Vikan


Vikan - 25.03.1971, Síða 27

Vikan - 25.03.1971, Síða 27
\ I slíku yfir, því Jerome Robbins og Balanchine eru þeir bezlu í heiminuin í dag. —...En hver áhrif hafði þetta á meðdansara þína? — Tja .. . Þessi grein kom út þegar ég var hjá Hark- ness, og meðdansarar mínir sáu hana svo sem. Fæstir sýndu nokkur viðbrögð, en þeir sem það gerðu glöddusl með mér. Það er bara að samkeppnin er svo gifurlega hörð, að þetta gelur haft ýmisleg áhrif — ef það hefur þá áhrif á annað borð, sem ég hef ekki hugmynd um. Helgi Tómasson slettir einstaka ensku orði, og á erfitt með að tjá sig á köflum. — Ég lief aldrei þurft að tjá mig um ballet á íslenzku fyrr, sagði hann. — Þegar ég var í Danmörku þá hugsaði ég um ballet á dönsku og nu liugsa ég um hann á ensku. Þess vegna kemst ég i örlítil vandræði þegar ég þarf að fara að hugsa um þetta á islenzku allt í einu. En íslenzkan hans er góð, miðað við að hann hefur verið erlendis í nær 10 ár samfleytt. Hafa margir dvalið skemur erlendis og átt í meiri erfiðleikum með að tala tungu feðranna er heim var komið- Undanfarin ár hefur fjöldi balletsýningagesta aukizt alveg gífurlega, og mun láta nærri, að á fimm árum hafi hann tvöfaldast, ekki aðeins í New York, heldur öllum heiminum. Meira að segja á Islandi, og er nokkuð víst að ekki hefði verið hægt að selja upp á finnn ballet- sýningar hér á landi fyrir fimm árum. Yið spurðum Helga, hvort hann teldi einhverja ástæðu liggja til þess- „Ég hef aldrei planlagt neitt í sambandi viS ballet . . ." arar aukningar: — Fólk er farið að koma aftur og aftur, vegna þess að því likar það sem það sér, og ástæðan fyrir því er sú, að ballet er í stöðugri framför. Dansararnir verða æ hetri og kóreógrafian sömuleiðis, sérstaklega eftir þá Balan- chine og Jerome Robbins. Þá eru kröfurnar, sem eru gerðar til dansara, það miklar nú orðið, að þetta leggst- allt á eitt. Til dæmis gera áhorfendur miklu meiri kröf- Framháld á bls. 46. 12. TBL. VIKAN 27

x

Vikan

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.