Vikan


Vikan - 11.02.1971, Qupperneq 16

Vikan - 11.02.1971, Qupperneq 16
PAPILLON Maðurinn sem slapp frá Djöflaey Skömmu síðar er Papillon fluttur til Djöflaeyjar. Þrátt fyrir margar misheppnaðar flóttatilraunir er kjarkur hans óbugaður enn. Hann verður sér fljótt úti um nýja félaga: Syl- vain og Kínverja að nafni Chang. Þeir Papillon og Syl- vain ákveða að gera enn eina flóttatilraun, og Chang lofar að aðstoða þá, þótt sjálfur vilji hann ekki flýja. Þeir binda saman sekki fulla af þurrkuð- um kókoshnetum og hyggjast láta vind og straum hera sig á þeim til strandar meginlands- ins. Þeir sleppa slysalaust frá eynni, og síðan gefum við Pa- pillon sjálfum orðið: Sólin brennir handleggi mína og fótleggi hlífðarlaust. And- litið er eins og verið sé að steikja það í eldi. Það verður bara verra ef ég væti það, hugsa ég, því að það þornar jafnskjótt og þá verður svið- inn ennþá sárari. Það hefur dregið til muna úr vindinum, og þótt ferðin verði þægilegri af þeim sökum, af því að nú eru öldurnar lægri, þá miðar okkur hægar. Þá vil ég heldur snarpan vind og úf- inn sjó. Ég hef svo hryllilegan sina- drátt í hægra fæti að ég æpi. Nú missi ég aldrei sjónar á Sylvain, og hann hlýtur að sjá mig jafnvel. Hann hefur farið úr skyrtunni og er nú nakinn fyrir ofan mitti. Hann er yfir þrjú hundruð metra á undan mér, og virðist róa með hönd- unum. Ég gæti ímyndað mér að hann sé að reyna að hægja á sér, til að ég nái honum. Ég leggst flatur á pokana, sting höndunum í sjóinn og ræ. Sé hann að reyna að hemla, ætt- um við að geta látið draga saman með okkur á þennan hátt. Eftir nokkra hríð hætti ég að róa með höndunum. Ég finn til þreytu. Ég ákveð að þorða og reyna að snúa flekanum við. Maturinn og leðursekkurinn með ferska vatninu er undir honum. Ég er hungraður og þyrstur. Varir mínar eru þeg- ar sprungnar, mig sviður í þær. Bezta ráðið til að snúa pokunum við er að hanga utan í þeim og snúa sér á móti öld- unum, og gera sundtök með fótunum þegar þær lyfta und- ir flekann. Eftir fimm tilraun- ir tekst mér að snúa flekanum við. Ég er þá steinuppgefinn og get með naumindum komizt upp á pokana aftur. Sólin er komin niður að sjón- deildarhring, og áður en varir aðferð við að bjóða góða nótt. Hann er alltaf jafnlangt frá mér. Ég sit með útrétta fætur. Ég hef undið ullarjakkann minn eins og mögulegt var og fer nú í hann. Þess háttar flíkur halda á manni hita, jafnvel þegar þær eru blautar. Og jafnskjótt og sólin er horfin finn ég að kólnar. Það hvessir. Skýin í vestri eru enn ljósrauð. Að öðru leyti ríkir hálfrökkur, sem verður óðum myrkara. f austri, þaðan sem vindurinn kemur, eru engin ský. Það er því engin hætta á regni eins og er. Má ekki sofna. Ég hugsa um alls ekkert, nema að halda mér föstum og bleyta mig ekki að nauðsynja- lausu. Ég spyr sjálfan mig hvort rétt sé að binda sig við pokana, ef þreytan skyldi sigra mig, eða fylgir því of mikil áhætta, miðað við fengna reynslu? Ég hætti loks á að festa mig við pokana með keðju, og verð við það örugg- ari. Áður var ég dauðhræddur um að sofna og detta af flek- ■ anum. Já, vindurinn færist í