Vikan


Vikan - 29.03.1972, Qupperneq 33

Vikan - 29.03.1972, Qupperneq 33
piltur leit út fyrir að vera um sextán ára. — Til að sýna að ég sé ekki ruglaður, svaraði Gérard og yppti öxlum. — Hversvegna ert þú sjálfur hér? — Nauðgun, sagði ungling- urinn rólega. Og svo bætti hann við og það var ekki laust við stolt í rödd hans: — Endurtek- ið brot og bílþjófnaður. — Jæja, sagði Gérard, — jæja... Hann vissi ekki hvað hann átti að segja. Til að dylja vand- ræði sín, sneri hann sér að öðr- um pilti. —- En þú? — Þetta var myndarlegur piltur, en ákaflega innilokaður á svipinn. Hann svaraði engu, en kjálkavöðvarnir voru á stöðugri hreyfingu. Hvað er að þér, sagði ljós- hærði pilturinn. — Út með sprokið! Hinn pilturinn snerist á hæli og gekk burt, löngum rólegum skrefum, með hendurnar í vös- um og olnbogana að síðum. Ljóshærði pilturinn hló hátt. — Þessi var næstum því bú- inn að kála leigubílstjóra, sagði sá ljóshærði. Tveir hjúkrunarmenn komu r.ú út úr aðalbyggingunni og gengu til Gérards. — Gérard Leguen? — Já... — Við erum komnir að sækja yður. Gérard leit á þá. Hann var svolítið hissa. Höfðu þeir þá ákveðið að sleppa honum, áður en álit sálfræðingsins lá fyrir? Hann fór með mönnunum, en honum fannst svolítið óþægilegt að þeir gengu sitt hvorum meg- in við hann og höfðu greinilega gætur á hverri hreyfingu hans. Á hlaðinu beið sjúkrabíll. Gérard náði í dótið sitt og sett- ist svo við hlið ökumannsins. Honum leið ekki vel. Sjúkrabílnum var svo ekið frá rannsóknastofunni og út í sveit. Harðir og óhreinir snjó- skaflar voru víða á leiðinni. —• Hvert eruð þið að fara með mig? — Til Sainte-Agathe, það er sjúkrahús. — Sjúkrahús? Hversvegna á ég að fara þangað? — Það er líklega of mikið sagt að það sé sjúkrahús, sagði annar hjúkrunarmaðurinn góð- látlega. Það er eiginlega hvíld- arheimili. Svo ók bílstjórinn gegnum trjágöng og myndarlegt hlið og hemlaði á hlaði sem var um- girt háum múrvegg. Hliðinu var strax læst að baki þeirra. Sjúkrabílnum var svo ekið hægt unn að glæsilegri byggingu. Hjúkrunarmennirnir tóku sér strax stöðu sitt hvorum megin við Gérard, þegar þeir stigu út úr bíinum og gengu með honum upp þrepin, eftir gljábónuðum gangi að útskorinni hurð. Ann- ar hjúkrunarmaðurinn drap á dyr og ýtti Gérard innfyrir, þegar dyrnar opnuðust. Svo var læst að baki honum. Þetta var glæsilegt herbergi og ákaflega nýtízkulega búið. Það var teppi yfir allt gólfið, lágir hægindastólar, leður, málmur og plast. Ritarinn virt- ist líka vera gerð úr leðri, málmi og plasti. — Herra Leguen, endurtók hún, þegar Gérard hafði sagt til nafns og hún endurtók það aftur fyrir kuldalegum manni, sem leit viðutan á Gérard, án þess að líta beint framan í hann. — Leguen? sagði hann og rödd hans gaf til kynna að hann hefði ýmislegt áhugaverðara að athuga. Hann blaðaði í spjaldskrá. Hann lyfti brúnum og náði í spjald númer þrjú: rugluð hugsun. — Jæja, já ... Hann sneri sér svo að Gérard, sem hafði það á tilfinningunni að hann sæi í gegnum hann. — Þetta þarf ekki að taka langan tíma. Þér þurfið aðeins hvíld. — Ég er ekki þreyttur, sagði Gérard. Augnaráð mannsins varð ís- kalt. Hann kunni því illa að láta trufla