Vikan


Vikan - 27.01.1972, Side 5

Vikan - 27.01.1972, Side 5
Módel Kæri Póstur! Ég er 17 ára gömul, há og grönn, og á þá ósk heitasta að geta orðið módel. Hvert á ég að snúa mér? Twiggy. „______ (-— Hér á höfuðborgarsvæðinu eru starfandi að minnsta kosti tvenn samtök sýningarfóiks og til dæmis getum við bent þér á að tala við Unni Arngrímsdóttur, stjórnanda Módelsamtakanna, en hún er t síma 33222. Myndasögur Kæra Vika! Mamma mín kaupir alltaf VIK UNA og mér finnst gaman að lesa hana. Sérstaklega finnst mér gaman að myndasögunum. Hver býr þær til? Skuggi. Myndasögurnar sem við höfum birt í fjöldamörg ár, eru ame- risk framleiðsla, en við fáum þær í gegnum sænskt dreifing- arfyrirtæki. Okkur berast þær í hendur á ensku, en síðan er það hlutverk eins starfsmanns blaðs- ins að skera erlenda textann út úr myndunum og þý8a íslenzk- an í rammana. Nöfn teiknaranna fylgja hverri sögu. Einmana 15 ára Elsku Póstur minn! Ég hef oft skrifað þér áður og yfirleitt fengið góð svör, svo ég vona að svo verði líka nú. Það er nefnilega svoleiðis, að vin- konur mínar eru alltaf að tala um strákana sem þær eru með og voru með síðast og svo fram vegis. Ég hef aldrei verið með strák og er farin að halda að ég sé eitthvað afbrigðileg. Ég er ágætlega þroskuð, bæði andiega og líkamlega, svolítið feimin til að byrja með en mér hefur al- drei fundizt ég öðruvísi en stelp- ur sem eru eins og gerist og gengur, nema að ég er kannski svolítið alvarlegar hugsandi og segi allt sem mér dettur í hug. Ef mér finnst eitthvað leiðinlegt við einhvern, þá segi ég honum það; það er að segja, ég gerði það, en núna er ég farin að sjá að það dugar ekki ef mér á að haldast í vinina. Ég er ekkert forljót en er ekki alveg viss um hvað skemmtileg ég er. — Jæja, segðu mér nú hvað þér finnst um mig og hvort þú haldir að ég sé eitthvað hinsegin. Ég er að verða 15 ára og get alls ekki hugsað mér að vera með hverj- um sem er. Ef þú sérð eitthvað merkilegt út úr krassinu, segðu mér þá hvað það er. Frikka. Ef eitthvað merkilegt er að sjá út úr „krassinu", þá er það helzt að þú ert óvenju stílfær af 14 ára stúlku og því datt okkur so- sum í hug að þú værir einhver önnur en þú segist vera. Jæja, hvað með það, þú þarft áreiðan- lega engar áhyggjur að hafa af því þótt þú hafir aldrei verið með strák cg ekki sjáum við ástæðu til að ætla að þú sért „eitthvað hinsegin". Þú segist segja allt við alla og á vissan hátt er það gott, en það er einnig gott að muna að oft má satt kyrrt liggja og að ekki er sama hvernig maður segir hlutina. Ekki er ólíklegt að það sé einmitt þetta sem er að; Þú fælir frá þér „sénsinn" áður en hann er almennilega búinn að taka ákvörðun um að „reyna við þig". íþróttakennara- skólinn Kæri Póstur! Ég ætla að byrja á því að þakka þér fyrir allt gamalt og gott. Ég þarf að biðja þig að leysa dá- lítið vandamál fyrir mig. Hvaða menntun þarf til að komast á [þróttakennaraskólann? Sumir segja að maður þurfi kennara- skólapróf og aðrir halda fram að gagnfræðapróf nægi. Hvað segir þú um það? Með fyrirfram þakklæti. X. Kennaraskólapróf er lágmark og er samkeppnin hörð. Árlega þarf að útiloka 80—90% um- sækjenda. M1Ð5PRENTUN Takið upp hina nýju aðferð og látiö prenta alls konar aðgöngumiða, kontrolnúmer, til- kynningar, kvittanir o.fl. á rúlIupappír. Höf- um fyrirliggjandi og útvegum með stuttum fyrirvara ýmis konar afgreiðslubox. LEITIÐ UPPLÝSINGA HILHIR hf Skipholti 33 - Sími 35320 -------------------------; 4. TBL. VIKAN 5

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.