Vikan - 25.03.1971, Page 15
HUGSIÐ VEL UM
EIGINMANNINN
GREINAFLOKKUR
EFTIR STELLU BRUCE
3. GREIN
Spennan í viðskiptalífinu hefur aldrei verið meiri
en nú. Maðurinn þinn þarf að vinna meira
en áður, í kapphlaupinu um betri lífskjör.
Þetta eykur við eiginkonuskyldur þínar,
þú verður að hjálpa honum til að mæta of
miklu taugaálagi . . .
ur, að meðaltali sex árum fyrr, og þá
er líklega átt við velferðarþjóðfélög.
Ef karlmenn gætu lært að mæta erf-
iðleikum, án þess að taka alla hluti al-
varlega, þá gætu þeir liklega átt lengri
lífdaga. Sérfræðingum kemur yfirleitt
saman um það að konumar geti gert
mikið til að lengja líf eiginmanna sinna.
Þú getur hreinlega bætt árum við líf
mannsins þíns með því að hjálpa hon-
um til að standa á móti þeim áhyggjum
og streitu, sem nútima athafnalíf býður
metorðagjörnum mönnum upp á.
Stundum verður maðurinn lika að
læra af biturri reynslu. Forstjóri hjá
stóru byggingafyrirtæki, fékk mjög
slæmt taugaáfall, eftir að hafa unnið
sleitulaust í margar vikur, án þess að
unna sér hvíldar.
— fig fór í ferðalag til að jafna mig,
sagði liann. — En ég gat hvorki sofið
né hvílzt án þess að taka róandi lyf.
fig varð að taka á öllum mínum vilja-
styrk til að koma lífi mínu í rétt horf.
Án hjálpar konu minnar hefði ég al-
drei getað losað mig við þetta farg.
Forráðamönnum nokkurra stórfyrir-
tækja er það ljóst að vinnuálagið og
samkeppnin stuðla að þvi að eyðileggja
heilsu starfsmanna þeirra.
— Við höfum splundrað mörgum
hamingjusömum fjölskyldum, segir
læknir við eitt af stærstu iðnfyrirtækj-
um í Vestur-Þýzkalandi.
— Við höfum okkar eigin sálfræð-
ing, segir liann ennfremur, — en samt
getur við ekki hjálpað fólki, sem í raun
og veru hefur við erfið sálfræðileg
vandamál að etja.
Þá er það fjölskyldan, sérstaklega þó
konan, sem hefur því hlutverki að
gegna að leggja sitt af mörkum til að
viðhalda heilsu fyrirvinnunnar, bæði
líkamlega og andlega.
— Ef lijónin geta talað saman um
vandamálin sem fyrir koma yfir dag-
inn, þá hafa þau náð langt, segir sál-
fræðingur, sem starfar við stórt iðn-
fyrirtæki.
Hann segir frá einu sérstöku tilfelli.
Ungur maður í toppstöðu ákvað að
fara að heiman klukkutíma fyrr en
venjulega á hverjum degi, til þess að
geta komið heim til sin klukkutíma
fyrr á kvöldin, svo hann gæti leikið sér
við börnin áður en þau færu í rúmið.
Á þann hátt eignaðist hann dýrmæta
stund með fjölskyldunni á hverju
kvöldi. Hann gaf líka konu sinni lof-
orð um að vinna ekki aukavinnu á
laugardögum og að taka ekki vinnu
heim með sér, nema tvisvar í viku.
Þekktur amerískur sálfræðingur, sem
vinnur við stóriðjufyrirtæki segir: —-
Eilt mesta vandamál hjá okkur er að
fást við þær konur, sem vilja halda því
fram að eiginmaðurinn taki vinnu sina
fram yfir konu og börn. I mörgum til-
vikum hafa þær á rétlu að standa.
— Á fyrstu hjúskaparárunum ættu
hjónin að gera það upp við sig hvað
eigi að vera aðalatriðið í sambúð þeirra,
segir sálfræðingurinn. — Á maðurinn
að fórna heimilislifinu fyrir vinnuna i
nokkur ár? Eða á hann að stilla metn-
Frarrihald á bls. 43.
12. TBL. VIKAN 15