Vikan


Vikan - 18.03.1971, Síða 10

Vikan - 18.03.1971, Síða 10
VAR SKOTIÐ A James Lovell, stjórnandi Apollos 13, í „björgunarbáti" hins óhappasæla geimfars, sem kallað var Aquarius — (Vatns- beri). Myndina tók John Swigert á leiðinni til jarðar, þegar líf geimfaranna þriggja hékk á bláþraeði. Lovell, Swigert og Haise á blaðamannafundi í Houston, Texas, eftir afturkomuna til jarðar. Nei, segja sérfræð- ingar, en það er haft eftirlit með okkur úr geimnum. Atburðurinn milli jarðar og tungls aðfara- nótt fjótránda apríl síðastliðins hefur endurvakið umræð- urnar umfljúgandi diska og vitverur frá öðrum hnöttum. f ítölsku hlustunarstöðinr.i Torre Bert í nágrenni Torino hlustuðu allir með eftirvænt- ingu á rússnesku raddirnar ut- an úr geimnum. Fyrst heyrðist kona segja: —' Ég tek það og held því hægri hendi. Horfi út um gluggann. Ég hef það ... Svo heyrðist karlmaður segja, greinilega æstur: — Hécrna Hér er eitthvað. ÞAÐ ER EITTHVAÐ HÉRNA . . EITTHVAÐ ÓTRÚLEGT! Ef við komumst ekki niður, fréttir heimurinn aldrei af þessu. Það er þungt... Svo brakaði í móttökutæk- inu. Nokkur óskiljanleg setn- ingaslitur heyrðust; síðan ekki meir. Þetta fjarsamtal heyrðist að kvöldi tuttugasta og fjórða febrúar 1961, og það náðist líka í móttökutæki í Bochum og Meudon. En tvö ár liðu áður en sannleikurinn í málinu síaðist út í gegnum járntjaldið. Að því er virðist höfðu Rússar skotið á loft geimfarapari þann seytj- ánda febrúar 1961. Næstu daga gátu hlustunarstöðvar í Upp- sölum, Torre Bert, Meudon og víðar gripið slitrur úr viðræð- um geimfaranna, sem greini- lega voru ósjálfbjarga, og stöðv- ar þeirra í Saíkonúr í Norður- Rússlandi. Parið á að hafa ver- ið á svifi úti í geimnum i nokk- ur dægur i viðbót, en ekki tek- ist að komast aftur til jarðar og horfið í gufuhvolfið. Parið lét ekkert illa af líðan sinni, en bætti við að varaforði þess af súrefni væri næstum 10VIKAN ll.TBL.

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.