Vikan


Vikan - 11.02.1971, Síða 47

Vikan - 11.02.1971, Síða 47
ekki við það að við hefðum átt að láta Marayte taka yður til fanga. Baeði hann og hin djöful- lega áhöfn á skipi hans þurftu að fá ráðningu, en við hefðum átt að vera harðari. Kit átti að hengja þessar skepur í þeirra eigin reiða. Þá hefði málið ver- ið ljósara og óvinum okkar hefði fækkað um tvo. Kit horfði á Blair lækni í nokkrar sekúndur, svo leit hann á Nick Halthrop, sem hafði set- ið steinþegjandi. — En þú, Nick, sagði hann vingjarnlega. — Hefir þú ekk- ert að segja um þetta mál? — Ég er sammála Alex, svaraði Nick hægt. — Renard er hættulegur, og það er alltaf betra að drepa slönguna, áður en hún verður skaðleg. Ég held að enginn hinna víkinganna hefði þyrmt lífi hans. Brandon brosti, en brosið var orðið dálítið háðslegt. — Það getur verið að þeir hafi ekki eins mikla andstyggð á böðuls- starfinu eins og ég, sagði hann hugsandi. — Jæja, er það þannig að skilja! fauk út úr Nick. — Þú hefðir ekki þurft að óhreinka hendur þínar Kit. Ég hefði með ánægju hengt hann fyrir þig, eins og ég hefði líka verið fús til að stinga hann í hel hérna forðum, þegar þú varst of stolt- ur til að berjast við hann. Nú varð þrúgandi þögn. Sir Jocei,yn leit á Alex Blair og sá að hann var á verði. Damaris leit frá bróður sínum á Nick með hræðslulegu augnaráði. — Ég efast ekki um það, sagði Kit, — en í bæði skiptin varð uppgjörið að vera milli hans og mín, það var ekkert þér viðkomandi. Pilturinn varð eldrauður, stóð svo snöggt upp að stóllinn valt um koll, en áður en hann gat opnað muninn, tók Alex Blair fram í fyrir honum. Læknirinn hafði líka staðið snöggt. upp, en hann gat látið þa líta út sem hann hreyfði sig rólega. — Þar sem við höfum nú lokið máltíðinni, væri þá ekki notalegt að fá Damaris til að syngja svolítið fyrir okkur, sagði hann vingjarnlega. — Það vil ég gjarnan! Hún skildi strax hvað vakti fyrir lækninum og hún sneri sér að Sir Jocelyn. — Eigum við ekki að koma inn í næstu stofu? Ég vona að þér hafið ánægju af hljómlist? Hún gekk til bróður síns og stakk hendinni í lófa hans. — Komdu Kit! Ég er búin að læra marga söngva síðan þú varst síðast heima. Þau gengu inn í hliðarstofu og andrúmsloftið varð strax léttara. Ungfrú Brandon settist við slaghörpuna og söng gamla enska söngva og skozkar ball- öður, sem Alex Blair hafði kennt henni. Hún hafði ljóm- andi fallega rödd, skæra og tæra, en Sir Jocelyn var svo upptekinn af atburðunum við matborðið að hann hlustaði ekki reglulega vel á hana. Hann hafði ekki verið lengi í húsi Kit Brandon, en samt nógu lengi til að hafa það á tilfinningunni að þetta slétta og fellda yfirborð huldi einhverja skuggalega und- irstrauma. Hann leit á Brandon skip- stjóra, sem sat í skugga bak við ljósið og virti systur sína fyrir sér, og hann var undrandi yfir hve margslunginn þessi maður virtist vera. Hvað var það sem orsakaði hina skyndilegu reiði, sem hann hafði látið í Ijós gagnvart Nick Halthrop. reiði, sem Sir Jocelyn fannst vera einhver þörf til að svala sér á einhverju? Hvað gat það verið? Hatur! Nick var vinur skip- stjórans. Gat það verið afbrýði- semi? En það eina sem piltur- inn hafði gert, var að sýna að hann var ástfanginn af systur hans. Þar við bættist sagan um gullna pardusinn. Það var aug- ljóst að Kit Brandon bjó yfir mörgum leyndarmálum, og Sir Jocelyn, sem var mjög forvit- inn, hafði líka á tilfinningunni að hann yrði á einhvern hátt flæktur í þessi mál. Þessi tilfinning var svo ste.rk hjá honum, að þegar hann nokkru síðar varð einn með Blair lækni, reyndi hann að veiða einhverjar skýringar upp úr hinum raunsæja Skota. Hann sagði við lækninn að hann von- aði að björgun hans hefði eng- ar alvarlegar afleiðingar fyrir Brandon skipstjóra. — Það er ekki yður að kenna Sir Jocelyn, svaraði Alex Blair alvarlegur í bragði. — Einstaka menn eru dæmdir til að verða svarnir óvinir frá fyrstu fund- um, og þannig varð það með Kit og Renard. Þeir hafa ætíð litið hvorn annan óhýru auga, en fyrir ári síðan kom það fyr- ir, sem bar eld að glóðinni. Það var raunalegt að því var ekki lokið þá, Renard hefði verið betur kominn með nokkrar tommur af stáli gegnum sitt svarta hjarta. — Um hvað deildu þeir? spurði Wade, en bætti við í skyndi: — Ef það er þá ekki trúnaðarbrot að segja mér frá því? Alex hristi höfuðið og brosti hörkulega. — Nei, það var á allra vitorði. Það getur Hka hjálpað yður til að skilja bet- ur aðstæður hér. Renard sýndi þá frekju að gefa Damaris hýrt auga. Hann beið þar til við vor- um komnir til sjós, þá fór hann að laumast kringum þetta hús, með allskonar fagurgala. En hún er rösk og ákveðin stúlka, þrátt fyrir allt skvaldrið, að hún sagði honum hreinlega að hún vildi ekki sjá hann eða heyra. Hann hefir mjög háar hugmyndir um sjálfan sig sá góði herra, og þessi afneitun kom honum í versta ham. Hann sat fyrir henni, þegar hún var í útreiðartúrum, — þér getið ímyndað yður hvað hann hafði í huga ,og hann sló niður reið- sveininn, sem fylgdi henni, en sem betur fór, var stúlkan vopnuð og hún kunni að beita vopni sínu. Hún skaut hann í fótinn og komst undan. En dag- inn eftir var sagan á milli tann- anna á fólki í Port Royal. Ren- ard varð að athlægi fyrir að verða þannig fyrir barðinu á unglingsstúlku, sem rétt var komin af skólabekknum. Sir Jocelyn hló nú líka, mjög hrifinn. — Já, ungfrú Brandon veit hvað hún syngur! En hvað skeði svo? — Þegar við komum í land og Kit heyrði söguna lét hann strax leggja á hest og reið til Port Royal, til að hafa uppi á Renard. Við Nick fórum með honum og við vorum viðbúnir morði, því að hafi djöfulleg reiði nokkurn tíma skinið út úr augum manns, þá var það þá. Renard var orðinn sæmilegur í löppinni og við fundum hann á knæpu með jafningjum sínum. Kit dró ekki sverð sitt úr slíðr- um, en lét svipuna dynia á skrokk Renards, þangað til hann féll til jarðar. Svo fleygði hann svipunni frá sér, eins og hún væri eitruð og gekk út úr knæpunni, en þögnin var svo þung að það var næstum hægt að þreyfa á henni. Alex þagnaði 'og virti fyrir sér áheyranda sinn. — Þarna siáið þér, finnst yður það undarlegt þótt Kit sé dálítið órólegur? Wade hristi höfuðið. — Ég er yður sammála, Blair læknir. Það væri betra að þessi Renard væri dauður. En eftir framkomu hans í gær, datt mér ekki í hug að hatur hans til Brandons skipstjóra væri svona gífurlegt. — Það er eins og ég hefi sagt áður, Sir Jocelyn, hann er ekki kallaður „refurinn" að ástæðulausu. Það er nefnilega sannmæli, hann er kaldur, slóttugur refur, sem bíður í ró- legheitum eftir tækifæri til að koma hefndum yfir þá sem hann hatar. Ég viðurkenni að ég er órólegur sjálfur. Öll áhöfnin á „Albatross" hefir ill- ar bifur á Kit, vegna þess að hann hafði af þeiim mestan hluta af ránsfengnum, og með- an Renard er foringi þeirra ... — En er það ekki Maryte sem er foringinn? tók Sir Joce- lyn fram í. — Ég var viss um að hann væri skipstjórinn. — Ja, — hann er kannski skipstjóri, svaraði Alex og hló við, — en það er Renard sem ræður öllu um borð. Hann hef- ir siglt með þrem skipstjórum, sem hafa aldrei verið annað en trjónumyndir, valdir af Ren- ard, til að verða bitbein, ef eitthvað óhentugt kæmi fyrir. Það er aðeins einn maður sem heldur að hann sé skipstjóri, og það er Marayte sjálfur. — Já, Renard er líklega mjög hættulegur maður, sagði Sir Jocelyn, alvarlegur í bragði. — Þér segið að hann sé Frakki, en hann talar ensku mjög vel. — Og spænsku og hollensku, en hann er nú samt sem áður franskur. Það er það eina sem maður veit um hann með vissu, því að hann heldur sínu raun- verulega nafni vel leyndu. Sag- an segir að hann hafi eitthvað verið tengdur við prestastéttina og hann er sannarlega nógu lymskulegur til að vera jesúíta- fjandi, það verð ég að segia. Alex stóð upp og lagði frá sér löngu krítarpípuna. — Jæja, það er orðið fram- orðið, ég fer að dotta úr þessu. Góða nótt, Sir Jocelyn. — Aðeins ein spurning enn- þá, Blair læknir, sagði Sir Joce- lyn rólega, um leið og hann stóð upp. — Hafið þér nokkurn tíma heyrt Brandon skipstjóra tala um gullna pardusinn? — Gullinn pardus? Svipur læknisins var svo skilningsvana að það var nægilegt svar. — Nei, það hefi ég ekki. Mér finnst það líka vera nokkuð furðulegt dýr, tæplega húsdýr. — Það er skjaldarmerki, svaraði Sir Jocelyn brosandi. — Hluti af skjaldarmerk.i jarl- anna af Chelsham, sem eru með stærstu kaþólsku fjölskyldum Bretlands. Framhald í næsta blaði. 6. tbi. VIKAN 4?

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.