Vikan - 18.03.1971, Síða 49
Svör við hver, hvar, hvenær:
•ja t|e5( je6ac| 'jsel>|3|>|
ge jn6u0| nj0 u|660 uo 'jn|0A
uj0s jeujns jujel j|dj0A ue6n|^|pw
— -n|sAsepueJts J ja >)!As6ne|gn9
uuijaeg '£261 !6u|c)|e e naes >191
unp) -uu|jngeuj6u|c)u0A>( j>)2U0|si
jisjAj j0 uoseujelg h 6jp!qj6u|
Unibike: Einhjól
Bandarískur uppfinningamaður
í Monroeville í Pennsylvaniu,
Frank Malick að nafni, hefur fund-
ið upp nýtt farartaeki, sem hann
nefnir „Unibike". Er þetta farar-
taaki á aðeins einu hjóli og hefur
uppfinningamaðurinn vitaskuld
marglýst þvi yfir að þetta sé fram-
tíðin. (Enginn efast um að þetla
er hans framtið; ef tólið selst ekki
fer hann á hausinn!) Einhjólið er
benzíndrifið og er hægt að keyra
það á miklum hraða. Enn er Malick
sjálfur þó sá eini sem hefur þorað
það, en stjórn fer fram með eins-
konar fjarstýringu, eins og sjá má
af myndinni.
hvar
er bærinn Guðlaugsvik á landinu?
hver
var fyrsta konan, sem tók sæti á
Alþingi [slendinga?
hvenser
ársins verpir mölflugan?
I 5. tölublaði birtum við gamla
mynd frá Reykjavik, þar sem tré
og garðar voru til sannrar prýði.
Okkur hefur borizt nokkur vitn-
eskja um þessa mynd, meðal ann-
ars eftirfarandi bréf:
Heilir og sælir Vikumenn!
Ég hef alltaf ætlað að hripa til
ykkar nokkrar línur varðandi
mynd, sem birtist í 5. tbl. 33. árg.
1971. Þessi fallega mynd er
ábyggilega tekin í Suðurgötu.
Hvort Suðurgata var til 1940, um
það leyti sem myndin var tekin,
það má guð almáttugur vita, en (
dag er hún til, eins og þið hljótið
að vita.
Jæja, húsið næst á myndinni
mun vera númer 10, þar sem
myndasafn vikunnar
Fönix er núna til húsa. Ekki er
hægt að segja annað en að um-
hverfið þar í kring sé fallegt í
dag ekki síður en það var um
1940. Næst er þá húsið númer 8,
og það er bara nokkuð þokkalegt
þar í kring. Ég kikti á þessa húsa-
röð þarna um daginn. Þetta virt-
ist allt stemma, þakgluggarnir á
stnum stað og stromparnir einnig.
Svo kemur húsið númer 6, en það
sést ekki á myndinni, enda eins
og tíeyringur á milli tveggja fimm-
eyringa. Þá er eftir númer 4, og
er það fallegt hús, eins og reynd-
ar flest af þessum gömlu húsum.
Það sem var númer 2 er horfið;
var rifið fyrir nokkrum árum, ef
ég man rétt.
Síðast en ekki sízt ber að nefna
húsið í hægra horninu. Það held
ég endilega að séu Uppsalir sál-
ugu, sem rifnir voru fyrir örfáum
árum.
Jæja, drengir! Þá kveð ég ykk-
ur að sinni og bið ykkur vel að
lifa. Haldið áfram að birta gaml-
ar myndir í þessum dúr, því að
þetta er nefnilega skratti sniðugt
hjá ykkur.
Hulda Jósefsdóttir,
Staðarbakka 30, Reykjavík.
„Kúba stendur ekki
ein“
Svo stendur á veggnum, sem er
i Santiago, höfuborg Chile, sem
er annað ríkið í Latnesku Ameríku
er kemst undir stjórn sósíalista.
Salvadore Allende, hinn nýi for-
seti Chile, fylgir nú fordæmi
Castros og sósíalísérar landið,
þjóðnýtir fyrirtæki og rekur am-
eríska úr landi. Bandarísk blöð eru
vond út f sósíalistana, kommana
og famsóknarmennina sem stjórna
í Chile og lítt þarf að efast um að
CIA er eins og lundahópur ( land-
inu og grefur undan öllu sem eftir
lætur — og jafnvel meiru. Þegar
Allende tók við völdum flúðu
margir ríkir Chilebúar úr landí, en
nú hafa þeir öðlast von um að
komast heim á ný. Astæðan er
sú að Allende sýnir ekki nægileg-
an lit á að nálgast fólkið. Hann
hefur flutt úr gömlu fbúðinni sinni
í nýja villu, umgirtri sundlaugum
og tennisvöllum.
vísa vikunnar
Forlög búin heimi hjá
hendur trúar sýna.
Skorið lúaletur á
lófa og hnúa þína.
Stephan G. Stephansson.
V______________________________________________________________________)
ll. TBL. VIKAN 49