Vikan - 11.02.1971, Page 30
fyrir að hafa verið með drengja-
undrinu TEMPÓ hér í dentíð. Hall-
dór kemur í stað Helga R. Einars-
sonar, sem nú er farinn að syngja
með Kristínu Ólafs.
Það háði alltaf „Þremur á palli"
hversu illa raddir þeirra lágu sam-
an, en nú hefur orðið breyting þar
á, því að Troels og Halldór eru
báðir tenórar og Edda er með sína
sérstæðu rödd, svo nú liggja þau
öll nokkuð svipað. Mun þessi vera
aðalástæðan fyrir því að Helgi yf-
irgaf pallinn, en allt var það í
góðu gert og hann tekur áfram
þátt í „Jörundi", enda tríóið sam-
ansett upp haflega til að vera þar
með.
Við brugðum okkur á eina af
fyrstu æfingunum hjá þeim hjúum
og urðum ákaflega hrifnir. Það er
líka ákaflega skemtilegt við „Þrjú
á palli" að þau eru með mjög góð
lög. Lög, sem maður lærir I hvelli
og koma öllum í gott skap. Mættu
aðrir í þesum bransa taka þau sér
til fyrirmyndar í þessum efnum!
Að sögn Troels Bentsen hafa þau
nú komið sér saman um áætlun til
tveggja ára, og er hún í stórum
dráttum falin í því að á þessum
tveimur árum ætla þau sér að gera
ákveðna hluti, m.a. koma út að
minnsta kosti 2 LP-plötum — sem
þau eru þegar farin að vinna að
— og sitthvað fleira. Annars vildu
þau af augljósum 'ástæðum ekki
mikið ræða þetta plan sitt, en
sögðust hafa sett sér ákveðna regl-
ur til að vinna eftir svo ekkert
færi úrskeiðis.
Og enþá er Rlkharður Pálsson
með þeim, reykir pípu, blæs í
flautu, spilar á bassa og fúnkerar
í fullu formi. -fc
Ómar Valdimarsson
heyra
i9r" má
Söngtríóið Þrjú á palli er ekki
ársgamalt, en samt hafa komið
frá þeim tvær LP-plötur, þau hafa
gert nokkra sjónvarpsþæti og afl-
að sér mikilla vinsælda. Nú er bað
mín prívat skoðun að þau eigi eft-
ir að verða vinsælli en hingað til,
því þau hafa fengið í lið með sér
afspyrnukláran strák, Halldór Krist-
insson, sem er að góðu kunnur
ÞRJÚ Á PALLI og Ríkharður Pálsson, bassaleikari. Hann er aftastur, en frá
vinstri eru það Edda Þórarinsdóttir, Troels Bentsen og Halldór Kristinsson.
Þrjú á palli
breyta til
Halldór Kristinsson, nýi meðlimurinn í Þrem-
ur á palli. Hann leikur eitt aðalhlutverkið í
„Hárinu“ sem stendur til að frumsýna í
Kópavogi síðar í þessum mánuði. Hann á
að vera berrassaður.
30 VIKAN «• tw.