Vikan


Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 15

Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 15
Gengiskan og yngri bró'ðir hans Kasar honum eftirför og drápu hann með bogaskotum. Nú var Mongólum svo farið að þeir mátu afrek eftir því hversu mikil illvirki þau voru, og þegar bróðurmorðið spurðist út meðal ættbálkanna á steppunni, þótti mönnum sýnt að þar væri á ferð mikill efnisdrengur. Það sýndi líka Ijóslega þau skapgerðarein- . kenni, sem áttu drjúgan þátt í að honum tókst að vinna heims- ríki sitt. Þess konar verk vinnur sá einn, sem lifir fyrir valdið og beitingu þess. Það var ekki unnið í blindri heift, heldur af köldu blóði. Þannig bar Gengiskan sig alltaf að, og þess vegna mistókst honum aldrei, jafnvel ekki þegar hann átti við þrefalt ofurefli að etja. Bróðurmorðið sýndi auk heldur ruddalega viljafestu manns, sem engan eða ekkert lét standa í vegi fyrir fyrirætlunum sín- um. Um iðrun af hans hálfu var að sjálfsögðu ekki að ræða; hann sem taldi sig útvalinn af Himninum hlaut semsé að vera hafinn yfir öll siðalögmál. Eftir því var hegðun hans allt lífið. Hann leit á það sem sjálf- sagðan hlut að strádrepa fólk í milljónatali til að gera valda- drauma sína að veruleika. Hörmungar annarra, hverjir sem þeir voru, ollu honum aldrei minnstu áhyggjum. Fáum árum síðar hikaði hann ekki við að skilja Borte, eftirlætiskonu sína, varnar- lausa eftir í höndum árásarmanna af fjandsamlegum þjóðflokki, þar eð hann með því gat bjargað eigin skinni. Borte þessi var prinsessa með hrafnsvart hár, fílabeinshvíta húð og blóðrauðar varir, dóttir auðugs höfðingja er ríkti yfir einum nágrannaþjóðflokknum. Vinátta var milli hans og föður Gengiskans, svo að þegar í bernsku var stúlkan heitbundin hon- um. Brúðkaupið fór fram þegar Gengiskan var tvítugur. Þá átti hann ekki aðrar eignir en átta hross og ekki vel fram gengin, og á einu þeirra sótti hann heitmeyna. Brúðkaupið sjálft var að mongólskum sið hroðalegt fyllerí, sem stóð samfleytt í þrjá sól- arhringa. Til drykkjar var einkum kúmiss, meramjólk sem var sýrð og gerjuð unz hún varð þræláfeng. Óteljandi krof af hross- um og sauðum voru soðin í tröllauknum kötlum, svo að hver gat étið eins og hann vildi. Þá var heimanmundur brúðarinnar ekkert slor: yfirhöfn úr svörtum safalafeldum af beztu tegund. Aðeins konungar höfðu slíkar kápur yfir sér. Þessi kápa breytti Gengiskan í einni svip- an úr armingja í stórríkan mann. Þeim mun furðulegra er að brúðguminn fargaði þessum dýrgrip í næstu svipan. Hann gaf saf- alakápuna þegar að brúðkaupinu afstöðnu voldugum þjóðflokks- höfðingja er Tókrúll Kan var nefndur. Sá varð harla léttbrýnn við gjöfina og lofaði að reynast gjafaranum vinur í stað, hvenær sem honum lægi lítið á. Verðmæti safalans átti eftir að skila sér með vöxtum og vaxta- vöxtum. Hér kom fram ennþá einn þeirra eiginleika, sem dæmi- gerðir voru fyrir Gengiskan: að leggja allt undir í einu. En við slík tækifæri naut hann skarprar mannþekkingar, sem sjaldan brást. Hann veðjaði alltaf á réttu hestana. Eftir þetta hélt Gengiskan heimleiðis til að njóta hveitibrauðs- daganna. Alla brúðkaupsnóttina virti hann fyrr sér fíngert nef og ávalar mjaðmir Borte, en þetta tvennt var mesta prýði hverr- ar konu eftir mongólskum smekk. Þessari hamingju lauk þó heldur hastarlega með ónotalegu rúmruski. Það gerðu riddarar af fjandsamlegum þjóðflokki, sem bæði öfunduðu Gengiskan af kvonfanginu og bandalaginu við Tókrúl Kan. Gengiskan brá við hart og komst ásamt móður sinni, bræðrum og tveimur þjónum undan á flótta upp í fjöll. Borte skildi hann hins vegar eftir allsbera inni í tjaldi, reyndi ekki einu sinni að bjarga henni, þótt svo að hann hefði alla nóttina ekki getað haft augun af henni af aðdáun. Tilfinningar urðu honum ekki til traf- ala, hvorki að því sinni eða í annan tíma, og riddaraleg kurteisi við kvenfólk var óþekkt þarna austur á gresjunum. Gengiskan var vel ljóst að óvinirnir myndu drepa hvern þann karlmann er þeir næðu, en Borte hina fögru var engin hætta á að þeir dræpu. Þeir myndu taka hana til fanga, og það hlaut að tefja þá í að reka flótta þeirra, sem undan komust. Þetta reyndist rétt reiknað. Gengiskan slapp með lífi undan. Borte var hernumin og hlaut annan brúðguma þegar þá sömu nótt. Framhald á bls. 37 Ríki Gengiskans og eftirmanna hans, hið víðlendasta sem nokkurn tíma hafði verið til. Það náði frá Japans- hafi vestur í Mið-Evrópu, frá freð- mýrum Síberíu suður að Arabíuhafi. Mongólar flytja lík Gengiskans heim líktust honum í að honum látnum. Á leiðinni drápu flestu. þeir hvert kvikindi, sem þeir sáu, bæði menn og dýr, en það var hinzta ósk fjöldamorðingjans mikla. 6 tbl VIKAN 15

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.