Vikan


Vikan - 27.01.1972, Blaðsíða 17

Vikan - 27.01.1972, Blaðsíða 17
um aíS karlinn væri orðinn sjóðandi vitlaus, en eins og þið vitið má aldrei hafa neitt á móti því sem vitlausir menn vilja láta gera. „Miðaðu ofurlítið neðar,“ segir karlinn og ég lækka sigt- ið. „Hleyptu af — skjóttu," kall- aði karlinn. Mér varð s\ o bilt við, að ég hleypti af úr báðum hlaupum í einu og helvítis byssan sló mig svo, að ég steinlá á dekk- inu. „Fínt — fínt,“ hrópaði karl- inn og um leið heyrði ég feikna skvamp og buslugang úti í þokunni. „Út með prammann," skrikti í karlinum. Við settum pramm- ann á flot og rerum í áttina að þeim stað, sem skvamphljóðið hafði heyrzt úr. Og viti menn, eftir augnablik kemur Ósflesin fram úr þokunni og á henni liggja fjórir steindauðir kópar, skotnir kyrfilega gegnum haus- inn. Við innbyrtum veiðina og rerum í áttina að kollunni. Karlinn sat aftur í pramman- um og neri saman höndunum og tautaði: „Vél skotið, — Kelvítí-vél skotið.“ Og það viðurkenndi ég líka sjálfur. „Já, satt er það, vel hefur verið skotið og nákvæmlega siglt,“ svaraði ég, „en vantrú- aður er ég nú samt.“ „Það getur verið að þú sért Vantrúaður, en við, sem til þekkjum, vitum að satt er,“ svaraði Tóti, þó ekki þykkju- laust, svo birti yfir honum og hann bætti brosandi við: „Það voru nú fleiri, sem gátu siglt í Austfjarðaþokunni, en Kristján á „Bárunni". Það var fjandi gott bragðið, sem hann Jón, skipstjóri á „Kára“, lék hérna einu sinni. Kerlingin hans var fjárans gribba. Hún linnti aldrei á skömmum með- an Jón var í landi og alveg ætlaði hún af göflunum að ganga, ef hann fékk sér í staupinu, sem var nú æði oft, því við austfirzku sjómennirn- ir höfum löngum verið ölk?er- ir. Jón var orðinn dauðleiður á kerlingunni og hugði ekki á annað en að koma fram hefnd- um og venja kerlinguna á betri siði. Svo var það eitt haust að við, ég var sem sé háseti hjá Jóni þá, við vorum að flytja fisk frá Vopnafirði til Seyðisfjarðar. Af sérstökum ástæðum ætla ég að geta þess, þó það komi ekki sjónum við, að snjór var orð- inn mikill og ófærð um alla landvegi. Þeir, sem þurftu fjarða á milli, notuðu út í yztu æsar þessa síðustu haustferð okkar. Já, þannig var nú út- litið, lagsmaður, þegar við vor- um að leggja út um morgun- inn. Kerlingin hans Jóns stóð á bryggjunni og glápti á karlinn í stýrishúsglugganum. Karlinn var nú nokkuð rauður í and- liti, en ég held að það hafi bara verið af kuldanum. Allt í einu vatt kerlingin sér um borð og inn í stýrishús og við heyrðum að hún sagði: „Jón, þú ert full- ur, skammast þú þín ekki fyr- ir að fara fullur á sjóinn?“ „Ha, hvað, — fullur? Nei, við fyllum ekki fyrr en á Vopnafirði," svaraði Jón og Framhald á bls. 37. 4. TBL. VIKAN 17

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.