Vikan - 22.06.1972, Blaðsíða 26
komið var inn í Eden, var
griðarstór pottur, sem hékk otan úr loftinu og logaði eldur undir. Mat-
sveinn stóS viS hann og hrærSi í meS risastórri trésleif. I pottinum var
aSalréttur kvöldsins.
Jakob Hansen, Kristján Wiium og Erla Wiium spjalla saman
Forstjóri og eigandi Edens, Bragi Einarsson, ásamt konu sinni, Dúu
Jónsdóttur. Þau hjónin báru hita og þunga veizlunnar og lögSu nótt
viS dag viS undirbúning hennar.
Á undan borShaldinu var kokkteill og meSal annars skemmti Árni Jóns-
son gestum meS glimrandi gítarspili. Hér skálar hann viS Laurlts
Christiensen og frú Matthildi Margréti Jóhannsdóttur.
GLEÐSKAPUR
í GRÓÐURHÚSI
Lionsklúbburinn Njörður i Reykjavik heimsótti
Lionsklúbbinn i Hveragerði i siðasta mánuði. í til-
efni af þvi var efnt til óvenjulegrar veizlu i gróður-
húsinu Eden. Er það líklega i fyrsta skipti, sem
gleðskapur hefur verið haldinn i gróðurhúsi hér á
landi. Hvergerðingar undirbjuggu fagnaðinn vel og
rækilega og þá sérstaklega forstjóri Edens, Bragi
Einarsson. Borðhaldið vakti mikla athygli, enda
margt frumlegt og skemmtilegt i sambandi við það.
Maturinn var til dæmis allur i einum stórum potti
og borðvininu var ekið inn i blómskreyttum hjól-
börum. A eftir var dansað og meðal annars farið í
stóladans. VIKAN birtir nokkrar svipmyndir frá
gleðskap Lionsmanna í gróðurhúsinu Eden á
þessum siðum. Myndirnar tók Egill Sigurðssön.
i