Vikan


Vikan - 29.03.1972, Page 34

Vikan - 29.03.1972, Page 34
ÁST HENNAR VAR AFBROT Framhald. af bls. 33. ef þér viljið ekki lofa okkur að sinna yður, þá hafa þeir á réttu að standa, sem álíta yður sjúk- an. Ef þér leyfið okkur að sinna yður með góðu, þá lofa ég því að allt verður betra ... Fjandinn hafi það, hugsaði Gérard reiðilega. Ég vil komast út héðan. Hann ýtti rúminu frá, svo hægt væri að opna. Eldri hjúkr- unarkonan kom inn og leit í kringum sig með viðurkenn- ingarsvip. — Já, þetta er betra. Hún rétti Gérard töflurnar og vatnsglasið. Hún horfði rólega á hann meðan hann kyngdi töfl- unum. Bak við hjúkrunarkon- una sá hann hjúkrunarmennina tvo. Þeir voru á verði. Þegar Gérard hafði kyngt töflunum, lagði hann sig ofan á rúmið með lokuð augu. Hjúkrunarkonan horfði á hann og hristi höfuðið og gekk út. Fyrstu dagarnir voru alltaf erfiðir, en það tókst nú alltaf að róa sjúklingana. Daniéle var sleppt úr fang-- elsinu og fyrsta hugsun hennar var hvað gert hefði verið við Gérard. Enginn vissi hvar hann var. Bekkjarsystkin hans hjálp- uðu henni með að hringja í all- ar áttir, meðal annars á mörg hvíldarheimili. Þau fengu alls- staðar neikvæð svör. — Reynum í Sainte-Agathe, sagði Térese og skaut bréfmiða yfir borðið. Þau voru saman komin á veitingahúsi. Daniéle hringdi þangað. f hinni glæsilegu skrifstofu yfirlæknisins var það ritarinn sem tók símann. — Hvíldarheimilið Sainte- Agathe, sagði hún og var lík- ust flugþernu. Hún hlustaði. — Herra Le- guen, endurtók hún. — Bíðið andartak. Hún sneri sér að lækninum, sem hristi höfuðið. — Halló, sagði ritarinn, — mér þykir það leitt, en hér er enginn með því nafni. Unga fólkið á veitingahúsinu gat lesið svarið úr svip Dani- éle. Hún var mjög þreytuleg. — Þakka yður fyrir. Hún lagði heyrnartólið á og hristi höfuðið. — Við megum samt ekki gef- ast upp, sagði Alain. Gérard synti í einhverju dökku og lygnu vatni. Einstök ijósbrot náðu samt hugskoti hans. Hugarfóstur og minning- ar. Einhver svali frá baðmull- arhnoðranum, sem hafði verið vættur í spíritus og nuddað yf- ir nálstunguna. — Nei, stamaði Gérard. Hann fann til í handleggnum. Hann opnaði augun og varð undrandi yfir því að geta greint hlutina í herberginu. Hann bretti upp ermina á náttjakk- anum. Bölvaðar skepnurnar, hugsaði hann, þau hafa ekki látið sitt eftir liggja. Hann var bólginn eftir margar stungur í olnbogabótinni. Þetta getur ekki verið satt, hugsaði Gérard. Þetta getur ekki skeð nema í reyfurum. Það getur varla verið að þau hafi svæft mig. Þetta hljóta að vera einhver önnur lyf en svefnlyf. Svefn- meðferð! Það hljómaði vel! Gérard fór að hugsa um bók- menntir og þá líka um Daniéle. Hann varð að finna hana. Strax. Hann steig fram úr rúminu en datt á gólfið og sofnaði aftur. Hann vaknaði. Hve löngu síðar? í þetta sinn, hugsaði hann, skal ég ekki sofna. Ef ég geri það, þá vakna ég aldrei aftur. Hann fór að ganga fram og aftur um gólfið. í hvert sinn sem hann leit á rúmið, langaði hann til að skríða upp í það. Aðeins svolitla stund. En hann lét það ekki eftir sér. Hann gekk í heilan klukku- tíma. Við og við varð hann að ganga að þvottaskálinni og kasta upp. Honum varð litið á klæða- skápinn. Hann var opinn. Hann náði í fötin sín og klæddi sig í skyndi. Hann gekk að dyrunum. Þær voru auðvítað læstar. Svo sneri hann sér við og gekk að glugg- anum. Hann gat heldur ekki opnað hann. Þá gekk hann að rúminu, tók svæfilinn og -vafði honum um krepptan hnefann, sem hann svo rak í rúðuna, sem brotnaði. Hann skreið út um onið og sneri fótinn, þegar hann kom niður á mölina. Ljós var kveikt í einu herberginu og eft- ir andartak kvað við bjöllu- hljómur. Gérard stökk í áttina að múrnum og var næstum kominn inn í verkfæraskúr garðyrkíumannsins. sem stóð urm við múrinn. Gérard reyndi af alefli að opna dyrnar á skúrn- um og hennnaðist það að lok- um. Hann náði í hjólbörur, steig unn á þær og komst upp á skúrbakið og þaðan upp á múr- inn. Hann sá að ljós var kveikt í herbergi hans og einhver kom út að glugganum. — Herra