Vikan


Vikan - 27.01.1972, Qupperneq 4

Vikan - 27.01.1972, Qupperneq 4
AÐEINS 112 KHÓNUfí Á 100 KÍLÓMETfíA Hver hefur ekki þörf fyrir flest heimilistæki þó að hann eigi bifreið? SKODA bifreiðar gera yður kleift fremur öðrum að eignast hvorttveggja. Miðað við aðra algenga 5 manna bifreið, sparið þér 16.000.00 krónur árlega í benzíni ( miðað við 20.000 km árlegan akstur), sem þér getið varið til kaupa á heimilistækjum eða öðru þvf, sem hugurinn girnist, t. d. sumarleyfisdvöl á Kanaríeyjum SKODA 100 Glæsitegt dæini um hagkvæmni og smekk. Innréttingar og frágangur 1 sérftokki. Diskahemlar — Tvöfalt bremsukerfi — 4ra hraöa þurrkur — Bamalæsingar — Radial hjtSlbaröar OG EYÐIR AÐEINS 7 LlTRUM A 100 KM. VIÐGERÐAÞJÓNUSTA VARAHLUTAÞJÓNUSTA 5 ÁRA RYÐKASKO. .rarijV. /2T3TEL. TÉKKNESKA BIFREIÐAUMBOÐIÐ A ÍSLANDI H.F. AUÐBREKKU 44 - 46 KÓPAVOGI SlMI 42600 Það er stolt hvers ökumanns að aka hreinum og gljáandi bíl. * Hversvegna aka óhreinum bíl, þegar hægt er að fá hann þveginn, ryksugaðan og bónaðan á 15 mínútum í Sigtúni 3 P0STDRINN Ruslakarfa Póstsins Elsku Póstur! Hvernig er það, lenda mörg bréf í körfunni hjá þér, Póstur góður? BITR. Já, mjög mörg. Til dæmis öll þau bréf sem ekki eru með fullu nafni og heimilisfangi og hér eftir gerum við þá kröfu að símanúmer fylgi líka. Annars er það um það bil helmingurinn sem fer beint í körfuna. Tilgangur lífsins Ráðagóði Póstur! Þannig er mál með vexti, að við félagarnir eigum við dálítið vandamál að stríða. Við sitjum hér að kvöldi dags og íhugum tilgang lífsins. Okkur finnst lífið vera orðið eilíf hringrás miðvikudagsmennsk- unnar. Við erum allir í skóla. Líf okkar gengur þannig fyrir sig: Við förum í skólann kl. 8 að morgni, komum heim og lærum, stöku kvöld hittum við kunningjana eða horfum á sjón- varp. Um helgar drekkum við okkur blindfulla og eigum í sí- felldri baráttu við dyraverði veitingahúsanna. Oft og einatt hittum við stelpur og erum með þeim ýmist lengri eða skemmri tíma. Það virðist vera tilgangur flestra stelpna nú á dögum (og hefur ef til vill verið áður) að hafa af manni sem mesta peninga, svo að sumarhýran er fljót að fara. Ýmsir kunningja okkar hafa reynt hassið og telja sig hafa fundið sjálfa sig með þeim hætti, en við erum ragir við það. Okkur þykir tilgangur lífsins því harla óljós og væntum ráða frá þér eða einhverjum þeirra sem til þín skrifa. Með fyrirfram þökk. Þrír svartsýnir nemar. Vilja lesendur ekki hjálpa okk- ur að hughreysta þessa svart- sýnismenn? Slitiö hár Elsku Póstur! Við erum hérna tvær stelpur sem kaupum alltaf VIKUNA og finnst hún ofsalega skemmtileg. Sérstaklega þó Pósturinn og stjörnuspáin. Nú langar okkur, elsku Póstur, að spyrja þig um eitt. Hvers vegna slitnar og klifnar hárið á manni? Hvað getum við gert til að koma í veg fyrir það? Við vorum báðar með sítt hár en lét- um klippa okkur fyrir tæpu ári, vegna þess að það var svo slit- ið. Núna er það allt orðið slitið aftur, þótt við reynum að særa það til að forðast slit. Hvað getum við gert? Er alveg vonlaust að ná þessu úr hárinu? Tvær hálf vonlausar. Hár er ákaflega vandmeðfarið og til að forða því frá sliti verð- ur að gæta þess að túbera það ekki og forðast alla kemíska vökva og liti. Farið annars til rakara cða hárgreiðslustúlku og fáið góð ráð. Svar til Stínu Óþarfi er nú fyrir þig að kalla þetta vansköpun, en ekki kunn- um við ráð við þessu. Farðu til heimilislæknisins þíns og ef þú þorir ekki að fara, skaltu hringja. Bangla Desh Kæri Póstur! Veizt þú hvort íslenzka ríkis- sjórnin er búin að viðurkenna Bangla Desh eða hvenær á að gera það? Jæja þá. Þegar þetta er ritað hafa aðeins tvö ríki heims viðurkennt Bangla Desh og eftir því sem við kom- umst næst, hefur íslenzka rikis- stjórnin ekki tekið afstöðu til málsins ennþá, en þess verður vafalaust ekki langt að bíða að við tökum upp stjórnmálasam- band við hið nýja ríki. 4 VIKAN 4. TBL.

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.