Vikan


Vikan - 11.02.1971, Qupperneq 33

Vikan - 11.02.1971, Qupperneq 33
Fyrstu sex daga ferðarinnar er mikil alda, en hvorki regn eða stormur. Byrinn er stöðugt góður og ber okkur hratt vest- ureftir. Cuic-Cuic og Hue eru öndvegis fylgdarmenn. Þeir kvarta aldrei, hvorki yfir veðr- inu, sólinni eða næturkulinu. Eitt er bara að við þá: hvorug- ur þeirra vill leysa mig af við stýrið, svo ég geti sofið. Þeir elda mat þrisvar eða fjórum sinnum á dag. Öll hænsnin eru þegar uppétin. í gær sagði ég að gamni mínu við Cuic- Cuic: — Hvenær eigum við að éta grísinn? Honum brá hastarlega. — Dýrið það arna er vinur minn og enginn drepur það og étur nema yfir mitt lík. Félagar mínir leggja sig fram um að gera mér allt tii geðs. Þeir neita sér um að reykja svo að ég geti reykt eins mikið og ég viL Alltaf er til heitt te. Þeir gera allt án þess að ég þurfi að biðja þá um neitt. Loftskip. Nú eru sjö dagar frá því við lögðum af stað. Eg er að þrotum kominn. Sólarbruninn er slíkur að jafnvel Kínamenn- irnir eru eins og soðnir krabb- ar. Þar eð vindurinn er stöð- ugur, bind ég stýrið og sef svo eins og steinn í fjórar klukku- stundir. Þegar ég vakna og þvæ mér í framan, kemur mér þægilega á óvart að Cuic hefur rakað mig meðan ég svaf. fig hafði alls ekki orðið þess var. Hann hefur líka verið svo nærgæt- inn að bera framan í mig olíu til hlífðar fyrir sólinni. Síðan í gærkvöldi stefni ég vestsuðvestur, því að mig grun- ar að til þessa hafi stefnan ver- ið full norðlæg. Þá sjáum við allt í einu loftskip! Það er í fyrsta sinn á ævinni að ég sé svoleiðis farartæki. Það virð- ist ekki stefna í áttina til okk- ar og það er alltof langt frá til að hægt sé að gera sér í hug- arlund hve stórt það er. Málmhúð þess glitrar og gló- ir í sólinni og endurvarpið er svo sterkt að varla er hægt að horfa á það. Það hefur breytt um stefnu og kemur nú beint í áttina til okkar. Cuic og sá einhenti verða svo æstir yfir þessu fyrirbæri að þeir skvaldra hvor upp í annan á kínversku. — Talið í andskotans nafni frönsku svo ég skilji hvað þið segið! — Enskur loftbelgur, segir Cuic. — Nei, þetta er ekki loft- belgur, heldur loftskip. Nú sáum við loftfarið dável, þar sem það hnitar hringi yfir okkur. Áhöfnin stingur út flöggum og gefur merki. Þar sem við botnum ekkert í merkj- unum getum við ekki svarað. Loftskipið heldur merkjasend- ingunum áfram og kemur enn- þá nær, svo að við sjáum menn í gondólnum undir því. Síðan tekur það stefnu til lands. Tæp- um klukkutíma síðar kemur flugvél og rennir sér yfir okk- ur hvað eftir annað. Stefna á Georgetown. Það hefur snögglega versn- að í sjóinn og vindurinn auk- izt. Hvergi sést ský. Það er því ekki hætta á regni. — Sjáðu, segir sá einhenti. — Þarna, í áttinni sem hlýt- ur að vera landátt. Þessi svarti depill hlýtur að vera bátur. — Hvernig veiztu það? —- Ég geri ráð fvrir því, og ég get meira að segja sagt þér að það er herbátur. — Hvernig þekkirðu það? -— Það rýkur ekki úr hon- um. Og mikið rétt, rúmum klukkutíma síðar höfum við fyrir augunum grámálað her- skip, sem sýnist stefna beint á okkur. Það fer ákaflega geyst. Stefnið vísar beint á okkur, svo að ég verð hræddur um að það komi of nálægt. Það gæti orðið hættulegt, þvi að það er vont í sjóinn og bógaldan frá skipinu gæti hæglega hvolft ondir okkur, af því að hún fell- ur á móti öldunum. Þetta er litið herskip, „Tar- pon“, getum við lesið á hlið begar það svnir sig í fúllri lengd og stefnir í hálfhring. Enskur fáni blaktir í stafni. Eftir að hafa farið í hálfhring kemur skÍDÍð hægt að okkur að aftan. Varlega færir það sig fram með hliðinni á okkur og heldur sömu ferð og við. Mik- ill hluti áhafnarinnar er á þil- fari, klædd einkennisbúningum enska flotans. Hvítklæddur foringi stendur í brú, og hann ber giallarhorn að munni sér og kallar: Stop. You Stop! — Dragðu niður seglin. Cu- ic. Seglin eru komin niður eft- ir tvær mínútur. Ferð okkar hefur næstum stöðvazt, og öld- urnar færa okkur til þannig