Vikan - 27.01.1972, Blaðsíða 33
V
Frekar lítið hefur verið flutt inn af BMW, þrátt fyrir það að hér er
eflaust um afbragðsbíla að raeða. Þeir eru byggðir ( Munchen, V.-
Þýzkalandi af Bayerische Motoren Werke. Þeir eru aðallega fluttir
hingað í fjórum afbrigðum, 1602, 2002, 1800 og 2000. Vélar eru
allar 4 cyl. 1573cc (96 hö), 1990cc (113 hö), 1766cc (102 hö) og
loks 1990cc (113 hö), taldar upp í sömu röð og afbrigðin. Eyðslan
er um 10 1 @ 100 km. Allir hafa þeir diskahemla að framan og
tvöfalt bremsukerfi. BMW hefur fjögurra gíra alsamhaefðan gírkassa,
en gegn aukakostnaði er möguleiki á fimm gírum eða sjálfskiptingu.
Verð: 1602 ca. kr. 420.000,-
2002 ca. kr. 450.000,-
1800 ca. kr. 535.000,-
2000 ca. kr. 545.000,—
Umboðsm.: Kristinn Guðnason, Klapparstig 27.
BMW
RENAULT 16
RENAULT
Renault býður nú fram tvö ný afbrigði, sem nefnast 15 og 17 og
eru bæði tveggja dyra hraðbakar (fastback) byggðir ofan á undir-
vagn úr Renault 12. Þessir nýliðar frá Renault munu ætlaðir sem
mótleikur gegn Opel Manta, Ford Capri og öðrum slíkum sport-
fólksbilum. Renault er eina bílaverksmiðja Frakklands, sem fram-
leiðir yfir eina milljón bíla á ári, og jafnframt sú sem framleiðir
flesta framhjóladrifsbíla í heimi, og eru þessi nýju afbrigði því að
sjálfsögðu framhjóládrifin. Þau nota vélar úr R12 og Rló, eða
1289cc (68 hö) og 1565cc (102 hö) og eru með fjögurra gíra al-
samhæfðum gírkassa, en fáanleg sjálfskipting og fimm gíra kassi
gegn aukakostnaði. Renault bifreiðir eru allar með diskahemla við
framhjól utan R4.
Verð: R4 ca. kr. 221.000,-
R6 ca. kr. 261.000,-
R12 ca. kr. 315.000,-
R16 ca. kr. 353.000,-
R15 ca. kr. 370.000,-
R17 ca. kr. 440.000,-
Umboðsm.: Kristinn Guðnason, Klapparstíg 27.
RENAULT 17
4. TBl. VIKAN 33