Vikan


Vikan - 29.03.1972, Blaðsíða 18

Vikan - 29.03.1972, Blaðsíða 18
CAROLE KING: TOPPLÖG í FJÖLDA - FRAMLEIÐSLU Lítillega drepið á feril og tónlist konunnar sem lagt hefur heiminn að fótum sér. Það var ekki svo lítið veður gert út af því þegar sænska „leikkonan“ Britt Ekland kom hingað fyrir tilviljun, er ein- hver óprúttinn fýr hvíslaði því að TWA að sprengja væri í einni flugvél þeirra. fslenzkir blaða- og fréttamenn þustu út á flugvöll'og mynduðu Britt í bák og fyrir og flestir tóku fram að maðurinn sem með henni var á myndunum héti Lou Adler og væri amerískur „framleiðandi". Þrátt fyrir að Britt Ekland hafi falleg brjóst (eins og sést í myndinni „The Night They Raided Minsky‘s“). þá er hún nauðaómerkileg leik- kona, en aftur á móti verður ekki sagt um Lou Adler að hahn sé hauðaómerkilegur. Rétt er, að hann er kvikmyndafram- leiðandi, og fékk til dæmis ein mynda hans, sú fyrsta ef ég man rétt (Brewster McCloud), nokkuð góða dómá. Það sem Lou Adler er þó fyrst og fremst þekktur fyrir — og virtur að sama skapi — er stjórn hans á hljómplötuupptökum (record production). Hann hefur átt stóran þátt i velgengni fólks eins og þeirra ' Jan & Dean, Mama's & Papa's, Neil Sedaka og að ógleymdri Carole King. Adler hefur verið persónuleg- ur vinur Carole í mörg ár, og það var hann sem stjórnaði upptökunni á plötunum henn- ar, „Writer", „Tapestry" og svo þeirri nýjustu, „Carole King Music“. Engan þarf að undra, að Adler hefur hina mestu trú á Carole King — sá sem hefur það ekki hlýtur að vera eitt- hvað bilaður á efri hæðinni — og sagði hann til dæmis nýlega um „Music“, að Carole hafi alltaf verið fær um að semja fyrir aðra lög, sem færu ör- ugglega í eitt af efstu sætum vinsældalistans, og þar sem hún hafi þurft 12 góð lög (follow- ups) til að fylgja „Tapestry“ eftir, hafi hún samið þau og kallað einu nafni „Carole King Music“. (Kannski er þetta dá- lítið þvælt, en við vonum að það skiljist). Carole er lítið fyrir að veita viðtöl og hefur m. a. neitað bæði Time og Newsweek um forystugreinar. „Henni finnst hreinlega ekki borga sig að vera að útskýra allt mögulegt fyrir fólki,“ sagði Adler í við- tali á fyrra ári. „Hún vill lifa sínu eigin persónulega lífi þeg- ar hún er ekki við upþtöku eða á hljómleikum og þá er engin ástæða fyrir hana að vera að útskýra líf sitt. Tón- list hennar er auðskilin og það þarf ekki að blanda henni sam- an við persónulegt líf hennar." Carole King er búin að vera í „bransanum“ í rúman ára- tug. Til að byrja með var hún hluti af Goffin/King-tónskálda- dúettinum, en Gerry Goffin var eiginmaður Carole í mörg ár og gat við hana tvö börn. Fyrsta lagið sem þau gerðu og sleikti toppinn á vinsældalistunum var „Will You Still Love Me To- morrow?" með the Shirelles. Þá voru þau Gerry í vinnu hjá fyrirtæki sem út,vegaði söngv- urum og hljómsveitum lög og reyndar var Lou Adler for- stjóri þess fyrirtækis. Þurftu þua Carole og Gerry að syngja og leika inn á svokallaðar „demo-plötur“, en það eru eins konar prufuplötur, sýnis- horn af því sem listamennirn- ir gera. Eru þessar „dernos" svo sendar til hljómplötufyrir- tækja, er síðan taka ákvörðun um hvort eigi að gefa plötuna út og í þessum tilfellum hver eigi að syngja. Eitt laganna sem þau Carole og Gerry sömdu heitir „It Might As Well Rain Until September" og var það upphaflega ætlað Bobby Vee. Þegar allt kom til alls kærði Vee sig ekki um lagið og þá söng Carole það sjálf. Það var árið 1964 og lagið komst á „top-20“ í Bandaríkj- unum. Auk þeirra tveggja laga sem nú eru upptalin, má nefna eftir Goffin/King „Locomotion" fyrir Little Eva, „Go Away Little Girl“ fyrir Steve Lawr- ence, „Take Good Care Of My Baby“ fyrir Bobby Vee, „I‘m Into Something Good“ fyrir Herman's Hermits, „Natural Woman" fyrir Arethu Franklin, „Goin‘ Back“ fyrir Byrds (síð- ar einnig flutt af Dusty Spring- field) og fleiri og fleiri. Það var ekki fyrr en í kring- um ‘67 að Carole fór að mæta í stúdíóin til þess beinlínis að taka upp sjálfa sig. Þá hafði hún stofnað hljómsveit, The City, ásamt Danny Kootch og Charles Larkey, sem nú er eig- inmaður hennar og hefur ný- verið eignazt með henni barn, rétt eins og skýrt var frá í 10. tbl. þessa árs. The City gerði eina LP-plötu, sem seldist mjög lítið þá, enda voru allir hálf- máttlausir af hrifningu yfir Cream, Hendrix og fleirum á þeirri línu, en síðan hefur fólk fengið smekk fyrir tónlist Car- ole King og er platan nú safn-.. gripur — og verður ekki end- urútgefin. Meðal laganna á þessari plötu eru lög eins og „Hi-De-Ho“, sem var á BS & T 3 og „I Wasn't Born To Follow“, sem margir hafa tek- ið til flutnings. The City kom hvergi fram opinberlega og gerði ekkert nema þessa einu plötu, en með- limir hljómsveitarinnar hafa svo sannarlega látið að sér kveða. Um Carole vita allir en þeir Danny Kootch og Charlie Larkey hafa báðir verið í Jo Mama og auk þess mikið með James Taylor bæði á plötum og hljómleikum. Carole lék með Taylor á „Sweet Baby James“ og hann endurgalt henni með því að hjálpa henni við fyrstu sólóplötuna hennar, „Writer“ og eins á „Tapestry“. „Það er gott að vinna með James,“ var einhvers staðar haft eftir henni. „Balði sem manni og músí- kant.“ Og væntanlega líkar James þokkalega við Carole, hann tók eitt laga hennar eins og við munum, „You‘ve got a friend" og setti það á Mud Slide Slim . . . Framhald á bls. 28. 18 VIKAN 13.TBL.

x

Vikan

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.