Vikan


Vikan - 29.03.1972, Side 41

Vikan - 29.03.1972, Side 41
við áttum greiðan aðgang að steininum. Við þutum áfram, án þess að hægja á okkur og þorðum ekki einu sinni að trúa þessari lieppni okkar. Andartaki seinna vorum við búnir að klifra upp á toppinn á steininum. og lág um þar, móðir og uppgefnir. rúm tíu fet ofan seilingar frá ýlfrandi og vælandi hópnum l'yrir neðan okkur. En þá gerðist .undarlegasti viðburður þessarar viðburða- ríku nætur. í stað þess að taka þátt í tilraunum hinna til að klifra upp klettinn, réðst staki grái úlfurinn með offorsi á hóp- inn. Hárin risu og tennurnai komu í ljós, er hann kreppti afturfæturnar, rétti síðan úr þessum glæsilega skrokki, gaf frá sér grimmdarlegt urr og þaut síðan eins og þrumufleyg- ur úr lifandi sinum og beinum. beint í miðjan hópinn. Ég hélt niðri í mér andarium. og bjóst við að sjá þetta hug- rakka dýr rifið í tætlur fyrir augum mínum. Þarna var einn að ráðast gegn tólf — nægur liðsmunur til að draga kjark- inn úr hvérri lifandi veru. hversu hugrakkri sem væri. En einmitt ofsinn í árásinni virt- ist ljósta skelfingu hina, sem á var ráðist. Nokkur augnablik fannst. mér ég hafa fyrir aug- unum eina hringiðu af skrokk- um, sem engdust og skoltum. sem hvæstu, en allt í einu beyrðist það sem mér fannsl eins og neyðarvæl í einum kór, þegar allur hópurinn sneri við og þaut í ofboði í skjól undir trjánum með hugrökku hetj- una, sem hafði rekið hann á flótta, á hælum sér. Við rákum upp einskonár hálfkæft fagnaðaróp þegar hóp- urinn hvarf inn í kjarrið. — Jæja, Bróðir Úlfur hefur að minnsta kosti gert okkur al- mennilegan greiða í þetta skipt- ið, sagði Alan og rak upp hlát- ur, sem þó var dálítið skjálf- andi. — Ég býst við, að þetta hafi verið raunverulegur úlfur? bætti hann við og leit á mig, efablandinn á svipinn. — Hvað ætti það annað að vera? svaraði ég og yppti öxl- um. — Hann sýndist of skynsam- lir — of siðaður, ef þú skilur, livað ég á við. Hann virtist alveg skilja hættuna, sem við vorum staddir í, strax þegar hann leit á okkur og tók svo bezta hugsanlega ráðið til að bjarga okkur. Hefði þett’í nú verið hundur hefði ég getað skilið svona vit og vinsemd, Tökum heim næstu daga mikið úrval af hinum þekkta sundfatnaði frá Silhouette. Sundbolir og bikini við allra hæfi. Umboðsmenn: Ágúst Ármann h/f ^ Sími 22100 Sllhouette en . . Guð minn góður! Hver ei nú þetta? Ég leit í sömu áttina og hann og sá þá sjón, sem gerði rnig steinhissa. Einmitt á.sama blett- inum þaðan sem úlfahópurinn hafði horfið inn í skóginn, fyrir nokkrum mínútum, kom há ,og grannvaxin stúlka út úr skóg- inum. Ég hefði nú haldið, að allar tilfinningar mínar væru þegar íarnar í þá viðburði, sem þeg- ar voru komnir, en nú fann ég einhvern hryllingarfiðring í höfuðleðrinu þegar ég gerði mér ijóst, hve naumlega þessi fagri vöxtur og lögulegu limir hefðu sloppið við að verða rifnir og skaddaðir. — Ef hópurinn hefði þefað hana uppi. . . ætlaði ég að fara að segja. — Hún veit ekki sjálf um hættuna, tók Alan fram í um leið og hann tók að brölta nið- ur á jörðina. — Við verðum að vara hana við. Komdu... þú Framhald d bls. 44. Til fermingargjafa IX f AUSTURSTRÆTI 13. TBL. VIKAN 41

x

Vikan

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.