að við liggjum þvert fyrir þeim. er Viætfnlaust.. þar eð öldurnar eru krappar og háar. Eg ber hendur að munni mér og kalla: — Talið þér frönsku, skip- stjóri? Annar foringi tekur við gjallarhorninu af hinum: — Já, skipstjóri, ég skil frönsku. — Hvað viljið þér okkur? — Taka bátinn yðar um borð. — Nei, það er alltof hættu- legt í þessum sjó, ég vil ekki að þið mölvið bátinn fyrir mér. — Þetta er strandvarðarskip í herþjónustu, þér verðið að hlýða. - Það gefum við fjandann í, við erum ekki í neinu stríði. — Eruð þið ekki skipbrots- menn af skipi, sem kafbátur sökkti? — Nei, við erum stroku- menn úr frönsku nýlendunni. — Hvaða nýlendu, hvað eig- ið þér við með því? — Fangelsi, fangabúðir. Con- vict á ensku. Hard labour. —• Aha! Já, já, nú skil ég. Cayenne? — Já, Cayenne. — Hvert ætlið þið? — Til brezka Hondúras. — Það gengur ekki. Þið verðið að breyta stefnunni í suðvestur, til Georgetown. Hlýðið, það er skipun. — Ókey. Ég skipa Cuic að setja upp segl og við tökum stefnu í þá átt, sem okkur er sagt. Að lokum: frelsi. Við heyrum vélardyn á bak- við okkur, það er bátur sem fallbyssubáturinn hefur sett út. Hann er fljótur að draga okk- ur uppi. Sjóliði stendur í stafni með byssu um öxl. Vélbátur- inn rennir sér upp að hliðinni á okkur, og sjóliðinn stekkur yfir í okkar bát. Vélbáturinn snýr við og stefnir aftur til fallbyssubátsins. — Good afternoon, segir sjó- liðinn. Hann gengur til mín, sezt við hlið mér, leggur hönd á stýrið og- færir stefnuna enn meira í suður. Ég læt honum eftir að stýra og fylgist með honum. Hann kann mjög vel að sigla. Engu að síður sit ég kyrr við hlið hans. Aldrei að treysta neinum fullkomlega. — Sígarettur? Hann tekur fram þrjá pakka af enskum sígarettum og fær okkur sinn hverjum. É'« bori að veðja að þeir hafa stungið á hann síearettum áður en hann yfirgaf fallbyssu- bátinn, segir Cuic, — því að varla hefur hann fyrir vana að ganga með þrjá sígarettupakka dags daglega. Ég hlæ að athugasemd Cu- ics, en beini síðan athygli minni að enska sjóliðanum, sem hefur betra lag á bátnum en ég. É'g get því setið og lof- að huganum að reika í ró og næði. í þetta sinn hefur flótt- inn endanlega tekizt. É’g er frjáls maður, endanlega frjáls, því að síðan stríðið brauzt út framselur ekkert ríki stroku- menn. Áður en stríðinu er lokið tekst mér áreiðanlega að verða virtur og þekktur í landinu, þar sem ég sezt að. Það eina, sem spillir gleði minni, er að ég geti ekki valið mér land til dvalar, fyrst stríð geisar. En það gerir annars ekkert til, hvar sem ég lendi verð ég fljót- ur að afla mér virðingar al- mennings og yfirvalda með líf- erni mínu, sem skal verða óað- finnanlegt, eða öllu heldur til fyrirmyndar. Sú tilfinning að hafa nú loks- ins sigrazt á ógnum dauða og rotnunar er svo sterk, að ég hugsa um ekkert annað. Loks- ins hefurðu sigrað, Papillon! Eftir níu ára stríð ertu loksins sigurvegari. Beztu þakkir, Drottinn minn, þú hefðir nú svo sem mátt koma þessu í kring aðeins fyrr, en vegir þín- ir eru nú einu sinni órannsak- anlegir. Meðan ég hugsa um það sem ég gekk í gegnum árin níu í refsinýlendunni, auk þeirra tveggja sem ég var í fangels- um heima í Frakklandi, meðan ég hugsa um þessi ellefu ár fylgi ég með augunum bend- ingu sjóliðans. Hann bendir með útréttum handlegg og seg- ir: ,,Land!“ Endir. Ennþá verður Henri „Pa- piI!on“ Charriére aff ganga í gegnum mörg ævintýri, mis- iafnlega skemmtileg, unz hon- um tekst aff skapa sér öruggan osr hamingjusamlegan tilveru- grundvöll. En viff frönsku fangelsin og skelfinvar þeirra var hanji endalega laus. f dag, tuttugu og fimm árum eftir þessa atburffi, er Papillon borgari í Venesúelu, býr í Cara- cas og er kvæntur. Fangabúff- irnar á Djöflaeynni og þar í kring hafa nú veriff lavffar niff- ur. Sjálfur er Papillon orðinn margmilljóneri á frásögnunum af lífi sínu og hefw heimsnt.t Frakkland þrásinnis síffan bók- in kom út. 6. tbi. vikan 33

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.