Vikan


Vikan - 11.02.1971, Side 11

Vikan - 11.02.1971, Side 11
ur eru það fallegar ekkjur yf- ir fimmtugt. — Nú já, sagði ég. Nú fór að renna upp fyrir mér ljós. — Yfir fimmtugt, taktu eft- ir því, hélt pabbi áfram. Nú var hann farinn að stríða mömmu, þó hann beindi orð- um sínum til mín. — Afi er ekki einn af þeim sem eltast við ungar stúlkur. Hann veit hvað til síns friðar heyrir í ástarmálum. Hann er heldur ekki einn af þessum, sem lög- reglan finnur lík af ný tryggð- um miðaldra konum hjá, þess- um sem maður les um í ame- rískum sunnudagsblöðum. — Þetta er nægileg skýring, góði minn, sagði mamma. Eftir þessar umræður leitaði ég á fund afa, til að reyna að skilja viðhorf hans betur. Við ræddum um margt meðan hann dreypti á fjólurauða vín- inu sínu og ruggaði sér í ruggu- stólnum. Loks komum við að efninu. — Það er þannig að ég elska konur í fullum blóma lífsins, sagði afi til skýringar. — Fyrirferðarmiklar? Ekki fyrirferðarmiklar, svaraði aíi. — Fullþroskaðar! Það er eins og þegar maður heldur á . rós í sólskininu. Afi lyfti glasinu sínu upp að raf- magnsljósinu. — Ekkert meira, skilurðu? — Já, ekkert meira, sagði ég til samþykkis, þó ég vissi ekki nákvæmlega hvað það gæti verið meira. — Um fimmtugt er konan fullkomin, hélt afi áfram. í mínum augum þurfti að bíða hræðilega lengi eftir því, en ég sagði ekkert, þar sem ég var ánægður með að fá þessa fræðslu. — Fjörutíu og fimm ára er hún ekki enn orðin fullþrosk- uð. Ífig er auðvitað að tala um hjartað, sálina, hugann! Eftir fimmtugt — við skulum segja 51 árs — þá fölnar hún. Skil- urðu? Framhad á bls. 45. e. tbi. VIKAN 11

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.