sig. — Ég er ekki veikur heldur, sagði Gérard. — Ég hefi ekkert hér að gera. Sálfræðingurinn sagði að ég væri fuilkomlega heill á geði. — Verið nú rólegur, sagði maðurinn. Orð hans gerðu Gér- ard öskuvondan. — Ég er rólegur. En það var ekki rétt. Gérard fann hvernig hjartað hamaðist í brjósti hans. Þessi staður gerði hann dauðskelkaðan. Staðurinn og andlit mannsins. Það var ailtof reglulegt, alltof rólegt, alltof sviplaust og ómóttæki- legt. Andstyggilegt bros var líka fastmótað á því. — Það álítur Labourasse læknir nú ekki, sagði andlitið. — Ég hefi aldrei hitt neinn Labourasse lækni! — Það getur verið, sagði maðurinn. — En Labourasse læknir hefir að öllum líkindum hitt föður yðar. Hann hefir gef- ið skýrslu um hegðun yðar ... gagnvart fjölskyldunni. — En hann hefir aldrei rann- sakað mig og það er ég sem þér eruð að loka inni. Það er ekki reiknað með mér, ég er ekki álitinn dómbær? Maðurinn bak við skrifborðið gretti sig svolítið og það var ómögulegt að vita hvað þessi gretta átti að þýða. Hann tók sér lítinn gullpenna í hönd og skrifaði eitthvað á pappírsörk. Sú athöfn varð örlagarík fyrir Gérard. Það var, sem sé, ekki hlustað á hann. Það var ekki hlustað á hann! Honum var ekki svarað. Honum var afneitað. Gérard snerist á hæli og gekk til dyranna. Það var enginn húnn á hurðinni. Gérard sneri sér við. Maður- inn bak við skrifborðið hreyfði sig ekki og ritarinn lagaði á sér neglurnar. — Ég vil komast út, sagði Gérard. Hann varð öskuvond- ur, þegar hann heyrði sjálfur hvernig rödd hans titraði. Kuldalegi maðurinn þrýsti á hnapp, það heyrðist urr og dyrnar opnuðust. Gérard sneri sér við. Hjúkrunarmennirnir stóðu í gættinni. Þeir biðu eftir Gér- ard. —i Oh! öskraði Gérard, — þetta er fyrir neðan allar hellur! Honum var ekki svarað. Ann- ar, hjúkrunarmaðurinn tók í handlegg hans og rödd sagði: — Herbergi 27. Þeir fylgdu honum út. Herbergi númer 27 var þægi- legt, bjart og búið nýtízku hús- gögnum. Hjúkrunarkona kom inn. Hún var ung og lagleg og í mjög stuttum slopp. Hún leit miklu frekar út fyrir að vera þjónustustúlka á grill-bar eða handsnyrtidama. Hún hélt á glasi í annarri hendinni og þrem töflum í hinni. — Þetta eigið þér að taka inn, sagði hún. — Hvað er það? — Lyf. — Takið þér það líka? - Ég er ekki veik. — Það er ég ekki heldur. Hjúkrunarkonan leit hikandi á hann. Gérard leit út fyrir að geta verið hættulegur. Hún gekk nokkur skref aftur á bak og flýtti sér svo út. Hurðin, sem var ekki með neinu handfangi, skall að stöfum. Hún kemur aftur, hugsaði Gérard. Hún kemur aftur með liðsauka. Hann sá bókstaflega rautt. Það var gott að láta reið- ina fá vald á sér. Hann greip í rúmgaflinn og skaut rúminu fram að dyrum ög hann stóð á öndinni af áreynslu. Hann heyrði að lykli var stungið í skráargatið og hann hélt rúminu fast við dyrnar. Það brakaði í þeim, en þær opnuðust ekki. — Opnið, herra Leguen! Gérard hló háðslega. Nokkuð aldurslegri rödd tók nú við af hinni fyrri, það var líklega rödd einhverrar eldri og ráðsettari h j úkrunarkonu. — Heyrið mig nú, herra Le- guen... Þér hljótið að sjá að Framhald á hls. 34. 13. TBL. VIKAN 33

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.