Vikan - 11.02.1971, Page 27
þykja vœnt um hlutverkin”
sinni á Norðfirði, en þaðan er Lárus ættaður. Hann var
pantaður þangað til að spila, og mér boðið með. Það
kom sér vel, því að undirleikarinn sem þeir höfðu á
staðnum forfallaðist, og ég hljóp í skarðið.
Fyrstu stóru tímamótin í lífi Sigríðar urðu 1958, er
hún var kjörin fegurðardrottning Islands.
— Svo fór ég út 1959 og tók þátt í Miss Universe
keppninni á Long Beach. Þetta hafði þá góðu hlið fyrir
mig að ég fékk styrk, sem gerði mér fært að stunda
Jeiklistarnám næstu árin í Los Angeles. Skólinn sem ég
var á, Estell Harman Actor's Workshop, var mjög góð-
ur og er talinn standa framarlega meðal leiklistarskóla
bcrgarinnar. Ég var úti í fimm ár samfleytt, þar af þrjú
ár í Los Angeles á skólanum. Þá lék ég smáhlutverk
hér og þar, kom fram í sjónvarpi, lék á sviði og dálítið
í kvikmyndum, talaði líka inn á kvikmynd. Svo komu
mamma og pabbi út — eða réttara sagt fjölskyldan öll,
því að bróðir minn og systir komu líka — og við vorum
saman í Los Angeles í eitt ár. Síðan fórum við til Dallas,
í Texas. Pabbi skrifaði undir samning við Dallas
Symphony Orchestra, og ég komst í samning við leik-
húsið í borginni, Dallas Theatre Center. Þar var ég í
tvö ár.
Ég lék þarna ýmis hlutverk, og svo fórum við á
„Að vísu kemur
saga Grétu þarna
inn í og fær
sinn endi, en þá er
ennþá allt í
óvissu um hvernig
lýkur skiptum
þeirra Fásts og
Mefistófelesar...“
Þótt fjölskyldan hafi í
mörg horn að líta, þá
gefast engu að síður
stundir til að slappa af
í kyrrð og nseði á
myndarlega heimilinu
þeirra fjarri borgar-
ysnum.
Ingibjörg litla, dóttir
Sigríðar og Lárusar, er
eins árs og að sjálf-
sögðu yndi og eftirlæti
foreldra sinna.
„í næstu viku eru
fimm sýningar hjá mér,
tvær á Fást og þrjár á
Ég vil. Það verður dá-
lítið strangt, en ég
hlakka til.“
e. tw. VIKAN 27