Vikan


Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 23

Vikan - 11.02.1971, Blaðsíða 23
Ingigerður hjálpaði mcr. Mún borgaði bróðurpartinn aí útgjölflum okkar með peningunum YÐAR . . . Þetta var allt saman satt, hugs- aði Mikaela biturlega með sjálfri sér. — Kæra Mikaela, sagði Þllen eilítið áhyggjufull. — Mér bykir það leitt, en ég get ekki verið hér hjá þér í dag. Ég þarf að heim- saekja móður Börjes. Hún dvelst á einkahæli hér rétt utan við borg- ina. Hún er svolítið ... ja, sér á parti. Hún bíður alltaf eftir, að ég komi í hverri viku og ég get því ómögulega svikið hana. En Lajla kíkir áreiðanlega inn til þín til að vita, hvernig þér líður. Niðri í anddyrinu setti Ellen á sig nýjan sumarhatt. Hún var gremjuleg á svip og virtist ekki vera nægilega ánægð með hann. Hún hefði kannski átt að kaupa sér öðruvísi hatt. Jæja, það var of seint að sjá það núna. Segðu Maríu, að frú Rickard- son komi ef til vill í hádegisverð, Anna, sagði hún við vinnukonuna. — En henni er alveg óhætt að hafa biximat og egg fyrir því. Og segðu henni að skera ekki of mikið af rúllutertunni með kaffinu. Og settu ný blóm til að lífga upp stofurnar. Nils getur hjálpað þér við það. — Já, frú, sagði Anna, hneigði sig og roðnaði. Ellen stundi og teygði sig eft-r veskinu og hönzkunum. Þessar heimsóknir til Helgu tengdamóður voru meira en lítið þreytandi. Og aldrei líkaði gömlu konunni, það sem hún færði henni hverju sinni En það var skylda Ellenar að um- bera hana og leggja þetta á sig. Anna lokaði útihurðinni á eftir húsmóður sinni og gekk að for- stofuglugganum til að horfa á eftir henni. — Guð minn góður, en sá hatt- ur, hugsaði Anna. — Hann hefði farið mér vel, en ekki konu, sem var orðin 46 ára gömul. Hún varð að taka tillit til aldurs síns. Það var ekkert réttlæti til í heiminum, fannst henni. Hún hélt áfram að hugsa um þetta, á meðan hún tók vasana úr stofunum til að skipta um blóm í þeim. Að hugsa sér. Þarna uppi lá frönken Linder og snæddi morg- unverð í rúminu. Hún gat gert allt sem hún óskaði sér. En sjálf varð Anna að þræla og púla fyrir brýn- ustu lífsnauðsynjum. Þær voru jafngamlar hún og þessi fína frök- en þarna uppi. Og Anna var ekki síður falleg en hún, þótt hún segði sjálf frá. Hún leit andartak í speg- ilinn og kastaði til höfðinu. Von- andi þyrfti hún ekki að vera vinnu- kona til eilífðarnóns. Nils garð- yrkjumaður var að minnsta kosti vitlaus f hana. Hún gekk út á svalirnar og veif- aði honum og beið síðan, þar til hann kom út úr gróðurhúsinu. — Frúin sagði, að þú ættir að velja blóm í vasana. Nei, láttu mig vera! María gæti séð til okkar. — Ur glugganum, sem snýr f hina áttina, eða hvað? spurði Nils og hló glettnislega. — Vertu ekki svona snúðug við mig. Hvenær áttu frí næst? — Ekki fyrr en eftir hádegi á miðvikudaginn f næstu viku, og þú veizt það vel. María fær sunnu- dagsfrí næst. — Þú gætir haft miklu meiri frí- tíma, ef þú fengir þér aðra vinnu, til dæmis í verksmiðju. Þá gætum við hitzt annan hvern dag. Nils lagði handlegginn um Onnu og hún þrýsti kinninni að öxl honum. — Þú ert ekki nógu hygginn, sagði hún og stundi eilítið. — Ég yrði rekin að heiman, ef ég væri með þér annan hvern dag. Þú veizt hvað hann pabbi er strangur. En það er sannarlega ekki réttlátt, ef maður hugsar um Ingvar og þessa unnustu hans. Þau geta gift sig hvenær sem þeim sýnist. — Fátækt fólk hefur ekkert að gera með að gifta sig, sagði Nils og ýtti henni ögn frá sér. — Líttu á foreldra þína og mína. Strit og puð og stríð og mæða frá morgm til kvölds. Og samt duga pening- arnir aldrei. Heldurðu, að mig langi til að gera þig að útslitinni kerlingu langt um aldur fram. Þú, sem ert svo ung og blómleg. Anna hló. Þetta var hverju orði sannara. Líf fátæklinganna var erfitt og kjör þeirra óblíð. Hún vissi það bezt af eigin reynslu. Hún var elzt tíu systkina. Hún hafði heyrt sagt, að móðir hennar hefði verið fallegasta stúlkan í sinni sveit, þegar hún var ung. Nú leit hún út eins og sextug kerling, þótt hún væri ekki nema rétt rúm- lega fertug. Og samt voru augu hennar enn blíðleg og falleg og þegar hún hló, þá virtist hún enn ung og hamingjusöm, þrátt fyrir allt. Og hvaða annað líf var hugs- anlegt fyrir konu? Maður og börn og fleiri börn, vinna og aftur vinna og áhyggjur og meiri áhyggjur, ást og hatur. Þetta var það, sem beið þeirra kvenna, sem vildu lifa lífinu. Og þegar maður elskaði einhvern, á sama hátt og hún elskaði Nils, þá var erfiðið kannski þess virði að taka það á sig? En hann leit allt öðruvísi á málið, og við því var ekkert að gera. Anna gekk á eftir honum inn í gróðurhúsið til að sækja blómin. Börje Rickardson opnaði sjálfur útidyrnar á húsi sínu. Hann kærði sig ekki um að hringja bjöllinn! að þessu sinni, eins og hann var þó vanur að gera. Ellen hlaut að vera farin. Hann beit á vör og lagði var- lega við hlustirnar til að aðgæta, hvort nokkur væri i stofunum Nei, það var allt hljótt. Hann gekk út að glugganum á dagstofunni og sá Önnu á tali við Nils garðyrkju- mann úti í garði. Hann var jú ráð- inn hér til að vinna við garðyrkju en ekki til að dufla við vinnukon- una. Hann sá ekki betur en þau væru í faðmlögum þarna úti. Það var öruggt merki þess, að Ellen var ekki heima. Börje Rickardson hló með sjálfum sér. Hann hugsaði stöðugt um Mika- elu. Henni hafði auðvitað brugðið enn meira en honum. Að minnsta kosti hafði hann ekki fallið í yfir- lið eins og hún. Honum hafði reynzt auðvelt að leyna óróleika sínum í gærkvöldi. En öllu verra hafði verið að látast sofna eins og venjulega. Hann gat alls ekki sofn- að. Heilinn vann af fullum krafti fram á rauðanótt til þess að reyna að finna beztu lausnina á þessu óvænta vandamáli. En hann hafði svosem lent í erf- iðri aðstöðu fyrr og stundum furð- aði hann sig í rauninni á bví, hversu lengi honum hefði tekizt að halda þessu öllu levndu fyrir Ell- en. En hann hafði alltaf verið afar varkár, og Ellen var alvea laus við að vera tortryggin. Hún hafði verið honum góð eiginkona allt frá fyrstu tíð. Og hann hafði verið góður eiginmaður og heimilisfað- Framhald á bls. 44. 6. tbí. YIKAN 23

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.