Vikan - 27.01.1972, Qupperneq 17
um aíS karlinn væri orðinn
sjóðandi vitlaus, en eins og þið
vitið má aldrei hafa neitt á
móti því sem vitlausir menn
vilja láta gera.
„Miðaðu ofurlítið neðar,“
segir karlinn og ég lækka sigt-
ið.
„Hleyptu af — skjóttu," kall-
aði karlinn.
Mér varð s\ o bilt við, að ég
hleypti af úr báðum hlaupum
í einu og helvítis byssan sló
mig svo, að ég steinlá á dekk-
inu.
„Fínt — fínt,“ hrópaði karl-
inn og um leið heyrði ég feikna
skvamp og buslugang úti í
þokunni.
„Út með prammann," skrikti
í karlinum. Við settum pramm-
ann á flot og rerum í áttina að
þeim stað, sem skvamphljóðið
hafði heyrzt úr. Og viti menn,
eftir augnablik kemur Ósflesin
fram úr þokunni og á henni
liggja fjórir steindauðir kópar,
skotnir kyrfilega gegnum haus-
inn. Við innbyrtum veiðina og
rerum í áttina að kollunni.
Karlinn sat aftur í pramman-
um og neri saman höndunum
og tautaði:
„Vél skotið, — Kelvítí-vél
skotið.“ Og það viðurkenndi ég
líka sjálfur.
„Já, satt er það, vel hefur
verið skotið og nákvæmlega
siglt,“ svaraði ég, „en vantrú-
aður er ég nú samt.“
„Það getur verið að þú sért
Vantrúaður, en við, sem til
þekkjum, vitum að satt er,“
svaraði Tóti, þó ekki þykkju-
laust, svo birti yfir honum og
hann bætti brosandi við:
„Það voru nú fleiri, sem gátu
siglt í Austfjarðaþokunni, en
Kristján á „Bárunni". Það var
fjandi gott bragðið, sem hann
Jón, skipstjóri á „Kára“, lék
hérna einu sinni. Kerlingin
hans var fjárans gribba. Hún
linnti aldrei á skömmum með-
an Jón var í landi og alveg
ætlaði hún af göflunum að
ganga, ef hann fékk sér í
staupinu, sem var nú æði oft,
því við austfirzku sjómennirn-
ir höfum löngum verið ölk?er-
ir.
Jón var orðinn dauðleiður á
kerlingunni og hugði ekki á
annað en að koma fram hefnd-
um og venja kerlinguna á betri
siði.
Svo var það eitt haust að við,
ég var sem sé háseti hjá Jóni
þá, við vorum að flytja fisk frá
Vopnafirði til Seyðisfjarðar. Af
sérstökum ástæðum ætla ég að
geta þess, þó það komi ekki
sjónum við, að snjór var orð-
inn mikill og ófærð um alla
landvegi. Þeir, sem þurftu
fjarða á milli, notuðu út í yztu
æsar þessa síðustu haustferð
okkar. Já, þannig var nú út-
litið, lagsmaður, þegar við vor-
um að leggja út um morgun-
inn.
Kerlingin hans Jóns stóð á
bryggjunni og glápti á karlinn
í stýrishúsglugganum. Karlinn
var nú nokkuð rauður í and-
liti, en ég held að það hafi bara
verið af kuldanum. Allt í einu
vatt kerlingin sér um borð og
inn í stýrishús og við heyrðum
að hún sagði: „Jón, þú ert full-
ur, skammast þú þín ekki fyr-
ir að fara fullur á sjóinn?“
„Ha, hvað, — fullur? Nei,
við fyllum ekki fyrr en á
Vopnafirði," svaraði Jón og
Framhald á bls. 37.
4. TBL. VIKAN 17