Vikan - 27.01.1972, Page 16
AUSTFJARÐA-
ÞOKAN
Gamansöm frásögn eftir
KRISTJÁN IMSLAND
Þegar ég kom af vaktinni
inn í hásetaklefann, henti ég
rennblautri húfunni, þoku-
suddakaldri, á ofninn til að
þurrka hana, sletti mér niður
við borðið og greip kaffikönn-
una.
„Er sama þokan enn?“ spurði
Jói.
„Ætli ekki,“ svaraði ég,
„eða heyrir þú ekki helvítis
gaulið í flautunni?“
.,Ojú, en ég átti nú við hvort
hún væri jafn svört enn?“
„Kolsvört."
„Já, svört maður,“ gall við
í Tóta, „hún er alltaf jafn hel-
víti svört Austfjarðaþokan."
„Er það?“
„Ojá, ætli það sé ekki svo,“
svaraði Tóti. „Ég held að hún
hafi stundum verið svört, hérna
árin sem ég sigldi með honum
Kristjáni gamla á „Bárunni".
En það gerði nú ekki mikið til,
því karlinn þekkti bæði koll-
una og ströndina betur en
svellþæfðu ullarbrókina sína,“
hélt Tóti áfram.
Ég leit á Tóta og sá fljótt að
frásagnarandinn var yfir hon-
um, en mér þótti samt rétt að
ýta lítið eitt við honum.
„Ha, hvernig þá?“
Það lyftist brúnin á Tóta og
hann hóf þegar frásögnina.
„Ég skal bara segja ykkur
eitt dæmi. Við vorum í fisk-
flutningum frá Skálum á
Langanesi til Seyðisfjarðar það
sumar. Einn laugardagseftir-
miðdag sigldum við frá Skál-
u'm í svo svartri þoku, að ekki
var nokkur leið að sjá hvað
væri aftur eða fram á kollunni.
Ég stóð við stýrið og sagði
karlinn mér að stýra SSE. Á
vaktaskiptum tók karlinn sjálf-
TEIKNING SIGURÞÓR JAKOBSSON
ur við stýri, en ég fór í koju
og kom ekki á dekk aftur fyrr
en á sunnudagsmorgun, að ég
tók við vaktinni af Geira. Enn
var svarta þoka, svo ég spurði
hann um leið og ég tók við
stýrinu, hvort ekki hefði sézt
land um nóttina.
„Ekki held ég nú það, karl-
inn hefur alltaf verið að blása
í þokuhornið og einu sinni blés
hann svo í það að það kom gat
í þokuna, eins og eftir riffil-
kúlu og sást þar glitta í eitt-
hvað svart, hefur sennilega
verið land, því karlinn sneri
sér þá þannig, en það var ekki
svo að hægt væri að gera stað-
arákvörðun, gatið skrapp strax
saman og karlinn hætti að
blása,“ og Geiri spýtti brúnni
tóbaksklessu út í þokuna. En
helvíti var gaman að sjá
hvernig klessan sat föst i þok-
unni, meðan við sigldum fram
hjá henni.
Ég hafði ekki staðið lengur
en góðan klukkutíma við stýr-
ið, þegar karlinn kom sjálfur
upp og tók við stjórn.
„Farðu framá, Tóti, og gerðu
klára kastlínuna," segir hann.
Ég glápti bara á karlinn. Mér
hefði nú fundizt nær að gera
klárt akkerið, láta það fara og
bíða svo þess að eitthvað létti
upp. En sem sagt, karlinn skip-
aði fyrir og mitt var að hlýða.
Ég stóð því klár með kastlín-
una þegar karlinn fór að hægja
ferðina á kollunni. Rétt á eft-
ir lét hann vélina taka afturá
og kallaði til min: „Hífa kast-
línu í land.“
Hífa í land, sagði ég svona
við sjálfan mig. Hífa einhvern
f jandann út í þokuna? Nú hlaut
karlinn að vera búinn að missa
álla vitglóru. Ég bjó mig samt
til að kasta linunni stjórnborðs-
megin út.
„Bakborðshlið að bryggju,"
öskraði karlinn.
„Bakborðshlið að bryggju,"
öskraði ég, snerist á hæl, þeytti
línunni út í þokuna og batt end-
ann í fangalínuna okkar. En
viti menn, lagsmaður, það er
sko, fanden gale mig, hífað í
linuna og eftir augnablik
glymur bolaraust Jónasar
bryggjuvarðar:
„Það er fast.“
Og þegar Geiri kom upp úr
lúkarnum lágum við bundnir
við bæjarbryggjuna á Seyðis-
firði.
„Fjandi hefur karlinn verið
kræfur,“ sagði ég.
„Ójá, hann var það, en hann
sigldi nú heldur ekki eingöngu
eftir kompás og loggi, hann
hlustaði eftir bergmálinu af
mótorskellum frá fjöllum og
öllum fjandanum, þegar þoka
var.
„Ég trúi því nú ekki vel.“
„Trúir þú ekki,“ segir Tóti
og það hálf þykknar í honum.
„Ég skal þá segja ykkur aðra
sögu af karlinum, svo þið get-
ið sannfærzt um að þetta er
satt.
Einu sinni fórum við frá
Seyðisfirði á leið norður, í
engu minni þoku en ég sagði
ykkur frá áðan. En svo hagar
til á þessari leið, að fyrir norð-
an Njarðvík, út af Ósfjöllum,
liggur sker eitt er Ósfles nefn-
ist. Þar heldur sig alltaf mik-
ið af sel og karlinn þurfti oft
að fá sér sel í soðið. Jæja, við
sigldum og sigldum og alltaf
var sama sótsvarta þokan. Ég
var niðri að fá mér kaffisopa,
þegar ég heyrði eitthvert ísk-
ur í karlinum og að hann hæg-
ir á vélinni. Ég svolgraði í mig
kaffið, hljóp upp og aftur á til
karlsins.
„Farður niður í vélarhús,
náðu í byssuna og selaskotin,“
segir hann. Ég hljóp niður, en
var þó að brjóta heilann um,
hvern fjandann hann hefði
getað séð í þessari þoku.
„Stoppaðu vélina,“ hvíslaði
karlinn niður í gatið.
Ég stoppaði vélina og lædd-
ist upp með byssuna.
„Hleðslu í bæði hlaupin,“
segir karlinn og rennir koll-
unni ósköp hægt í hálfhring.
„Komdu hingað með byss-
una, svona, stattu nú þarna,
líttu á kompásinn og miðaðu
í NV.“
Ég hlýddi alveg undrandi og
hræddur, því ég var handviss
16 VIKAN 4. TBL.