Vikan


Vikan - 27.01.1972, Blaðsíða 31

Vikan - 27.01.1972, Blaðsíða 31
PEUGEOT 404 PEUGEOT 404 Frá Peugeot ! Frakklandi eru boðin hér til sölu fjögur meginafbrigði, sem nefnast 204, 304, 404 og 504. Það kom fram í blöðum fyrir nokkru að í Rhodesiu, þar sem bílavarahlutir hafa svipaða markaðs- aðstöðu og „hass", hafa Peugeot-bilar staðið sig vel og bilað lítið, og held ég að eigendur þeirra hér séu almennt sammála þvi. 204, sem er þeirra mjnnstur, eins og tölurnar gefa til kynna, hefur 1130cc vél (60 hö), en 304 hefur 1288cc vél (70 hö), 404 hefur 1618cc vél (73 hö) og loks hefur 504 vél, sem hefur sprengirými 1971cc (98 hö). 204 og 304 hafa framhjóladrif, en hinir tveir drif á aftur- hjólum, og allir hafa þeir diskahemla að framan, en 504 hefur auk þess diskahemla við afturhjól. Verð: 204 kr. 341.000,- 304 kr. 379.000,- 404 kr. 394.000,- 504 kr. 465.000,- Umboðsm.: Hafrafell hf., Grettisgötu 21. EPUQJKgtlCDTr 4. TBL. VIKÁfjf 31 i

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.