Vikan


Vikan - 22.06.1972, Qupperneq 35

Vikan - 22.06.1972, Qupperneq 35
í SUMARFRÍID Reiðtygi - Reiðstígvél - Reiðbuxur Tjöld í úrvali Svefnpokar - Bakpokar - Vindsængur Útivistartöskur - Kælitöskur Sólbekkir - Garðstólar Allt í veiðiferðina SPORT Laugavegi 13 - Kjörgarði - Glæsibæ SONUR LINDBERGS Framhald af bls. 15. ungur. Og viðar i andliti Olsons eru merki eftir plastiskar skurð- aðgerðir, sem ætlað hefur verið að breyta útliti hans. „Skurðlæknirinn, sem hlýtur að hafa gert þetta hét Clarence Olson,” segir Olson, ,,en við vorum ekki skyldir. Enginn sagði mér að hann hefði gert það, þvi að enginn hefur yfirleitt sagt mér að þesskonar aðgerðir hafi verið gerðar á mér. Móðir min sagði mér einu sinni, að Olson læknir hefði gert á mér skurðaðgerð vegna augngalla. Það getur satt verið, en þá hefur hann gert meira en það.” „Hjá AMA (læknasambandi Bandarikjanna) hef ég fengið að vita að Olson læknir hafi látist af slysförum i Los Angeles 1949. En þegar ég heimsótti systur hans, Idu Dalton, Palm Beach i Flórida, fullyrti hún, að bróðir hennar hefði verið jarðaður i kirkjugarðinum þar 1965.” Ida Dalton er upprunnin i Escabana, og annar bróðir hennar kvað hafa staðið i sambandi við glæpahring A1 Capones. Og maður hennar William stóð i skuggalegum sam- böndum við bootleggers á bann- árunum. Hann hafði verið borgarstjóri i Palm B'each og stj- ornmálamaður i New York. Hann hafði misst mikla fúlgu i verðhruninu 1929. Harold Olson: „Gegnum sambönd i stjórninni hef ég komist að þvi, að hann getur hafa átt hlut að ráninu á syni Lindberghs. Hann hvarf sporlaust um það leyti og siðan hefur ekkert til hans spurst. Ég hef hitt tvo menn, sem geta verið Dalton. Hvorugur þeirra er áreiðanlega sá er hann segist vera.” „Eftir fimm ára stöðugar viðræður, segir Olson, fór annar þeirra smám saman að segja frá sinum hlut i barnsráninu, nefna nokkra sem voru flæktir i málið, hvert farið var með barnið, hvar það var fyrst falið, hverjir höfðu hagsmuna aðgæta i sambandi við ránið og hverra og hvernig á þvi stóð, að ákveðið var að láta alla sökina lenda á Hauptmann. Hann fullyrti lika að Betty Gow hefði afhent barnið við aðaldyr hússins, en nefndi þó „gluggann’ annað veifið i þvi sambandi, liklega óviljandi. Hann sagði að barninu hefði liðið mjög illa, þegar hann fékk það i hendur, og taldi mikla heppni að það skyldi lifa af höfuðmeiðslin. Hann sagðist og hafa tapað þrjátiu þúsund dollurum á ráninu, en fyrir þátttökuna i þvi hefði honum verið lofað hálfri milljón dollara.” Aðrar persónur, sem gætu hafa gefið upplýsingar, hafa annað- hvort horfið eða ekki viljað segja neitt. (Fóstur)foreldrar Olsons eru dánir og hafa sjálfsagt tekið svörin við mörgum spurningum með sér i gröfina. Áður en móðir hans dó 1952 reyndi hún að segja frá bernsku hans, en áður höfðu þau faðir hans alveg þagað um allt það. En henni tókst aldrei að segja nema brot af þvi, sem hún virtist vilja láta uppi. „En eitt er undarlegt,” segir Olson, „að alltaf var reynt að fá mig til aó vera kyrran i Escabana. Móðir min sagði, að ef ég færi til New York, myndi fólk, sem ekki vildi hafa mig þar, drepa mig.” „Meirihluti ættar minnar og vina var i Lúthersku trúboðs- kirkjunni, en séra Walfred Nelson, sem stendur fyrir og hlýtur að vita heilmikið, vill ekki hjálpa mér. Hann neitar að leyfa mér að fara i gegnum kirkju- bækur og önnur plögg, sem kirkjan hefur undir höndum. Hann veit hvers ég leita og gæti vel haldið þvi fram, að ég væri truflaður á sinni og látið hefta frelsi mitt á þeim forsendum, en það gerir hann ekki. Hversvegna?” Harold Olson telur Charles Lindbergh vita sannleikann i málinu, en vill láta hann i friði. „Lindbergh hefur hvað eftir annað komið við lifssögu mina og ég held ekki að það hafi alltaf verið tilviljun. Þegar við konan min giftum okkur og yfirgáfum brúðkaupsveizluna, stóðu Lindbergh-hjónin fyrir utan hótelið, þar sem veizlan var haldin. Hversvegna?” Harold Olson hóf rannsóknir sinar seint - kannski of seint. Miklar upplýsingar hafa fárið i gröfina með þeim, sem sátu uppi með þær. Margt hefur gleymst. Margir áhrifarikir menn áttu hlut að málinu og miklar fjárfúlgur voru áreiðanlega greiddar fólki, svo að það héldi sér saman, álitur Olson. „Málið var lempað laglega gegnum réttinn”, segir hann. „Stiginn var talinn eitt helzta sönnunargagnið gegn Hauptmann. En hefði hann, sem var trésmiður, ekki getað smiðað stigann án þess að vita til hvers átti að nota hann?” Olson er skynsamur maður og rólegur og ætlast ekki til að fólk trúi sögu hans án þess að hann geti lagt fram sannanir. „En,”, segir hann, „ég hef á til- finningunni, að ég sé Charles Lindbergh yngri. Ég hef ekki getað með rökum sannað að ég sé það ekki, og hvað get ég þá annað en reynt að sanna að þessi til- finning sé rétt? BLINDINGSLEIKUR Framhald af bls. 13. - Virkilega, Dan? Bjálfi glápti á silfurskifuna, rétt eins og hann byggist við að sjá þar nafnið, fullum stöfum. - Fallega gert af honum,finnstþérekki. Það getur heldur betur flýtt fyrir okkur. Slétta krakkaandlitið var alvaran uppmáluð. Hooper gaf honum illt auga. Svona vitlaus gat ekki nokkur maður verið. En það skein engin glettni eða Ibyggni úr úr þessu andliti - sannast að segja skein ekkert út úr þvi. Hooper hélt áfram. Það var léttir að geta bara talað við ein- hvern - jafnvel Bjálfa Dillon. Með þvl að koma orðum að hugsunum 25. TBL. VIKAN 35

x

Vikan

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vikan
https://timarit.is/publication/368

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.