Vikan - 25.03.1971, Page 21
Moody Ðlues eins og þeir eru í dag. Frá vinstri: Mike Pinder, Ray
Thomas, Justin Hayward, Creame Edge og John Lodge. ÞaS er at-
hyglisvert aS bera myndirnar saman.
stöðum, en á endanum vorum
við komnir með ágætt kaup.
En fólk mundi aðeins eftir okk-
ur sem hljómsveitinni er hafði
verið með „Go Now“ fyrir
nokkrum árum og frammi-
staða okkar var eftir því.
Það var því greinilegt, að ef
við gerðum ekki eithvað rót-
tækt, myndi hljómsveitin fara
á hausinn á nýjan leik. Því var
það að við ákváðum að fara
til London og byrja að spila
þá músík sem við trúðum á.
Þangað til höfðum við alltaf
hlustað á forstjóra hljómplötu-
fyrirtækjanna, sem höfðu ráð-
lagt okkur að ætla á plötu ein-
göngu það lag sem var um það
bil 3 mínútur að lengd og byrj-
aði á skemmtilegu og skiptu
intrói, því þá gætu útvarps-
þulirnir kynnt hana skemmtí-
lega áður en kæmi að sjálfu
laginu. Þetta ráð hafði ekki
dugað okkur,
Við ákváðum því að láta
svona menn alveg eiga sig í
framtíðinni og láta þá hirða
sín ráð sjálfa. Þar með var
staðan 1:0 fyrir þeim. Um það
leyti keyptum við mellótrón-
inn sem okkur hafði langað til
að eiga í mörg herrans ár. Við
áttum tæplega fyrir mat, en
urðum að halda okkur að efn-
inu, svo við leigðum okkur
samkomusal í tvær vikur til
að æfa í.
Okkur fór mjög fram; við
höfðum ekkert að gera, en við
sömdum heila la'gaseríu, sem
við kölluðum „Days of Future
Past“. Það átti að verða fyrri
hluti hljómleikaprógramms.
Og þá hafði DECCA sam-
band við okkur. Þeir voru að
undirbúa nýja útgáfustarfsemi
vegna þeirra nýja Deramic
Sound System, og vildu að við
tækjum upp fyrir þá sígilt verk
í poppútsetningu.
Við fengum eintak af sinfón-
íu Dvoraks, „Nýi heimurinn“,
og var sagt að taka út laglín-
urnar og setja góðan takt við
þær og svo framvegis. Peter
Knight átti að gera útsetning-
ar fyrir London Festival Orch-
estra, sem átti að vera á bak
við okkur, svo augljóst er að
allt átti að vera mjög huggu-
legt.
Annaðhvort hljómar það sem
brjálæði eða argasta ósvífni, en
við höfðum vara heyrt hug-
myndina fyrr en við vorum
búnir að ákveða meiriháttar
svindl.
Áætlun okkar var á þá leið
að í stað þess að gera það sem
við höfðum verið fengnir til,
ætluðum við að taka upp
„Days of Future Past“ — á
tæki DECCA og nota þeirra
menn í þetta svindl með okkur.
Fyrst þurftum við náttúrlega
að tala Peter Knight inn í þetta
með okkur. Auðvitað var hann
heldur neikvæður til að byrja
með en eftir að hann hafði
hlustað á okkur féllst hann á
að leggja höfuðið imdir öxina.
Ég ber óskaplega virðingu fyr-
ir hugrekki hans.
Það er stórkostlega ótrúlegt
hvað hægt er að spila með
stórt fyrirtæki eins og DECCA.
Við vorum með eítt af aðal-
stúdíóum þeirra í tvær vikur,
með heilan hóp af allskonar
tæknimönnum í kringum okk-
ur. En enginn, nei alls enginn,
spurði nokkru sinni hvað við
værum að gera.
Og svo kom að degi uppgjörs-
ins!
DECCA hefur einskonar kvið-
dóm sem ræður því hvort upp-
Framhald á bls. 39.
„MITT
PERSÓNULEGA
ÁLIT Á ÞÍNU
PERSÓNULEGA
ÁLITI.*. M
Reykjavík, 25/2 1971.
Blessaður!
Þegar ég las greinar þínar
eins og venjulega í 8. tbl. Vik-
unnar, rak ég augun allt í einu
í þessa setningu: „(Leiðinleg
plata, LZ)“. Nú langar mig að
vita hvort þetta var innskot frá
þér eða hvort þetta var í grein-
inni um Zappa þegar hún barst
þér í hendur?
í þessari setningu eru mjög
margir ósammála þér og les-
endur hafa alls engan áhuga á
þinu áliti á þessum og hinum
hlutum, en í þessum þætti þín-
um í Vikunni finnst mér að þú
látir of mikið skína í þitt álit
á þessum og hinum hlutum. Ég
hef haldið að þetta væri þátt-
ur til skemmtunar ungum les-
enum Vikunnar, en ekki til að
koma þínum skoðunum á fram-
færi. T. d. ef eitthvað gerist í
popp-heiminum sem þér líkar
Xf'
38 LIÍ/1 •
ekki, nú þá er það prentað í
blaðið sem núll og nix.
Hins vegar þakka ég fyrir
einstaka greinar sem ekki hafa
verið fullar af persónulegum
hugmyndum þínum. En þegar
myndir voru þirtar af Kinks-
tónleikunum, gerðirðu bara
ekkert annað en skíta þá út.
Hvað hefði verið sagt, hefðu
þeir bara neitað að koma hing-
að? Ja, ég vildi nærri því að
svo hefði farið, því það er eins
og núna séu þú og aðrir blaða-
menn orðnir svo vandlátir með
poppið síð'an Led Zeppelin
komu hingað. Og þó að ég hafi
síffur en svo á móti Led Zeppe-
lin, má alls ekki dæma allar
aðrar hljómsveitir eftir LZ,
þeir voru þó kjörnir beztir í
heimi 1970! En ég býst við að
þú og þínir líkar hafi orðið
ánægðir með Kinks hefðu þeir
komið aðeins á undan Led
Framhald á bls. 38.
12. TBL. VIKAN 21