann væri hrifnari af henni heldur en Y. Eg spurði hann hvort honum þætti það ekki dýrt að borga með þremur börnum, en X sagði að hann ætlaði að biðja Y um að gefa honum tvíburana eftir, en það var stúlka og dreng- ur. Z átti aftur á móti dreng. Draumurinn varð ekki lengri. Með fyrirfram þakklæti, vonast éftir svari fljótlega. Virðingarfyllst, K.K. Það er mjög erfitt að ráða drauma þegar sá sem segir frá kemur jafn lítið við sögu og hér. En helzt má af þessum draumi ráða að þetta sé þessum vini þín- um fyrir miklu láni og er ekki loku fyrir það skotið að þú komir til með að eiga einhvern þátt í því. Hvað þær Y og Z hafa með þennan draum að gera er alveg óútséð. Gullarmband Kæri Draumráðandi! Mér fannst ég vera stödd hjá húsi í kaupstaðnum þar sem ág er fædd og uppalin, þó ég búi þar ekki nú. Ég kom út úr húsinu og sé óljóst girðingu sem Ijós eru hengd á, en ég veiti því ekki mikla athygli, því þegar ég lít niður sé ég liggja þar forkunnar- fagurt gullarmband. Ég krýp nið- ur og ætla að taka það en í því er það dregið aftur fyrir mig, og finnst mér það vera gert af lítilli stúlku. í draumnum geri ég mér grein fyrir að hún er að stela því, en skipti mér samt ekki af því, þar sem ég veit að ég get látið eig- andann vita; armbandið taldi ég auðþekkt á brotinni læsingu. í því veiti ég umhverfinu at- hygli og sé þá ekki neitt, en í kringum mig og telpuna er myrk- ur. A girðingunni var þó eitt skært Ijós sem lýsti aðallega á lítinn blett á jörðinni. Fannst mér lítið gagn vera í þessu Ijósi sem lýsti ekkert í kringum sig. Þessi draumur er mjög erfiður, en sannast sagna teljum við hann vera fyrir því að innan skamms lendir þú í einhverri hættu, mjög lítilvægri þó; sennilegast^einhvers- konar öfund eða illgirni. En áður en öli kurl eru komin til grafar tekst þér að Ijóstra einhverju upp — sem okkur er ómögulegt að segja fyrir um hvað er, en vr'st er að þú munt hljóta heiður af. Barn vinkonunnar Kæri Draumráðandi! Mig langar að biðja þig að ráða fyrir mig eftirfarandi draum: • Ég var hjá vinkonu minni sem heitir T. Við vorum í herberginu hennar þegar hún sagði mér að hún væri búin að eignast strák. Faðir barnsins, strákurinn sem T er með, heitir S og var þar líka. Hann sagði að bezt væri að skíra strákinn Gunnar Gunnarsson. Svo reiddist vinkona mín strákn- um og við fórum út. Þá var ég með einhverjum þremur stelpum og við mættum S. Hann tók í mig og annað hvort beit ég hann eða kleip. Þá hljóp hann niður að sundlaug og ég á eftir. Ég bað hann að fyrirgefa mér; ég hefði ekki ætlað að gera þetta. Hann fyrirgaf mér og eftir svolitla stund spurði hann hvort ég væri enn reið við sig. ,,Nei", svaraði ég og þá hringdi vekjaraklukkan. FOÞórshöfn. Innan skamms lendir þú í ein- hverjum deilum eða mótlæti og það alvarlegri en þú hefur lent i hingað til. Mun ganga á ýmsu og á tímabili verður ekki séð annað en að þú ætlir að fara holloka i þessari baráttu. En fyrir heppni tekst þér að vinna sigur á erfið- leikum þínum — og erum við ekki frá því að vinkona þín og strák- urinn sem hún er með komi þér að einhverju gagni. Annar möguleiki er sá að þú lendir í útistöðum við þau . . . 6 VIKAN 6- tw.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.