Vikan


Vikan - 11.02.1971, Qupperneq 8

Vikan - 11.02.1971, Qupperneq 8
ROM' Hér er önnur rómantísk kvikmyndaleikkona, Margot Kidder: „Ekkert er yndislegra en að geta grátið hressilega yfir ástarævintýri einhvers annars.“ Sagan „Ástarsaga“ eftir Erich Segal flæðir nú yfir lieiminn, og nýlega var frumsýnd kvikmynd gerð eftir sögunni. Á þremur dögum borgaði myndin all- an framleiðslukostnað. Aðalhlutverkið leikur ein skærasta nýja stjarnan, Ali MacGraw. Hér segir frá myndinni, sögunni og Ali sjálfri, en hún er álitin vera tákn þess, að klámið sé á undanhaldi og rómantíkin tekin við. í meira en heilt ár hefur verið efst á bandaríska listan- um yfir metsölubækur sagan „Love Story“ (Ástarsaga) eft- ir Erich Segal. Er áætlað að um það bil 6 milljón bækur hafi selzt til þessa dags, og ekkert lát virðist á sölunni, en nú er um það bil eitt ár síðan bókin fyrst kom út í Bandaríkjunum. Kvikmynd eftir sögunni var frumsýnd á jóladag og af þeim 165 kvikmyndahúsum, sem sýndu myndina þann dag, skýrðu 159 þeirra frá því, að aldrei hafi jafn margir sótt sýningar á einum degi. Á þrem- ur dögum varð gróði af mynd- inni 2.5 milljónir dollara (2200 milljónir ísl.) og er það tölu- vert meira en framleiðslukostn- aður hennar var. Aðalhlutverkin eru í hönd- um tveggja ungra leikara, sem ekki höfðu áður getið sér mik- inn orðstír, þeirra Ali Mac- Graw og Ryan O'Neal. Ali 8 VIKAN «• tw. hafði að vísu leikið hlutverk í myndinni „Goodbye Colum- bus“ og hlotið góðar undirtekt- ir, en héðan í frá þarf hvorugt þeirra að kvíða framtíðinni. Allir gagnrýnendur eru sam- mála um að ekki einungis hafi Ryan sýnt frábæran leik í myndinni, heldur hafi Ali og gert kraftaverk fyrir Holly- wood. Hún er bergmál þess tíma þegar fólk leit á Holly- wood sem Mekka — og þess tíma þegar Hollywood var Mekka kvikmyndaiðnaðarins. í augum kvikmyndaframleiðenda er hún stúlkan sem gerði „Ást- arsögu" að veruleika eftir að 6 stærstu kvikmyndafyrirtæk- in í Bandaríkjunum höfðu neit- að að gera kvikmynd eftir sög- unni. Sjálf segist Ali hafa hrif- izt af handritinu fyrir hrein- leika og heiðarleika þess í með- förum tilfinninga. Og Ali er í dag heilmikið í áttina til þess sem stjörnur fyrri tíma voru; hús í Beverly Hills, gift for- stjóra kvikmyndafyrirtækis — og miklir, já, mjög miklir, pen- ingar í vændum. Ali þrætir fyrir það allt sam- Ali MacGraw 4 an „Ég er ekki nægilega hungr- uð til að vera stjarna," segir hún. „Ég er ekki einu sinni nægilega hungruð til að vera leikkona." En þess gerist heldur ekki þörf. Hún þarf einungis að koma fram í myndinni og með það í huga kaupir fólk miða — hvað eftir annað. Ef hún væri analýséruð líkamlega væri fátt sem teldist mjög óvenjulegt — en oft hefur það verið skilyrði fyrir því að fólk geti orðið stjörnur. En þegar öll hennar venjulegheit eru sett saman verður hún óvenjuleg. Stjarna. Þannig er hún ákaflega eggj- andi og fellur sem sérlega sniðin inn í rómantík Amerí- kana; músík á plötuspilara og ljóð lesin upphátt. . . . Þeir segja líka um Ali Mac- Graw, að hún sé stúlkan sem alla drengi langi til að taka með sér heim þó foreldrar þeirra séu heima við — en sér- lega þó ef þeir eru ekki heima. Ali og einar 5 eða 6 aðrar fallegar stúlkur, eru fulltrúar þess sem nú hefur á ný innreið sína í bandaríska kvikmynda- heiminn. Það er ferskleiki, rómantík og viðkvæmni 4. og 5. tugs aldarinnar, þegar öll fmlskyldan fór saman í bíó, þegar kvikmyndir sögðu fal- legar sögur, þegar maður gleymdi sér í hringiðu fanta- síunnar og þegar maður fékk tár í augun við að horfa á loka- atriði myndarinnar. Áður en yfir lýkur, er áætlað að meira græðist á myndinni en bæði „The Graduate" og „Easy Rid- er“ — og meira að segja gæti hún slagað hátt upp í gróðann af „Sound of Music“. Við tölum hér um að róman- Mkin hafi snúið aftur, en marg- ir eru þeirrar skoðunar að hún hafi aldrei farið neitt. Einn beirra er Lew Wasserman, for- seti MCA: „Áhorfendurnir, sem við vorum hættir að reikna með, voru alltaf þarna. Ég held ekki, að rómantíkin hafi farið neitt. Það vorum við sem fór- um.“ En hvað sem því líður þá er ..Ástarsaga“ fyrst og fremst ástarsaga. Og eftir því sem

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.