Leguen! hrópaði hræðsluleg rödd. Gérard stökk niður af múrn- um, en svo hrökk hann við. Hann var hræddur um að hann væri ennþá innan múra hælis- ins. En svo sá hann engi fram- undan og andaði að sér fersku sveitarloftinu. Hann hafði gleymt að til væru vegir og hljóp beint af augum og það skrjáfaði í hrímuðu grasinu undan fótum hans ... Daniéle opnaði dyrnar. Gér- ard horfði hlæjandi á hana eitt andartak, en svo féll hann í faðm hennar. Hún réði ekki við þunga hans. Hún gat samt dreg- ið hann inn fyrir og lokaði dyrunum með fætinum. — Ástin mín, ástin mín, stundi hún. — Hvað hafa þeir gert við þig? Hræðslan kom henni til að hvísla. Gérard skellihló. — Ég er þrældópaður, sagði hann. Hann studdi sig við vegginn og reyndi að stíga eitt skref fram. Daniéle gat komið í veg fyrir að hann dytti. Hún leiddi hann að legubekknum. Gérard var hættur að hlæja. Hann féll nið- ur á legubekkinn. Nú hló hann á annan hátt, hamingjuhlátri. Daniéle ... hann hafði þá fund- ið hana aftur. Allt það þrek, sem hann hafði sett í það að komast til hennar, rann nú af honum. Hann gat ekki einu sinni haldið höfði. Daniéle skaut kodda undir höfuð hans. — Ég hef verið að leita að þér. Hvar varstu? Daniéle gat ekki haldið aftur af tárunum. — Á Sainte-Agathe, svaraði Gérard. Rödd hans var nú eðli- leg. — Svefnmeðferð, sprautur og þar fram eftir götunum ... En þú? Segðu mér frá fang- elsinu... Daniéle var með tárin í aug- unum og hún fann einhverja hamingjuöldu hvolfast yfir sig. — Við tölum um það á morg- un, sagði hún. — Því er nú lokið. — Hræðilegt, sagði Gérard. — Var það ekki hræðilegt? — Jú, sagði Daniéle, án þess liún gerði sér ljóst hvað hann var að tala um, hvort það var svefnmeðferðin eða fangelsið. — Á morgun skal ég segja þér þetta allt... Hún strauk blíðlega andlit hans, eins og hún væri að full- vissa sig um að þetta væri hann og að hann væri raunveruleg- ur. Hún leitaði í huga sér eftir einhverjum orðum, en það var alltof margt, sem þau þurftu að tala um. — Viltu ekki eitthvað að borða eða drekka. Kjötseyði? Te? Ég veit ekki... Hún hló, hamingjusöm yfir því að heyra einhver venjuleg orð, geta sagt eitthvað reglulega kjánalegt... Gérard hristi höf- uðið. Hann hló líka. — Ég hefi það á tilfinning- unni að mér verði flökurt allt mitt líf. Daniéle fór samt og náði í glas með vatni handa honum. Hann settist upp. — Hvar eru drengirnir? — í Alpafjöllunum. Gérard studdi sig á olnbog- ann og leit inn í barnaherbergið og kom auga á jólatré með glitr- andi skrauti og hálfbrunnum kertum. — Ja, svei mér þá, sagði hann glaðlega. — Það eru jól núna. Hann dró Daniéle að sér. — Það eru jól! Hvað höfum við gert Guði? bætti hann svo við. — Það snýst allt í hring í hausn- um á mér... — Vertu kyrr, sagði Daniéle. — Hreyfðu þig ekki, ástin mín. Hún neyddi hann til að halla sér út af. Gérard barðist við að halda augunum opnum, svo hann gæti horft á Daniéle. — Líður þér betur núna? spurði hún. — Mér líður dásamlega. Hann dró hana til sín, en svo voru kraftar hans þrotnir. — Komdu nær mér, umlaði hann. Hún hnipraði sig saman við hlið hans, mjög varlega, til þess að trufla hann ekki. Hún strauk varlega yfir hár hans. — Ástin mín, hvíslaði hún blíðlega. — Ég má ekki vera hér, sagði Gérard skyndilega. Það var komið fram á var- irnar á Daniéle að hann væri -ekki fær um að fara, hvorki eitt né annað. En svo heyrði hún sjálfa sig segja: — Viltu að við förum strax af stað? Hvert eigum við að fara? — Til braggans, sagði Gér- ard og lokaði augunum. — Já, flýttu þér að klæða þig ... Daniéle stóð upp og fór inn í svefnherbergið. Hún skaut frá sér öllum skynsamlegum hugs-- unum. Hún ætlaði að leggja á flótta með manninum sem hún elskaði, ætlaði að fara hvert sem var, aðeins að finna ein- hvern stað, þar sem þau gætu verið í friði. Hún ætlaði að gera sig fallega. Hún gekk aftur inn i dag- stofuna og sá þá að Gérard var sofnaður. Hún féll á kné við hlið hans ... Framhald í nœsta blaSi. 34 VIKAN 13. TBL.

x

Vikan

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.