Vikan - 25.03.1971, Qupperneq 50
1 næstu viku
„Þegar við eignumst
leikritahöfunda“.
VIKAN heimsækir ungan
leikara, Þórhall Sigurðsson
Þórhallur Sigurðsson er í hópi þeirra ungu
leikara, sem efnilegastir þykja og mestar
vonir eru bundnar viS. í fyrra vakti hann
athygli meS leik sínum ( „Malcolm litli", og
í vetur hefur hann skemmt börnunum í hlut-
verki Litla Kláusar. VIKAN heimsaakir Þór-
hall í næsta blaSi og spjallar viS hann um
leiklistina, framtíðaráform hans og sitthvaS
fleira. Viðtalinu fylgja litmyndir af Þórhalli
og fjölskyldu hans.
Að deyja
upp á
japönsku
ÞaS vakti heimsat-
hygli, þegar jap-
anska skáldiS Mis-
jíma framdi hara-
kiri. ViS birtum
ævisögu Misjíma í
næsta blaði, en
hann er vinsælasta
skáld Japans og
var orðinn marg-
faldur milljónamær-
ingur.
Ný og spennandi
framhaldssaga
„Á meðan bilstjórarnir voru á balli" nefnist
ný framhaldssaga, sem hefst í næsta blaði.
Hér er um að ræða hörkuspennandi saka-
málasögu eftir Mignon G. Eberhart, sem eng-
Inn má missa af.
Páskamaturinn í Eldhúsinu
Það líður óðum að páskum, og þá taka hús-
freyjurnar að huga að matnum yfir þessa
lengstu hátíð ársins. Dröfn H. Farestveit tek-
ur páskamatinn til meðferðar ( næsta Eld-
húsi Vikunnar. Þættinum fylgja myndir í
fjórum litum.
VIKAN
ferávöllinn
Handknattleikur er
vinsælasta (þróttin
þessa stundina. —
VIKAN fylgdi með
straumnum inn í
Laugardalshöll á
dögunum, og næst
birtum við nokkr-
ar svipmyndir það-
an.
HITTUMST AFTUR - ( NÆSTU VIKU
LEIKFONG.. ■ ■
Framháld af bls. 10.
mömmur, frœnkur og frændur
Vestur-Þýzkalands til að draga ekki
af sér við jólagjafakaupin handa
þeim fjórtán milljónum borgara
sambandslýðveldisins, sem eru
undir fjórtán ára aldri. Herferðin
tókst með ógætum: um jólin eyddu
Vestur-Þjóðverjar nærri þrjátíu
milljörðum króna í jólagjafakaup.
Enda var fullyrt í dagblaðinu „Das
Spielzeug“, að fjölmargar fjöl-
skyldur litu á leikföng barna sinna
sem virðingarmerki. Þegar að því
kæmi að kaupa leikföng, væri því
öll sparsemi látin lönd og leið.
Hið gífurlega framboð leikfanga-
framleiðenda á stöðugt nýjum og
æsandi tækniundrum hefur vakið
mikla gagnrýni þýzkra uppeldis-
fræðinga. Einn þeirra, prófessor
Horst Wetterling, hefur sakað fram-
leiðendur um að „steypa börnum,
sem eru of ung til að geta varið
sig, í ráðleysi og ringulreið." Upp-
eldisfræðingarnir segja að fram-
leiðendurnir stefni ekki að því að
börnin hafi sem mesta skemmtan
af leik sínum, heldur að sem mest
sé keypt. Og foreldrarnir eiga hér
líka sína sök. Prófessor' Hildegard
Hetzer, uppeldisfræðingurinn við
háskólann í Giessen, segir: „For-
eldrar virðast oft halda, að þeim
mun dýrara leikfang sem þau
kaupa barni sínu, því vænna þyki
því um þá.“
Uppeldisfræðingarnir benda á, að
börnin hafi að jafnaði miklu meira
gaman af einföldum leikföngum,
sem krefjist af þeim talsverðrar
vinnu og útsjónarsemi, svo sem
kubbum til að byggja úr, verkfær-
um, ílátum, teningum, gestaþraut-
um, . s. frv. Fyrir utan að þetta
kostar foreldra og aðra gefendur
engin teljandi fjárútlát, þá svala
þessi leikföng sköpunar- og starfs-
þörf barnsins og verða því til miklu
meira gamans heldur en rándýr,
tæknileg tryllitæki, sem venjulega
bila eftir skamma notkun og verða
þá aðeins til leiðinda.
Ekki er þó því að neita að leik-
fangaframleiðendur hafa eitthvað
reynt að laga sig eftir kenningum
þeirra uppeldisfræðinga, sem halda
fram „rétti smábarnsins til mennt-
unar“. En á jólavertíðinni gætir þó
ennþá mest hinna æsandi, en end-
ingarlitlu tæknilegu tryllitækja.
☆
50 VIKAN 12. TBL.