Vikan - 11.02.1971, Page 50
— — — — — —
í næstu viku
Baksvipurinn
á Laugaveginum
Laugavegurinn er sannarlega glæsilegur, þeg-
ar við göngum eftir honum og skoðum girni-
legar útstillingar í búðargluggunum. En allir
Hlutir eiga sér að minnsta kosti tvær hliðar,
eina sem er falleg og snýr fram og svo aðra,
sem ekki er eins fögur, af því að minna ber
á henni. Hafið þið séð baksvipinn á Lauga-
veginum? Hann verður til sýnis i næstu Viku.
Nóbels-
skáld-
konurnar
Við höldum áfram
að birta sögur eftir
skáldkonurpar sex,
sem hlotið hafa
Nóbelsverðlaun. I
næsta blaði er röð-
in komin að hinni
vinsælu, sænsku
skáldkonu, Selmu
Lagerlöf.
Tvær vikur á hafsbotni
Fimm konur dvöldust í hálfan mánuð i fjögra
herbergja hylki, sem komið hafði verið fyrir
á þrjátíu metra dýpi í sjónum. Þetta eru
fyrstu konurnar, sem unnið hafa slikt afrek,
sem gert var í vísindalegum tilgangi. Það
segir frá ævintýri þeirra í næsta blaði.
Ekki í giftingarhugleiöingum
Ethel Kennedy, ekkja Roberts Kennedys, seg-
ist ekki vera í neinum giftingarhugleiðingum
og allar fréttir þess efnis séu eintómur upp-
spuni. Hún segist heldur ekki hafa tima til
að skipta sér að stjórnmálum. Við birtum spán-
nýja grein um Ethel í næstu Viku.
LítiS
biaó fyrir
börn
Lestrarhesturinn, lít-
ið blað fyrir börn á
aldrinum 6—9 ára,
birtist aðra hverja
viku. Persónurnar
Hrossi og Mússa
koma þar við sögu
og eiga áreiðanlega
eftir að verða vinir
margra barna.
HITTUMST AFTUR - í NÆSTU VIKU
Pennavinir
Maria Jónatansdóttir, Laxárvirkjun,
Aðaldal, óskar eftir bréfaskiptum
við 13—15 ára pilta.
Árnína Sigtryggsdóttir, Laxárvirkj-
un Aðaldal, óskar eftir bréfaskipt-
um við pilta á aldrinum 17—19
ára.
Farrarie Giuseppe, Via A. Saffú 26,
20081 Abbiategrasso-Milano, Ital-
ia. Tuttugu og tveggja ára háskóla-
stúdent, sem ætlar að koma til
íslands í sumar, óskar eftir bréfa-
skiptum við ísl. pilt eða stúlku.
David Holmes, 116 Bedford Hill,
Balham, London SW 12, England.
Tuttugu og tveggja ára piltur, sem
óskar eftir bréfaskiptum við (sl.
pilta eða stúlkur.
Miss Marianne Valkenburg, Bad-
huiskade 14A, 2016 Scheveningen
(Z.H.) Holland (Netherlande). Hoi-
lenzk stúlka sem gjarnan vill kom-
ast í bréfasamband við Islendinga
af báðum kynjum. Hún skrifar
þýzku, frönsku og ensku.
Miss Autje Börck, 10A Brackwell
Golus, London N.W.3, England.
Þýzk stúlka, búsett um tíma í Eng-
landi, vill gjarnan skrifast á við
ísl. pilta eða stúlkur. Skrifar bæði
ensku og þýzku.
Mrs. M. Matthee, „The Willows",
Flat No. 11, 4th Avenue, FLORIDA.
Transvaal, Republic of South Af-
rica. Hún hefur mikinn áhuga á
íslandi, landi og þjóð og vill gjarn-
an fá upplýsingar á ensku.
Mr. Dennis D. Schiitzler, No. 17
2nd Ave, Kieserville, Lichtenburg,
South Africa, óskar eftir bréfasam-
bandi við stúlkur á aldrinum 16—
30 ára.
Mr. Paul De Saedeleer, Brede-
straat 99 9300 Elast, Belgium,
vill skrifast á við ísl. pilta eða
stúlkur, sem hafa áhuga á þjóð-
fræði, hljómlist og fþróttum.
50 VIKAN 6- tbi.