Vikan - 25.03.1971, Blaðsíða 26
„Til aS semja balletta þarf aS koma eitthvaS innan frá. Löngun til aS
segja eitthvaS . . ."
— Við voruin saman i Harkness ballettinum í ein
eða 8 ár, og hættum þar á sama tíma í síðastliðnum mai.
Ég fór þá til Balanchine, margir dansarar fóru til Ev-
rópu og aðrir voru hér og þar í Bandaríkjunum, en hún
ákvað að taka sér einskonar frí, það er segja að ráða
sig hvergi fast, því það er ákaflega erfitt að byrja á
nýjan leik — eða hyrja i nýjum flokki, því maður verð-
ur á vissan hátt að hyrja upp á nýtt þegar það gerist.
Og þegar ég hef haft tíma hef ég dansað við hana og
þó að hún sé eina konan sem ég hef dansað við fyrir utan
flokkinn, þá hefur hún að sjálfsögðu dansað við marga
aðra karldansara.
— Hver semur eða kóreógraferar aðallega fyrir flokk-
inn?
— Það er náttúrlega fvrst og fremst Balanchine og
svo Jerome RoCbbins- Jú, svo er þarna ungur dansari,
John Clifford, sem hefur fengið mikil og góð tækifæri
til að kóreógral'era, og þó hans verk séu ekki sérstak-
lega góð, þá eru þau vel þess virði að vera sýnd. Það
þarf ákaflega mikla þjálfun og hæfni til að kóreógraf-
era, og í rauninni er það allt annar hlutur en að dansa,
svo þó maður sé mjög góður dansari, þarf maður ekki
endilega að geta kóreógraferað. Sjálfur hef ég aldrei
gert það, nema spor og spor, og satt að segja hef ég
aldrei haft neina löngun lil þcjss. Til að semja balletta
þarf að koma eitlhvað innan frá, löngun til að segja
eitthvað .. .
— Jerome Robbins hefur sagt, að þú sért beztiu.
Hvernig áhrif hafði það á þig?
Helgi hló aftur, eins og hann gerir mikið, og til að
hyrja með reyndi hann að snúa spurninguna af sér. —
Ég veit ekkert hvort Jerome Rohbins hefur nokkurn
tíma sagt þetta, sagði liann, og: — Hver segir að hann
hafi sagt þetta? En svo komst hann ekki undan:
— Jú, ég sá greinina og maður getur náttúrlega ekki
hugsað sér hetra kompliment en að svona maður lýsi
26 VIKAN 12. TBL.