auk- ana og öldurnar líka. Flekinn reynist fara ágætlega í sjó. Það er koldimmt. Himinninn er Ihinn grÍN ogr tvrir Kínverjjar mér samferða til frelsiiins það lítur út eins og andlit. Klukkan hlýtur sem sagt að vera orðin yfir tíu. Nóttin verður æ ljósari. Þeim mun hærra sem máninn rís, þeim mun bjartar skín hann. Öld- urnar eru silfurgljáandi, og hið sérkennilega ljósvarp frá þeim blindar mig. Það er ómögulegt að stilla sig um að horfa á þetta silfraða endurvarp, en það stingur mig í augun, sem þegar eru nógu þreytt fyrir af völdum sólar og saltvatns. Ég reyni að telja mér trú um að ég geri of mikið úr þessu. Ég vil ekki hætta að virða fyrir mér það sem fyrir augun ber, og keðjureyki þrjár sígarettur. Flekinn er eins og hann á að vera. Ég get ekki setið með út- rétta fætur nema stutta stund í einu, því að sú stelling kem- ur sinadrættinum af stað. Öldurnar skella oft yfir flek- ann og rennvæta mig upp að mitti. Fyrir ofan mitti er ég þurr. Mig svíður meir og meir í augun. Ég móki. Öðru hvoru rennur mér alveg í brjóst. „Þú mátt ekki sofna.“ Það er auð- velt að segja, en ég get ekki haldið mér uppi lengur. Fjand- inn sjálfur! É'g berst af öllu afli gegn værðinni. Og hverju sinni er ég vakna til veruleik- arðii Ég geri nokkur krossmörk með fingrinum á vöðvann þar sem sinadrátturinn er, en amma mín gamla hafði sagt að það væri óbrigðult ráð gegn þess konar krampa. En ráð þeirrar öldnu heiðurskonu dugar skammt að þessu sinni. Sóiin er lágt á lofti á vesturhimnin- um. Klukkan er sennilega fjögur síðdegis. Við berumst fyrir fjórðu aðfallsöldunni frá því að við lögðum af stað. Þessi alda virðist bera okkur hraðar nær ströndinni en þær fyrri. 16 VIKAN 6- «*• verður hún horfin. Þá hlýtur klukkan að vera nálægt sex. Vona að nóttin verði ekki of erfið, því að ég finn að kraft- arnir þverra fljótt ef ég er langtímum saman í sjó. Ég' hakka í mig tvo bita af kókoskjöti og renni þeim niður með ærlegum sopa úr leður- pokanum. Mettur og ánægður læt ég vindinn þurrka hend- urnar. Síðan tek ég fram sígar- ettu og reyki sældarlega. Áður en myrkrið skellur á veifum við Sylvain hvor til annars með vasaklútunum; það er okkar stráður milljónum stjarna, og Suðurkrossinn skín skærast. Ég sé ekki félaga minn. Þessi nótt verður mér mikilvæg, því að ef heppnin er með og vind- urinn helzt, ættum við að vera komnir langt áleiðis með morgninum. Þeim mun lengra sem líður á nóttina, þeim mun snarpari verður blásturinn. Tunglið rís hægt upp fyrir hafsrönd, það slær á það rauðbrúnum blæ. Það er geysistórt, og ég sé greinilega á því dökku flekk- ina, sem gera að verkum að ans er sem nál sé stungið í heil- ann. Hræðileg óró hefur gripið mig, og ég einbeiti mér að því. Sofna ég? Og falli ég í sjóinn, vekur kuldinn mig þá? Ég gerði rétt í því að binda mig við keðjustúfinn. Ég má ekki missa af þessum tveimur sekkj- um, þeir eru mitt líf. En svo illa fer varla að ég vakni ekki ef ég hrapa út af. í nokkrar mínútur hef ég verið geenblautur af sjó. Upp- reisnargjörn alda, sem ekki vildi fylgja reglubundinni slóð

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.