Vikan


Vikan - 11.02.1971, Síða 25

Vikan - 11.02.1971, Síða 25
hafi yfirstandandi aldar. Allir þeir sem hunda áttu eða vildu eiga stofnuðu lil samtaka og sóru að láta aldrei hlut sinn fyrir rangsleitni löggjafans, en verja hunda sína með ofbeldi og falla ógildir ásamt þeim að fornum sið, lieldur en að hopa á hæli. í skammdeginu, einkum um jólaleyt- ið, jjegar allur fjandinn fer á kreik að ævafornri lands- venju, gengu hinar villtustu gróusögur um jættbýlið við flóann. Meðal hundamanna var jiví hvislað, að lögregl- an ætlaði að hafa svipaðan hátt á og Heródes forðum um svipað leyli árs, greiða atlögu að hundaheimilum horg- arinnar einhvern tíma að óvörum og myrða á einni nótlu livern rakka milli Straumsvíkur og Kollafjarðar. Bréfadálkur stærsta blaðs þjóðarinnar var dag hvern full- ur af mótmælum hundaeigenda, sem sumir kváðust held- ur láta hörn sín en hunda, ef þeir mættu velja. Á jætta lagið höfðu byltingarsnatarnir gengið. Þeir höfðu í kyrrþey sett sig í sandjand við forustumenn hunda- manna og sagt sem svo: Ef þið gangið í lið með okkur megið þið treysta því, að ekki verður skert hár á skrokki nokkurs hunds hér í bæ, allavega ekki jjeirra sem fer- fættir kallast. Og ]Dar með hafði byltingin tryggt sér yfir- drifinn liðskost. tsland er, hélt skýrslan áfram, orðin önnur Albanía, og er ])essi þó verri en hin fyrri. Vitur maður hcfur sagt, að þetta land sé eins og skammbyssa, sem miðað sé á engilsaxneskar þjóðir. Verði ekki gripið lil hressilegra gagnráðstafana fer si'i skammhyssa að spúa yfir okkur guð veit hverju hvern næsta daginn. Það næsta gæti orð- ið nýlendustríð gegn Dönum á Grænlandi, og við höfum nú nóg af slíku fyrir þar sem Porlúgalar eru með öll sín vandræði i Angólu og þar. Að endingu legg ég til að áætl- un Loki verði fiamkvæmd, lauk aðgerðaforinginn skrifi sinu i stíl við Kató majór. Who in hell is Loki? urraði forsetinn, loðnar brún- ir hans í álika ásigkomulagi og hjá Agli við hirð Aðal- steins könungs. Eins konar hliðstæða Prómeþeifs í goðafræði Skan- dínava, herra forseti, sagði yfirmaður CIA spaklega. Forsetinn óð um eins og dýr i húri, leit á úrið. Djöfuls- ins ástand, nú var Dísa rétt að byrja í sjónvarpinu. En liann varð víst að missa af þeirri ánægju, nú varð að bregða skjólt við, ef ])essir fjandans Islendingar áttu ekki að komast upp, með að setja hnattkúluna úl af brautinni. Hann þreil’ símann og sendi varaforsetanum og aðalráð- gjöfum sínum þremur boð um að koma á fund sinn án tafar. Þeir létu sín ekki lengi bíða. Varaforsetinn, píreygður maður og hnakkalaus eins og albanskur sauðaþjófur, setti upp ögrandi sligamannssvip er hann sá að yfirmaður CIA var fyrir ásamt forsetanum. Ráðgjafarnir þrír, sem allir voru Þjóðverjar og með tónlistarsmekk að ])ví skapi, urðu tannpínulegir á svip jafnskjótt og tónaflóð Rodgers náði eyrum þeirra. Forsetinn, sem í eðli sinu var ekki mjög illgjarn maður, sá lúpulegan bænarsvipinn á andlit- um þeirra og slökkti á fóninum. Síðan var málið lagt fyrir þá. Þelta voru menn, sem vanir voru að vinna saman og skipa í félagi hvaða mál- um sem þeim sýndist á rúmlega hálfum hnettinum. Það tók þá ekki nema fáeinar mínútur að komast að sam- komulagi og ákveða hvað gera ætti. Þið sjáið lil þess, að þingið frélti ekki neilt fyrr en eftir á, sagði forsetinn að lokum. — Þá verður nógur timi lil að kjafta málið i hel. Hann leit á úrið og var nú all- ur annar á brún. — Ég get þá horft á Dísu eftir allt sam- an, sagði hann og brosti næstum eins og i sjón-varpi. Þýzkararnir hans tóku viðbragð allir sanilímis eins og slegið hefði verið aftan í þá og forðuðu sér út. Varafor- setinn gaf sér tíma til að kveðja virðulega, en fylgdi þeim síðan eftir. — Mætti ég þá heldur biðja um Mannix, muldr- aði hann út á milli tannanna. Á Fróni var andrúmsloftið nánast rafmagnað. í fyrstu hafði almenningur vart vitað hvaðan á liann stóð veðrið, en síðan tók við léttir og feginleiki þegar það sýndi sig, að byltingarmenn höfðu alls ekki í hyggju að drepa þjóðina niður, að annars ófrávikjanlegri venju er- lendra byltingarmanna, eða svo hafði Árdegisblaðið marg- hermt, dagblað Sjálfræðisflokksins sem um langt skeið hafði verið nokkurn veginn eina lesning íslenzks almenn- ings nema rétt um jólaleytið, þegar slappað var af yfir Ingibjörgu Sigurðardóttur og Ruth Montgomery. Og þótt margir hugsuðu byltingarmönnum þörfina þegjandi, þá var látið þar við silja; þessir byltingarmenn voru sjálf- sagt þrælvopnaðir, þólt lítið sæist bjá þeim af svoleiðis áhöldum, og enginn vissi hverja þeir kunnu að hafa á bak við sig. Svo að flestir létu duga að yppta öxlum og hugsa Framhald á bls. 43 e. tbi. VIKAN 25

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.