Vikan - 25.03.1971, Blaðsíða 25
„íslenzkur ballet er á mjög lágu stigi og ástandið hefur versnað undan-
farin ár."
„Ég kemst i örlítil vandræði þegar ég þarf allt í einu að fara að hugsa
um ballet á íslenzku."
mig mikið lengur, þá tekur það mig of langan tíma að
vinna mig upp aftur.
— En hvað æfir þú oft í viku?
— Yfirleitt daglega nema hvað að einn dag i viku
reyni ég að taka mér frí. Það er stundum sem ég æfi
um helgar, og við sýnum yfirleitt um helgar í New
York, en á þessu er ekki svo fasl form; atriðið er að
við æfum helzt daglega, og sömu sögu er að segja um
hina 80 dansarana.
— Nú vinnur þú fyrir einn mesta kóreógraf í heimi,
Balanchine: Hvernig maður er þetta og hvernig er að
vinna fgrir hann?
— Ég er nú ekki búinn að vera með New York City
Ballet svo lengi, að ég þekki Balanchine vel persónu-
lega, en liann er algjör stjórnandi og ræður öllu sem
flokkurinn gerir. Það er yfirleitt svo í halletflokkum, að
stjórnandinn Iiefur sér aðstoðarfólk sem sér um að leysa
úr daglegum vandamálum og þess háttar; í staðinn sér
stjórnandinn um að útvega flokknum ný verkefni og
kóreógraferar, eða semur balletta. Balanchine gerir þetla
allt. Hann ræður öllu og það er sama hvaða vafaatriði
kemur upp, liann tekur ákvörðun og enginn annar.
— Balanchine hefur sagt að ballet sé kona. Við hvað
átti hann?
Hclgi hló við. — Já, hann sagði það og liingað til lief-
ur hanii aðallega samið balletta fyrir konuna. Það sem
hann átti við var, að ballet væri fyrst og fremst list fyrir
konuna, en nú hefur orðið einhver breyting á þessum
viðliorfum hans, þvi hann er að gera meira úr karl-
dönsurunum sem hann er með. Nú erum við til dæmis
þrir nýir í flokknum, það er ég, ungur strákur frá Kon-
unglega leikhúsinu í Kaupmannahöfn og annar frá
Parisaróperunni, og mér hefur virzt það þannig, að ekki
einungis hann, heldur og þeir sem skrifa um ballet,
hafa fengið meiri áhuga á karldönsurunum i flokknum.
Ef lil vill hefur ástæðan verið sú, að hann liefur aldrei
haft nægilega góða karldansara, en það er staðreynd að
þeir verða hetri og betri í New York City Ballet. En nú
er sem sagt eitthvað að ske og ég gæti nefnt sem dæmi,
að á æfingum hefur hann yfirleitt skipt hópnum í
tvennt, karlar og konur i háðum hópum, en nú er hayn
farinn að æfa karldansarana sér og það hefur hann
aldrei gert áður.
— Hvert er þá hlutfallið í flokknum? Eru fleiri kon-
ur en karlar?
Ilelgi ráðfærði sig við Marlene, konu sína, og komust
þau að þeirri sameiginlegu niðurstöðu að hlutfallið væri
nokkuð jafnt. Þó væru kannski 10 fleiri konur af 82
dönsurum.
— Nú er meðdansari þinn, Elisabeth Carroll, ekki
föst við New York City Ballet; hvernig stendur þá á, að
þið vinnið svona mikið saman?
Á meðan blaðamaður Vikunnar var að tala við Helga fvlgdust þau Þessi mynd var tekin af þeim á meðan á viðtalinu stóð á heimili móður
mæðgin með og Kristinn litli hermdi eftir Ijósmyndaranum. Helga og stjúpföður.
12. TBL. VIKAN 25