Vikan - 29.04.1971, Blaðsíða 48
Settur úr landsliðinu
Verður „Satan“
líflátinn
Upphaflega var búizt við að
réttarhöldin yfir Charles Man-
son myndu taka um 3 mánuði,
en honum tókst — með aðstoð
áhangenda sinna — að fram-
lengja þau í nær heilt ár. A
þessum tíma var mikið skrifað
um réttarhöldin og margar
myndir birtar af þessum sturl-
aða manni. Þegar réttarhöldin
hófust, skömmu eftir handtöku
hans, var Manson síðhærður
og líktist helzt spámanni, enda
nefndi hann sig þá Skrattann í
einu orði og Krist í því næsta.
Lengi vel hallaði hann sér að
síðarnefnda nafninu, en nú
hefur hann alveg snúið við því
bakinu og kallar sig einfald-
lega Djöfulinn. í samræmi við
það hefur hann látið klippa
hár sitt og sagði nýlega að
hann væri með stutt hár vegna
þess að hann væri Djöfullinn
og sá ágæti maður hefði alltaf
verið með stutt hár. Sam-
kvæmt myndum var veslings
maðurinn þó ólíkt gæfulegri
með allt hárið; svona nakinn
virðist djöfulskapur hans mun
greinilegri.
En nú er spurningin hvort
Manson verður líflátinn ásamt
þremur meðsekum kvinnum
sínum, þeim Susan Atkins, Pat
Krenwinkel og Leslie van
Houten. Engri dauðarefsingu
hefur verið fullnægt í Banda-
ríkjunum síðan þann 2. júní
árið 1967, þegar morðingi að
nafni Louis Monge var drep-
inn í gasklefanum í ríkisfang-
elsi í Colorado. í dag bíða auk
þeirra fjögurra 620 fangar
dauða síns í fangelsum víðs
vegar um Bandaríkin, en dauða-
refsing er í gildi í 41 ríki; að-
eins 9 hafa afnumið þá fornu
reglu: auga fyrir auga og tönn
fyrir tönn.
☆
geturöu botnað?
Enn er fremur dræm þátttaka í páskafyrripörtunum, en reyndar ekki
langur tími, síðan þeim var hleypt af stokkunum. Við ítrekum þá enn,
en þeir hljóðuðu svo:
Ymsir stunda úfinn sjó,
en aðrir kellu sína.
Geirfugl vildu gjarnan kaupa,
góðir, sannir Islendingar.
Leikmaðurinn frægi úr West
Ham og um leið fyrirliði brezka
landsliðsins í knattspyrnu, Bob-
by Moore, var nýlega settur í
þriggja leikja keppnisbann
vegna þess að hann sást á næt-
urklúbb í Blackpool daginn
fyrir mikilvægan leik. Og ekki
nóg með það, heldur setti ein-
valdurinn, Sir Alf Ramsey,
hann út úr landsliðinu þegar
16 leikmenn voru valdir til að
fara til Möltu til að leika í
Evrópubikarleik. Moore kom
fyrst fram á sjónarsviðið fyrir
9 árum, 1962, og hefur leikið
85 landsleiki.
☆
Nixon hættur að nota
brilljantín
Þeir sem taka virkan þátt í
samkvæmislífinu í Washington
eru í fýlu og hafa verið það
síðan Ríkharður Nixon varð
forseti þess lands. Er hann
álitinn ákaflega leiðinlegur
maður að sögn, enda tæplega
skilyrði fyrir menn að vera
skemmtilegir til að vera góðir
forsetar. En það sem átt er við
með fýlunni er að það eru ekki
oft haldin partý í Hvíta hús-
inu í þessari forsetatíð — þó
svo að blaðafulltrúi forsetans
haldi því fram að Nixon-hjón-
in hafi haft um 13.000 gesti til
hádegisverðar síðan þau fluttu
inn. Þá er því líka haldið fram
að partý Nixons, þau fáu sem
haldin eru, séu ákaflega leið-
inleg og hafi aldeilis verið
meira gaman á þeim tíma sem
Kennedy og Johnson voru for-
setar.
En Nixon er að yngja sig
upp, hefur fengið sér nýjan
skraddara og nýjan rakara,
sem hefur látið forsetanum
vaxa sér stutta barta og er
hættur að nota brilljantín.
Kragahornin á jökkum hans
hafa verið breikkuð og bind-
in sömuleiðis um leið og
þau hafa verið gerð skraut-
legri.
Eina sögu lásum við nýlega
í mjög virtu bandarísku blaði,
og stöndumst ekki freistinguna
að láta hana fylgja með. Það
skeði einhvers staðar að lög-
regluþjónn á mótorhjóli, sem
var í fylgd með bílalest for-
setans, datt og hlaut opið fót-
brot. Forsetinn vildi sýna nær-
gætni og lét því stöðva bifreið
sína og laut yfir manninn til
að tala lítið eitt við hann. Fyrst
spurði hann um líðan hans og
þar fram eftir götunum en þeg-
ar það var búið vissi hann
greinilega ekkert hvað hann
átti að segja næst, því hann
spurði eftir töluverða þögn:
„Hvernig kanntu við starfið?“!
☆
48 VIKAN 17. TBL.